Morgunblaðið - 21.03.2019, Page 43
MINNINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MARS 2019
samlegur félagi og systir
Clementía kenndi smíðar og
skrift og hin marglofsungna frk.
Guðrún Jónsdóttir endursagði
Íslendingasögurnar í ljósu máli.
Um miðbik námsdvalarinnar í
Landakoti stofnuðum við Binna
ofurlitla skóbúð í kjallara húss
fjölskyldunnar við Hávallagötu.
Fórum við kaupahéðnar hús úr
húsi og sníktum skó af fólki í
nágrenninu og seldum síðar
lysthafendum á hagstæðu verði.
Áfram héldum við að vera í
samvistum, er kom í Versló. Þá
var hinn ágæti fjölfræðingur
Vilhjálmur Þ. Gíslason farinn til
Ameríku til að læra að verða út-
varpsstjóri en við keflinu tók dr.
Jón Gíslason latínumenntað val-
menni. Í Versló kynntist Binna
maka sínum Geir Ragnari Leví,
síðar Andersen og urðu ástir
þeirra einkar farsælar til hinzta
dags. Þau áttu barnaláni að
fagna og voru hamingjusöm til
hinzta dags.
Geir vinur okkar allra nam
hótel- og veitingafræði við víð-
frægan háskóla í Sviss og varð
síðan yfirmaður flugvélamatar
Icelandair í áratugi. Binna vann
lengi sem gjaldkeri hjá elli- og
hjúkrunarheimilinu Grund og
var virt og vinsæl í starfinu. Nú
hefur hinn mikilvirti sláttumað-
ur fjarlægt þessa góðu mann-
eskju úr þessari hérvist. Það er
sárt að sjá eptir slíkri mann-
kostamanneskju og óska ég öllu
fólki hennar og eftirlifandi
bónda hennar einlægan sam-
hug.
Bragi Kristjónsson.
Brynhildi Andersen kynntist
ég fyrst í kosningastarfi sjálf-
stæðismanna í Vestur- og
Miðbæ í borgarstjórnarkosning-
um 1982 og þingkosningum ári
síðar. Ég er ekki frá því að hún
hafi verið fyrsta manneskjan til
að taka á móti mér á þeim vett-
vangi og fela mér einhver verk-
efni, enda var hún þá og löngum
síðar í forystusveit flokksmanna
í vesturhluta borgarinnar og í
hópi þeirra sem báru uppi kosn-
ingastarf og kjördagsvinnu, sem
án efa skilaði miklu fyrir flokk-
inn þegar talið var upp úr kjör-
kössunum.
Frá fyrstu stundu fann mað-
ur á Brynhildi að fólk væri
þarna komið til að vinna, en
ekki til að slæpast, að verkefnin
skiptu máli og að allir yrðu að
taka til hendinni til að árangur
næðist. Hún áttaði sig hins veg-
ar líka á því að til þess að stór
hópur sjálfboðaliða væri tilbú-
inn að koma og leggja sitt af
mörkum yrði líka að vera gam-
an og hún átti svo sannarlega
sinn þátt í að skapa lifandi og
skemmtilegt andrúmsloft, sem
gerði það að verkum að fólk var
tilbúið til að koma aftur og aft-
ur, kosningar eftir kosningar, til
að vinna að framgangi flokksins
og hugsjóna hans.
Sjálfur átti ég þess kost að
vinna með Brynhildi í um það
bil 20 almennum kosningum, til
alþingis og borgarstjórnar, og
eru þá ótalin ýmis önnur sam-
eiginleg verkefni á vettvangi
flokksstarfsins, svo sem í kjör-
nefndum, prófkjörum, á lands-
fundum og í almennu fé-
lagsstarfi milli kosninga.
Brynhildur lagði jafnan gott til
málanna, var bæði óeigingjörn
og ráðagóð, og jafnan tilbúin að
taka að sér verkefni, sem hún
skilaði síðan af sér með sóma.
Hún var ekki skoðanalaus
manneskja og óhrædd við að
láta menn heyra það ef henni
mislíkaði eitthvað, en það var
ekki persónulegt af hennar
hálfu og alveg laust við illindi
eða persónulegt pot, sem ekki
er alveg óþekkt í pólitísku
starfi.
Kynni mín af Brynhildi urðu
svo auðvitað meiri þegar við
Sigríður dóttir hennar urðum
vinir og samverkamenn bæði
innan og utan vettvangs stjórn-
málanna. Þá kynntist maður
annarri hlið hennar, fjölskyldu-
konunni og ættmóðurinni, sem
hélt einstaklega vel utan um
sitt fólk og studdi það af alefli
meðan heilsa og kraftar leyfðu.
