Morgunblaðið - 21.03.2019, Page 37

Morgunblaðið - 21.03.2019, Page 37
37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MARS 2019 Fyrir mörgum árum fengum við Árni heitinn Vilhjálmsson, prófessor og útgerðarmaður, dr. Benjamín Eiríksson bankastjóra til að snæða með okkur og rabba við okkur um líf sitt og starf. Benjamín lék á als oddi og hafði frá mörgu að segja. Þegar liðið var á kvöld, rifjaði Árni upp gaman- sögu, sem Ólafur Jónsson, kenndur við Oddhól, hafði sett á bók. Benja- mín hafði í bankastjóratíð sinni lánað Ólafi fyrir andabúi og vildi eitt sinn skoða framkvæmdirnar. Endur Ólafs voru talsvert færri en hann hafði gef- ið upp í áætlunum, og brá hann á það ráð að eigin sögn að láta þær trítla nokkra hringi í kringum hús búsins, svo að þær virtust miklu fleiri en raun var á, og blekkti með því banka- stjórann. Árni spurði Benjamín, hvort eitthvað væri hæft í þessari sögu. Benjamín brást hinn versti við og sagði, að hún væri fáránlegur upp- spuni. Góð saga, en ekki sönn Eftir að við höfðum ekið Benjamín heim til sín, kímdum við Árni yfir því, að hinn hálærði bankastjóri skyldi komast í uppnám yfir þessari mein- lausu gamansögu. Auðvitað var hún ekki sönn, heldur alþjóðleg flökku- saga. Okkur fannst Benjamín óþarf- lega viðkvæmur fyrir henni. Líklega ætti líka að brosa að gamansögu frá Helga Magnússyni fjáraflamanni í nýútkominni ævisögu, sem Björn Jón Bragason skráði eftir honum: „Ein- um manni tókst þó að leika á okkur og sýndi með því „snilli“ sína. Hannes Hólmsteinn Gissurarson, stjórnmálafræðiprófessor, kom til fundar við okkur Orra Hauksson, framkvæmdastjóra SI, og kynnti fyr- ir okkur verkefni sem hann nefndi „Græna hagkerfið“. Það snerist um að gera stutta kvikmynd um um- hverfisvæna atvinnustarfsemi á Ís- landi. Í fljótu bragði virtist þetta hafa yfir sér jákvæðan svip fyrir atvinnu- lífið þannig að við Orri féllumst á að SI styddi þessa framkvæmd um eina milljón króna. Nokkrum dögum síðar sat ég fund í framkvæmdastjórn SA. Þá segir Vilhjálmur Egilsson okkur frá því að hann hafi fallist á að styðja verkefni Hannesar Hólmsteins um eina milljón króna. Ég hrökk þá við og sagði að hann hefði fengið eina milljón frá Samtökum iðnaðarins og ég hefði haldið að það væri nægilegt. Þá hrópaði Friðrik Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ: „Andskot- inn, hann kom líka við hjá okkur og náði milljón af LÍÚ með sleipri sölu- mennsku!“ Ég hef engar spurnir haft af þessari fyrirhuguðu kvikmynd.“ Sagan er skemmtileg, en eins og stundum gerist um góðar sögur, er hún ekki sönn. Í árslok 2009 sneri ég mér til Friðriks Arngrímssonar, framkvæmdastjóra LÍÚ (Lands- sambands íslenskra útvegsmanna), með hugmynd um sam- starfsverkefni undir heitinu „Umhverfis- vernd, eignaréttindi og auðlindanýting“. Var erindið, að LÍU aðstoð- aði við verkefnið. Frið- rik leist vel á, en taldi þurfa atbeina annarra atvinnurekenda- samtaka, SI (Samtaka iðnaðarins) og SA (Samtaka atvinnulífs- ins). Átti ég þá fund um málið með Helga Magnússyni, formanni SI, og Jóni Steindóri Valdimarssyni, framkvæmdastjóra SI. Tóku þeir mér hið besta, og ákvað SI að taka þátt í verkefninu. SA varð einnig aðili að verkefninu, en