Morgunblaðið - 21.03.2019, Síða 30

Morgunblaðið - 21.03.2019, Síða 30
30 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MARS 2019 21. mars 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 116.57 117.13 116.85 Sterlingspund 154.87 155.63 155.25 Kanadadalur 87.55 88.07 87.81 Dönsk króna 17.73 17.834 17.782 Norsk króna 13.658 13.738 13.698 Sænsk króna 12.649 12.723 12.686 Svissn. franki 116.58 117.24 116.91 Japanskt jen 1.0478 1.054 1.0509 SDR 162.46 163.42 162.94 Evra 132.33 133.07 132.7 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 163.0097 Hrávöruverð Gull 1308.35 ($/únsa) Ál 1878.0 ($/tonn) LME Hráolía 67.49 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Af 17 félögum á aðallista Kauphall- arinnnar lækkuðu 14 þeirra í við- skiptum gærdags- ins. Mest varð lækkunin á bréfum fasteignafélagsins Eikar, eða 4,01% í 255 milljóna króna viðskiptum. Þá lækkaði fasteignafélagið Reitir um 3,8% í 404 milljóna við- skiptum og fasteignafélagið Reginn um 3,77% í 125 milljóna viðskiptum. Arion banki lækkaði um 2,99% í 48 milljóna viðskiptum og tryggingafélagið VÍS lækkaði um 2,82%. Þá lækkaði Festi um 1,33% í 231 milljónar króna viðskiptum. Gengi tveggja félaga stóð í stað, það var í tilfellum Eimskipafélagsins og TM. Eina félagið sem hækkaði í Kauphöll í gær var Icelandair Group og nam hækk- unin hvorki meira né minna en 10,83% í 166 milljóna viðskiptum. Icelandair var eina félagið sem hækkaði STUTT Peningastefnunefnd Seðlabanka Ís- lands ákvað í gær að halda stýrivöxt- um óbreyttum og verða því megin- vextir bankans áfram 4,5%. Ákvörðunin kom lítið á óvart enda höfðu allir greiningaraðilar spáð óbreyttum vöxtum. Í Markaðs- punktum greiningardeildar Arion banka kemur fram að deildin telji allt eins líklegt að „vaxtalækkun fari að fikra sig inn á matseðil nefndar- manna“, í ljósi þess að ferðaþjónust- an stendur höllum fæti, loðnubrestur þjakar sjávarútveginn og þung staða er á vinnumarkaði þar sem verkföll eru yfirvofandi. Háð niðurstöðu kjarasamninga Verðbólga var 3% í febrúar og hef- ur hjaðnað frá því í desember þegar hún mældist 3,7%. Áhrif hækkunar innflutningsverðs vegna gengis- lækkunar krónunnar á haustmánuð- um vega þar þyngst ásamt því að framlag húsnæðis til verðbólgu hef- ur minnkað. Gengi krónunnar hefur einnig hækkað um tæplega 3% frá febrúarfundi peningastefnunefndar, en enn er þó talið að verðbólga muni aukast eitthvað fram eftir ári „en hvað verður er háð niðurstöðu kjara- samninga,“ sagði m.a. á vef Seðla- bankans. Samkvæmt nýlega birtum þjóðhagsreikningum hægði nokkuð á hagvexti á seinni hluta síðasta árs frá því sem hann hafði verið á fyrri hluta ársins. Hagvöxtur var 4,6% á árinu öllu en í febrúarspá sinni hafði Seðlabankinn gert ráð fyrir að hann yrði 4,3%. Nýlegar vísbendingar um efnahagsumsvif og af vinnumarkaði benda til þess að spenna í þjóðar- búskapnum haldi áfram að minnka. Morgunblaðið/Golli Stýrivextir Peningastefnunefnd hélt stýrivöxtum óbreyttum. Segja vaxtalækk- un jafn líklega  Stýrivextir hald- ast óbreyttir og verða áfram 4,5% Lífrænt RAUÐRÓFUDUFT í hylkjum „Árið 2015 benti kunningi minn mér á Beetroot rauðrófuhylkin frá Natures Aid en þá hafði kólesterólið hjá mér rokið uppúr öllu valdi. Hann sjálfur hafði góða reynslu af þessu bætiefni í tengslum við sykursýki II sem hann glímdi við og þar sem ég var í sömu sporum þá ákvað ég að prófa. Ég hef tekið rauðrófuhylkin inn daglega síðan, ég fann strax að þetta gerði mér gott. Í læknisheimsókn síðar um haustið kom í ljós að kólesterólið hafði snarlækkað, komið niður í 2. Ég var látinn minnka sykursýkislyfin um allt að helming. Ég er mjög ánægður með rauðrófuhylkin frá Natures Aid og mæli heilshugar með þeim. Við hjónin tökum þau inn daglega, við finnummikinn mun, finnst þau gera okkur mjög gott.