Um leið og ég þakka fyrir
velvild og vináttu í áratugi,
votta ég Geir, Kristni, Ívari,
Sigríði og fjölskyldum þeirra
innilega samúð mína. Þeirra
missir er mikill en minningin
um góða konu mun lifa með
okkur öllum sem kynntumst
henni.
Birgir Ármannsson.
Fátt er mikilvægara í lífinu
en að eignast góða og sanna
vini.
Ég varð þess láns aðnjótandi
þegar ég kynntist Brynhildi
Andersen fyrir nærri hálfri öld.
Þá fluttu þau Brynhildur og
Geir í Sólvallagötuna með
börnin sín. Ég man að mamma
mín sagði mér að það væri svo
sæt ung kona flutt í götuna sem
væri þar að auki ættuð úr Döl-
unum.
Fljótlega fór ég að drekka
kaffi með Brynhildi og við
drukkum mikið kaffi saman alla
ævina síðan. Ég kynntist því
hve Brynhildur var mikil
öðlingsmanneskja og hvað hún
var vel gefin, réttsýn og framar
öllu sanngjörn í mati sínu á
mönnum og málefnum.
Það var 13 ára aldursmunur
á okkur Brynhildi. Ég var af
’68-kynslóðinni en hún var af
kynslóðinni fyrir ofan. Það
breytti engu um okkar vinskap
því að Brynhildur kom alltaf að
kjarna málsins í öllum um-
ræðum en lét sig engu skipta
tískustrauma á neinu sviði.
Hún setti grundvallaratriði
allra mála fram á svo kurteisan
og látlausan hátt.
Brynhildur var alltaf upp-
örvandi og sá jákvæðar hliðar
og von í öllu. Þau voru ófá
skiptin sem ég sat hjá henni og
saup á kaffibollanum og hún
taldi í mig kjark.
Brynhildur var mjög pólitísk
og mikil sjálfstæðiskona. Hún
hafði mikla yfirsýn yfir hið
pólitíska litróf og stóð alltaf við
sínar grundvallarhugsjónir. En
Brynhildur var líka viðsýn, gat
sett sig í spor annarra og séð
málin frá mörgum öðrum
hliðum.
Í lífi Brynhildar var for-
gangsröðunin skýr. Fyrst kom
fjölskyldan; eiginmaður, börn
og barnabörn. Svo kom allt
hitt.
Brynhildur var mjög músík-
ölsk og lagði mikla stund á tón-
list á sínum yngri árum. Ekki
er ég frá því að næmi hennar í
tónlist hafi líka birst í um-
gengni og samtölum við annað
fólk því að Brynhildur kunni
vel að hlusta. Hún heyrði
gjarnan hið ósagða og las þann-
ig hugsanir og það sem að baki
lá. Hún sagði aldrei öll sín orð í
einu.
Minningarnar frá hinum
ýmsu samverustundum með
Brynhildi flæða fram. Það voru
kaffiboð á Sólvallagötunni, það
voru góðar stundir á Þingvöll-
um og jafnvel á Bifröst að
ógleymdum hinum mörgu ný-
ársnóttum sem við sátum með
fleira góðu fólki og fögnuðum
nýju ári.
Ég er þakklát fyrir að hafa
fengið að eiga Brynhildi að vin-
konu í lífinu og minningin um
hana mun alltaf lýsa mér og
ylja.
Megi Brynhildur Andersen
hvíla í Guðs friði og megi minn-
ing hennar vera blessun.
Ragnhildur Pála
Ófeigsdóttir.
Brosmild, glæsileg og við-
mótið hlýlegt. Það geislaði og
gustaði af henni Brynhildi And-
ersen sem starfaði á skrifstofu
Grundar í meira en aldar-
fjórðung, allt frá árinu 1988 og
þangað til hún lét af störfum
árið 2015, þá komin hátt á átt-
ræðisaldur. Brynhildur var
drífandi og jákvæð og lét ekk-
ert slá sig út af laginu heldur
hélt áfram að sinna sinni vinnu
með bros á vör.
En hún sagði ekki skilið við
heimilið þegar hún lét af störf-
um, heldur mætti sjálfboðin í
hverri viku og las úr dagblöðum
fyrir heimilismenn og spilaði á
píanó í morgunstund. Þær fórn-
fúsu stundir voru henni dýr-
mætar en ekki síður heimilis-
fólkinu sem á eftir að sakna
hennar og gleðinnar sem fylgdi
nærveru hennar.