reiddi af höndum talsvert minna fé, enda var þáverandi framkvæmdastjóri SA, minn góði vinur Vilhjálmur Egilsson, lítt útbær á fé. Er verkefninu rækilega lýst í skriflegum greinargerðum, sem ég sendi til þessara samstarfsaðila. Átti það að felast í ritgerðum mínum, málstofum, ráðstefnum, ekki síst al- þjóðlegum, og bók eftir mig um „grænan kapítalisma“. Ég tók fram, að ég myndi reyna að taka upp erindi á ráðstefnum og vinna úr þeim og öðru efni heimildarmynd, en auðvitað að því gefnu, að nægt fé fengist til framleiðslu og slík mynd yrði tekin til sýningar í sjónvarpi. SI lagði fram fé til verkefnisins árin 2010 og 2011. Eins og segir í verklýsingu rann ekk- ert af þessu fé í minn vasa, heldur var það notað í sérfræðiþjónustu, tölvu- vinnslu, ferðakostnað og annað slíkt og þætti ekki mikið. Væri sagan hins vegar sönn, þá hefði Helgi Magnússon heldur betur samið af sér fyrir hönd SI og látið mig leika á sig. Hefur hann þó ósjald- an gortað af því og það jafnvel alls- gáður, að hann sé einhver snjallasti samningamaður Íslands fyrr og síðar og gæti ætíð hagsmuna sinna og um- bjóðenda sinna út í ystu æsar. Nú stendur hann uppi að eigin sögn sem sannkallaður samningaglópur í við- skiptum við mig, bragðarefinn. Síðan held ég að vísu, að ég verðskuldi ekki að heita styrkjasnillingur, en við hinu vil ég fúslega gangast, að ég er styrkjamaður: Ég hef hátt í hálfa öld lagt mig fram um að styrkja þau verðmæti, sem Íslendingum hafa dugað best í harðri lífsbaráttu á hrjóstrugri eyju langt úti á Ballar- hafi. Sögnin að styrkja er mín sögn. Til dæmis skrifaði ég heila bók til varnar kvótakerfinu, sem þá var að myndast, þegar Alþingi tók á dag- skrá endurskoðun kerfisins vorið 1990, en þeirri endurskoðun lauk með heildstæðri löggjöf, sem reynst hefur farsæl. Ég barðist líka áratug- um saman fyrir auknu atvinnufrelsi, sem gerði Helga Magnússyni og mörgum öðrum kleift að efnast, án þess að gróði þeirra yrði annarra tap. Best kom í ljós í því efnahagslega fárviðri, sem geisaði um allan heim árin 2007-2009 og kom illa niður á Ís- lendingum, hversu traustar undir- stöður höfðu verið lagðar með um- bótum í frjálsræðisátt 1991-2004, sem ég átti vonandi einhvern þátt í að móta. Við vorum þeirra vegna fljót að rétta okkur við. Hvernig var verkefnið af hendi leyst? Gamansaga Helga Magnússonar veitir mér þó tækifæri til að fara að- eins yfir, hvernig því verkefni var sinnt, sem SI, LÍÚ og SA áttu aðild að á sínum tíma og hófst árið 2011:  Í 1. hefti 7. árg. Þjóðmála 2011 skrifaði ég um þokkafull risadýr (charismatic megafauna) í ljósi frægrar smásögu Georges Orwells um, þegar hann skaut fílinn.  Í 2. hefti 7. árg. Þjóðmála 2011 skrifaði ég undir fyrirsögninni „Raddir vorsins fagna“ um hrakspár umhverfisöfgamanna og gagnstæðan dóm reynslunnar.  19. júní 2012 var haldin málstofa í Rio de Janeiro í tengslum við al- þjóðlegu umhverfisráðstefnuna Rio+20, og þar töluðum við Julian Morris, sérfræðingur Reason Foundation um eignarrétt og um- hverfisvernd.  27. ágúst 2012 flutti hinn heims- kunni rithöfundur Matt Ridley fyrir- lestur í Reykjavík um endurnýj- unarmátt kapítalismans, en hann hafði samið metsölubókina Heimur batnandi fer (The Rational Optimist).  