“ Jóhannes Ólafsson útgerðarmaður frá Akranesi. Rauðrófur eru mjög ríkar af andoxunarefnum og hafa rannsóknir sýnt að efni í þeim hafa æðavíkkandi áhrif. Þær hafa góð áhrif á hjarta- og æðakerfi líkamans, geta lækkað blóðþrýsting, aukið orku og úthald og bætt almenna heilsu og líðan. Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Ríkisábyrgðir eru óvænt komnar í umræðuna eftir að fregnir bárust af því í gær og sagt var frá í Viðskipta- Mogganum, að Skúli Mogensen, stofnandi og for- stjóri WOW air, hefði leitast eftir því fyrr í vikunni að ríkissjóður veitti WOW air ríkisábyrgð fyrir láni sem fyrir- tækið hugðist slá vegna útistand- andi skulda. Ríkisábyrgð er að sögn Björg- vins Sighvatssonar forstöðumanns Lánamála ríkisins, veitt með leyfi Alþingis, samkvæmt lögum frá 1. janúar árið 1998, að undangengnu mati og umsögn Ríkisábyrgðasjóðs. „Áður en þessi lög voru sett þá muna kannski margir eftir ríkis- ábyrgðum sem veittar voru til dæm- is til uppbyggingar loðdýrabúa og fiskeldisfyrirtækja víða um land. Lögin um ríkisábyrgðir voru sett til að takmarka þessar ábyrgðir, og tryggja að Alþingi þyrfti alltaf að samþykkja þær,“ segir Björgvin. „Þetta var sett til að ákveðinn ör- yggisventill væri til staðar, og þingið hefði alltaf síðasta orðið í þessum efnum.“ Björgvin segir að ferlið hvað varð- ar veitingu ríkisábyrgða sé þannig að fjármála- og efnahagsráðuneytið fái kannski fyrirspurn eða ósk um veitingu ríkisábyrgðar, sem svo, ef málið er metið þannig, vísar málinu til Ríkisábyrgðasjóðs sem vistaður er í Seðlabankanum, samkvæmt sér- stökum samningi þar um. Ríkis- ábyrgðasjóður taki þá málið til skoð- unar og veiti umsögn skv. lögum um sjóðinn. „Nýlegt dæmi er að við veittum umsögn um lánveitingu til Íslandspósts, og töldum ekki rétt að veita honum frekari lán umfram það sem veitt hefði verið. Þá veittum við umsögn um ábyrgð á láni til Farice, til að greiða annað lán sem veitt var með ríkisábyrgð en í annarri mynt. Svo veittum við umsögn um tvö lán til Vaðlaheiðarganga,“ útskýrir Björgvin, og bætir við að umsagn- irnar um lánin til Vaðlaheiðarganga hafi verið frekar neikvæðar, en Al- þingi hafi síðan tekið lokaákvörðun um ábyrgðirnar. Enginn starfsmaður Enginn fastur starfsmaður sinnir ríkisábyrgðum hjá Lánamálum að sögn Björgvins. „Þegar við þurfum að veita umsagnir þá leggjum við önnur verkefni til hliðar á meðan, eða fáum utanaðkomandi sérfræð- inga að málinu.“ Spurður að því hvort hægt sé að fá flýtiafgreiðslu í svona málum seg- ir Björgvin að allt sé hægt ef nauð- syn krefji, en þá komi til flýtimeð- ferð ásamt lagasetningu frá Alþingi. „Þegar árásin á Tvíburaturnana í New York varð gerð árið 2001 neit- uðu mörg tryggingafélög að tryggja flugfélög. Þá þurftu mörg ríki að grípa skyndilega inn í og veita ríkis- ábyrgð til að tryggja áframhaldandi flugsamgöngur, þar á meðal ís- lenska ríkið.“ Jón Þórisson, lögmaður hjá Drangi lögmönnum, segir í samtali við Morgunblaðið að hér áður fyrr hafi ríkisábyrgðir verið veittar nokkuð frjálslega, en síðan hafi ver- ið hert mikið að og menn hafi heldur horn í síðu slíkra ábyrgða og finnist að fara eigi sparlega með þær, eins og hann orðar það. Hann segir að EES-samningur- inn setji miklar skorður við veitingu ríkisábyrgða til fyrirtækja í sam- keppnisrekstri. „Ég sé ekki í fljótu bragði að hægt sé að setja þær regl- ur til hliðar.“ Alþingi á síðasta orðið  Icelandair fékk ríkisábyrgð árið 2001  Ríkisábyrgðasjóður veitir umsagnir  Nýlegar umsagnir eru um mál Isavia, Farice og Vaðlaheiðarganga Morgunblaðið/Sigurður Bogi Framkvæmdir Seinna lán ríkisins til Vaðlaheiðarganga fékk frekar neikvæða umsögn frá Ríkisábyrgðasjóði. Björgvin Sighvatsson Þættir sem umsögn Rík- isábyrgðasjóðs tekur á » Mat á greiðsluhæfi skuldara. » Mat á afskriftaþörf vegna áhættu af ábyrgðum. » Mat á tryggingum sem lagð- ar verða fram vegna ábyrgðar- innar. [Ráðherra] 1) er heimilt í reglugerð að ákveða hámark veðsetningarhlutfalls. » Mat á áhrifum ríkisábyrgða á samkeppni á viðkomandi sviði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.