Grund þakkar Brynhildi
samfylgdina og vottar eigin-
manni hennar, börnum og öðr-
um aðstandendum dýpstu
samúð.
Guðrún B. Gísladóttir.
Í dag kveðjum við kæra vin-
konu, Brynhildi K. Andersen,
samferðarkonu í áratugi og
traustan og góðan vin. Mér eru
ógleymanlegar þær mörgu
samverustundir sem við Jóna
Gróa eiginkona mín áttum með
Brynhildi og eftirlifandi eigin-
manni hennar, Geir R. Ander-
sen. Það var fyrir meira en fjór-
um áratugum sem kynni tókust
með Brynhildi og Jónu Gróu er
þær hittust á Hvatarfundi á
Hótel Borg. Í framhaldi tóku
þær báðar virkan þátt í starfi
Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík og voru jafnan samstiga og
gegndu ýmsum trúnaðarstöðum
á vettvangi stjórnmálanna.
Jóna Gróa lést áttræð í septem-
ber 2015 og Brynhildur kveður
nú á sama aldri. Það var margt
líkt í fari Brynhildar og Jónu
Gróu. Óbilandi áhugi á þjóð-
félagsmálum, fjölskyldumetn-
aður og dugnaður, atorka,
kímni og glæsileiki. Það eiga
sér nú vonandi stað hressilegar
umræður hjá þeim vinkonum á
því tilverustigi sem allir enda á.
Á heimili Brynhildar og
Geirs og á heimili okkar Jónu
Gróu voru haldnir margir sel-
lufundir við hápólitíska um-
ræðu og gamanmál. Hlátra-
sköllin á fundunum bárust
jafnan í nálæg hús og út á ná-
lægar götur. Spáð var í spil og
línur voru lagðar. Á fundunum
hallaði ekki á stöðu kvenna –
við eiginmennirnir studdum
okkar konur og hlustuðum á.
Brynhildur lauk Verslunar-
skólanámi og námi frá Hús-
mæðraskóla Reykjavíkur. Hún
hafði mikinn metnað fyrir fjöl-
skyldu sína og börn hennar og
barnabörn bera hennar vega-
nesti. Í prófkjöri fyrir borgar-
stjórnarkosningar fyrir tæpum
fjörutíu árum lagði Jóna Gróa
upp í prófkjörsbaráttu við slag-
orðið „húsmóðir af hverju
ekki“. Slagorðið skilaði góðum
árangri og get ég ekki loku fyr-
ir það skotið að þar hafi Bryn-
hildur lagt á ráðin.
Það er tómleiki sem fylgir
þegar stórbrotin kona fellur
frá. Kæri Geir, börn og barna-
börn. Ég votta ykkur dýpstu
samúð við fráfall glæsilegrar og
dugmikillar konu, Brynhildar
Kristinsdóttur Andersen.
Guðmundur Jónsson.
Fallin er frá kær vinkona,
Brynhildur Andersen, eða
Binna eins og hún var jafnan
kölluð. Fráfall hennar bar
nokkuð brátt að eftir að hún
hafði átt við veikindi að stríða
um skeið.
Leiðir okkar Binnu lágu
saman í Sjálfstæðisflokknum
seint á síðustu öld en Binna
hafði verið virkur félagi þar í
mörg ár. Fyrstu kynni okkar
voru í gegnum Sjálfstæðis-
kvennafélagið Hvöt og svo síðar
í stjórn Landssambands sjálf-
stæðiskvenna en hún var fram-
kvæmdastjóri LS í for-
mennskutíð minni þar.
Samstarfið við Binnu var fjör-
legt, lærdómsríkt og skemmti-
legt, en hún var haldin smitandi
eldmóði og framsýni, og lét
skoðanir sínar skýrt og skil-
merkilega í ljós. Stundum vor-
um við ósammála, en oftar sam-
mála, um gang stjórnmálanna,
ekki síst í jafnréttismálum og
hvernig unnt væri að fjölga kon-
um á Alþingi og í sveitarstjórn-
um. Þessari lágvöxnu, glæsilegu
konu gat legið hátt rómur á
köflum ef umræðuefnið gaf til-
efni til skoðanaskipta og fór
ekki milli mála að Binna var á
staðnum þegar svo bar við.