Í 2. hefti 8. árg. Þjóðmála 2012 skrifaði ég um „göfuga villimenn“, en sú goðsögn er ein uppistaðan í áróðri umhverfisöfgamanna.  6. október 2012 var haldin al- þjóðleg ráðstefna í Reykjavík um „fiskveiðar: sjálfbærar og arðbærar“, og á meðal fyrirlesara voru for- stöðumaður fiskveiðideildar FAO, Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, sérfræðingur OECD, Efnahags- og samvinnu- stofnunarinnar, í fiskveiðum og sér- fræðingur Alþjóðabankans um fisk- veiðar og margir fræðimenn, þar á meðal prófessorarnir Rögnvaldur Hannesson, Þráinn Eggertsson og Ragnar Árnason. Skipulagði ég ásamt öðrum ráðstefnuna.  26. október 2012 flutti ég erindi á ráðstefnu Félagsvísindasviðs um peningalykt í íslenskum sjávar- þorpum í ljósi kenninga Pigous og Coases. Kom kaflinn út í ráðstefnu- riti sviðsins.  Í 3. hefti 9. árg. Þjóðmála 2013 sagði ég frá alþjóðlegri ráðstefnu um þróunarkenningu Darwins og um- hverfismál, sem ég sótti á Galapagos- eyjum vorið 2013.  14. október 2013 var haldin al- þjóðleg ráðstefna í Háskóla Íslands í minningu Árna Vilhjálmssonar, og á meðal fyrirlesara voru einn kunnasti fiskihagfræðingur heims, prófessor Ralph Townsend, og prófessor Ragn- ar Árnason. Skipulagði ég ráðstefn- una.  Í október 2014 gaf Almenna bókafélagið út bók Matts Ridleys, Heimur batnandi fer, og sá ég um út- gáfuna. Gerði Ridley sér ferð til Ís- lands og kynnti bókina á málstofu 30. október 2014.  24. október 2014 var haldin mál- stofa um auðlindaskatt og auðlegðar- skatt, þar sem við prófessorarnir Corbett Grainger og Ragnar Árna- son fluttum erindi.  8. október 2015 var haldin al- þjóðleg ráðstefna í Háskóla Íslands um fræðileg verk prófessors Rögn- valds Hannessonar, þar á meðal um bókina Umhverfisöfga (Ecofunda- mentalism). Rögnvaldur flutti inn- gangsfyrirlestur, en Julian Morris og prófessor Bengt Kriström brugðust við. Skipulagði ég ráðstefnuna.  Árið 2015 gaf Háskólaútgáfan út eftir mig bókina The Icelandic Fish- eries: Sustainable and Profitable. Þar er rætt almennt um skynsamlega og réttláta auðlindanýtingu, en síðan sérstaklega um skipan fiskveiða á Ís- landsmiðum. Er hún aðgengileg á Netinu.  Í framhaldi af útkomu bókar- innar flutti ég þrjá fyrirlestra árið 2016 um umhverfisvernd og skipan fiskveiða: hjá Landssambandi per- úskra útvegsmanna í Lima 21. jan- úar, hjá atvinnumálaráðuneyti Perú í Lima 26. janúar og á málstofu IEA í Flórens 8. september.  29. ágúst 2016 var haldin al- þjóðleg ráðstefna í Háskóla Íslands um sjónarmið við upphaflega út- hlutun veiðiréttinda. Töluðu þar með- al annarra prófessorarnir Gary Libe- cap, Ragnar Árnason og Charles Plott. Við Ragnar Árnason skipulögð- um ráðstefnuna.  23. október 2017 gaf Almenna bókafélagið út bókina Framfarir (Progress) eftir Johan Norberg, og gerði höfundur sér ferð til Íslands í því skyni að kynna bókina sama dag. Er þar rætt um mörg stef í rannsókn- arverkefninu.  Þá er komið að því, sem mikil- vægast er í þessu verkefni: Árið 2017 kom út hjá hugveitunni New Direc- tion í Brussel rit eftir mig um grænan kapítalisma, Green Capitalism: How to Protect the Environment by Def- ining Private Property Rights. Var það 69 bls. í stóru broti, væntanlega um 100 bls. í venjulegu bókarbroti. Þar eru meðal annars kaflar um hrakspár, mengun, regnskóga, lax- veiðiár, beitarréttindi til fjalla, afla- heimildir á Íslandsmiðum og nýtingu fíla, nashyrninga og hvala. Kynnti ég ritið á alþjóðlegri ráðstefnu í Brussel 24. maí 2018, en meðal annarra fyr- irlesara var hinn heimskunni heim- spekingur Roger Scruton. Hélt ég þar meðal annars uppi vörnum fyrir makrílveiðar og hvalveiðar Íslend- inga. Jafnframt birti ég stuttar grein- ar í tímaritum í Brüssel til kynningar efninu. Ritið er aðgengilegt á netinu Verkefnið teygði sig yfir lengra tímabil en ég hafði í upphafi gert ráð fyrir, og nægir styrkir fengust því miður ekki til að gera heimildarmynd um það, eins og ég hafði vonast til. Ég tel þó, að allir hlutaðeigendur, SI, LÍÚ og SA, megi vel við una. Hefði skrásetjari Helga, Björn Jón Braga- son, að ósekju mátt bera söguna góðu undir mig, en auðvitað hefði þá komið í ljós, að hún var ósönn. Ef menn vilja vera sagnamenn frekar en sagnarit- arar, þá hafa þeir vitaskuld það, sem best hljómar, ekki hitt, sem sannara reynist. Í annað sinn í uppsláttarfrétt Netritið Visir.is birti uppsláttar- frétt um þessa sögu Helga Magnús- sonar án þess að leita til mín um sannleiksgildi hennar. Svo ein- kennilega vill til, að þetta er í annað skiptið, sem ég rata í fjölmiðla vegna Helga. Árið 1986 höfðu nokkrir for- svarsmenn Hafskips, sem orðið hafði gjaldþrota árið áður, um skeið setið í gæsluvarðhaldi, þar á meðal Helgi, sem verið hafði endurskoðandi fé- lagsins. Ég hafði skrifað í tímarit: „Stjórnendur eða eigendur gjald- þrota fyrirtækja eru stundum fórn- arlömb utanaðkomandi aðstæðna, sem þeir hafa ekki séð fyrir eða vald- ið neinu um. Ég hef til dæmis grun um það, án þess að ég þekki mála- vöxtu nákvæmlega, að stjórnendur Hafskips hafi verið óheppnir, þótt þeir hafi ugglaust líka verið ógætnir.“ Þessi varfærnislegu orð þóttu slík ósvinna, að Alþýðublaðið sló þeim upp á forsíðu blaðs, sem dreift var í hvert hús í Reykjavík fyr- ir borgarstjórnarkosningarnar þá um vorið. Ætlaði Alþýðuflokkurinn í kosningabaráttunni að gera sér mat úr Hafskipsmálinu, þótt hann hefði að vísu ekki erindi sem erfiði. En á sama hátt og ég mælti fyrir frelsi Helga og annarra athafnamanna til að græða, svo framarlega sem þeir gangi ekki á rétt annarra, barðist ég einmitt fyrir rétti hans og þeirra líka til eðlilegrar málsmeðferðar. Ég tel, að forsvarsmenn Hafskips hafi ekki notið þessa réttar og fjölmiðlar og rannsóknaraðilar farið offari gegn þeim, enda voru þeir að lokum sýkn- aðir af öllum alvarlegustu ákærunum á hendur þeim. Ég var vorið 1986 hins vegar nánast einn um að verja þá opinberlega og kippti mér ekki upp við það, enda fer ég eftir orðum hinnar helgu bókar: „Þú skalt ekki fylgja fjöldanum til illra verka.“ Ef- laust hefur Helgi gegnt endurskoð- andaskyldum sínum af samviskusemi í Hafskipsmálinu og verið þar hafður fyrir rangri rök, eins og ég gat mér þá til um. En í mínu máli virðist hann helst hafa skoðað endur eins og þær, sem áttu að hafa trítlað nokkra hringi í kringum hús Ólafs á Oddhóli og hvergi voru til nema í gaman- sögum. (Þeir Friðrik Arngrímsson, Vil- hjálmur Egilsson og Orri Hauksson hafa allir staðfest frásögn mína, að því er snýr að þeim, en Jón Steindór Valdimarsson svaraði ekki skila- boðum.) Eftir Hannes Hólm- stein Gissurarson » Gamansaga Helga Magnússonar veitir mér þó tækifæri til að fara aðeins yfir, hvernig því verkefni var sinnt, sem SI, LÍÚ og SA áttu aðild að. Hannes Hólmsteinn Gissurarson Höfundur er prófessor í stjórn- málafræði. Styrkjasnillingur svarar samningaglóp Talið er að það kosti að jafnaði 4 krónur að fresta eðlilegu viðhaldi upp á 1 krónu. Það er því skammgóður vermir að fresta því að gera við. Vermir jafnvel enn skemur en þegar pissað er í skóinn sinn sér til hita. Vanrækt viðhald er ekkert annað en dýrt lán á vöxtum. Nú hefur komið fram að skóla- starf í Fossvogsskóla hefur raskast og húsið verið rýmt. Rakaskemmdir og myglu er að finna í mörgum öðr- um byggingum borgarinnar. Með- vituð ákvörðun um að fresta viðhaldi var tekin fyrir átta árum síðan. Þessi frestun sparaði borginni marga millj- arða, en samkvæmt þekktri reiknireglu má segja að þetta sé eitt dýrasta lán sem hægt er að taka. Ef þakið lek- ur og ekki er gert við það fylgja raka- skemmdir, fúkki og mygla ásamt óskemmtilegum fylgi- fiskum með tilheyrandi vanlíðan. Á sama tíma og sparað var í viðhaldi í skólabyggingum var ákveðið að fjár- festa í bragganum í Nauthólsvík og öðrum ólögbundnum gæluverkefnum á borð við pálmatré í gleri. Eftir höfðinu dansa limirnir Sama á við um dótturfélög borgar- innar. Félagsbústaðir hafa vanmetið viðhaldsþörf íbúða í eigu félagsins. Nýlega leiddi úttekt innri endurskoð- unar Reykjavíkurborgar í ljós að við- gerðir á íbúðum í Írabakka fóru 330 milljónum fram úr áætlun. Hætta er á að viðhaldsþörf annarra íbúða í eigu félagsins sé vanmetin. Frægasta dæmið er þó aðalstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur, hús sem talið er nær ónýtt. Enn er óljóst hvað olli þessu gríðarlega tjóni en viðhaldi kann að vera um að kenna. Við sjáum dæmi um vandamál með fráveitu, kalda vatnið og nú síðast skort á heitu vatni. Ljóst er að teflt er á tæpasta vað í endurnýjun innviða og viðhaldi. Það er akkúrat enginn sparnaður í því að fresta nauðsynlegu viðhaldi. Þvert á móti er ámælisvert að trassa það. Fossvogsskóli er skólabókardæmi um það. Við það bætist svo vandi for- eldra, barna og kennara, þegar skóla- húsið er ekki til staðar, og sá kostn- aður sem fylgir atvinnutapi þeirra foreldra sem verða að vera heima með börnunum vegna þessa. Þörf er á heildarúttekt á viðhaldi borgarinnar og höfum við lagt til að hún fari fram. Fyrst þarf að kanna ástandið á skóla- húsnæði borgarinnar og svo öllu hús- næði borgarinnar. Í ljós hefur komið að fyrirliggjandi úttektir hafa ekki verið í lagi. Heilbrigðiseftirlitið gaf húsnæði Fossvogsskóla næsthæstu einkunn í úttekt sinni í nóvember. Þremur mánuðum síðar er það talið óhæft til kennslu. Það kann víðar að vera mygla í mosanum hjá borginni. Borgin hefur vanrækt viðhald Eftir Eyþór Arnalds Eyþór Arnalds » Það er akkúrat enginn sparnaður í því að fresta nauðsyn- legu viðhaldi. Þvert á móti er ámælisvert að trassa það. Höfundur er oddviti Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.