Mér er sérstaklega minnis-
stæð kosningabarátta snemma
á tíunda áratug síðustu aldar,
en þá lögðu sjálfstæðiskonur
mikinn þunga á árangur – að
jafna hlut kynjanna. Forysta
flokksins studdi LS dyggilega
en þegar stjórnin ákvað að gera
sérlegt segulmerki með orðun-
um ,,Sjálfstæðiskona – stendur
á þér?“, auðvitað skreytt XD,
fór um suma, þar á meðal
Binnu. Hún hugsaði sig um ör-
skamma stund en svo lýsti and-
litið eins og sól á himni þegar
hún sagði að auðvitað mætti
ekki standa á konum að kjósa ...
að nýta kosningarétt sinn og
styðja konur til dáða! Enn má
sjá þetta merki á ísskáps-
hurðum margra heimila en því
var dreift um allt land á sínum
tíma. Sjálfri dettur mér alltaf í
hug LS stjórnin, sem brallaði
svo margt og lagðist saman á
árar í kosningabaráttum flokks
okkar, þegar merkið blasir við
mér á morgnana, fagurblátt
með hvítum stöfum.
Eins og verða vill mynduðust
vináttubönd sem hafa ekki bara
haldið í mörg ár, heldur eflst og
þeim viðhaldið með reglulegum
samverustundum.
Fyrir hönd Hvatar- og LS-
stjórnarkvenna frá tíunda ára-
tug síðustu aldar færi ég eig-
inmanni Binnu, Geir, börnum
þeirra og öðrum afkomendum
innilegar samúðarkveðjur og
bið þeim verndar allra góðra
vætta.
Ellen Ingvadóttir, fv.
formaður Landssambands
sjálfstæðiskvenna.
Kveðja frá Félagi
sjálfstæðismanna
í vestur- og miðbæ
Brynhildur Andersen er fall-
in frá. Áratugum saman tók hún
af atorku þátt í stjórnmálastarfi
og var um árabil formaður Fé-
lags sjálfstæðismanna í vestur-
og miðbæ og síðar heiðurs-
félagi. Hún var kjölfesta og
gleðigjafi í félagsstarfinu sem
og annars staðar og skipti þá
engu hvort það var í Vestur-
bæjarlauginni eða á Grund. Allt
hennar starf einkenndist af elju
og myndugleika.
Brynhildur hafði sterka nær-
veru. Hún var skýr og skelegg
svo mál hennar fór ekki framhjá
neinum viðstöddum. Hún hafði
sterkar skoðanir á ýmsum mál-
um sem hún fylgdi eftir af hátt-
vísi sem henni var í blóð borin.
Brynhildur hafði lag á að vinna
með fólki og vissi að leiðir til ár-
angurs eru stundum krókóttar
og aðeins færar þeim sem bera í
sér hæfilega blöndu af ákafa og
þolinmæði.
Hvar sem Brynhildur fór
vakti hún athygli og aðdáun fyr-
ir röskleika, ákveðni, dugnað og
réttsýni, en ekki síst vingjarn-
legt viðmót við stóra sem smáa,
enda var hún sönn og góð og
kom ávallt fram af heilindum.
Hún var gæfusöm í einkalífi og
það var eftirtektarvert hversu
samhent þau Geir voru alla tíð.
Börnin þrjú bera foreldrum sín-
um sannarlega gott vitni, hvert
með sínum hætti.
Missir margra er mikill við
fráfall Brynhildar, en mest er
þó sorg nánustu fjölskyldu
hennar og vottum við þeim öll-
um innilega samúð.
Sólrún Sverrisdóttir,
formaður.
Elskulegur eiginmaður og vinur, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
FRIÐRIK BJÖRN GUÐMUNDSSON
verslunarmaður,
Hólmagrund 10,
Sauðárkróki,
lést á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks laugardaginn 9. mars.
Jarðsett verður frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 23. mars
klukkan 14.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er
bent á að styrkja Sjúkraþjálfun Heilbrigðisstofnunar
Sauðárkróks.
Friðbjörg Vilhjálmsdóttir
Margrét Friðriksdóttir Eyvindur Albertsson
Steingrímur Rafn Friðriks. Pálín Ósk Einarsdóttir
Bjarni Þór Eyvindsson Linda Björk Hafþórsdóttir
Anna Margrét Steingrímsd. Hilmar Þór Hilmarsson
og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÞÓRUNN SIGURÐARDÓTTIR,
Sóltúni,
lést á Landspítalanum 7. mars. Útförin
verður gerð frá Neskirkju föstudaginn
22. mars klukkan 15. Þeim sem vildu minnast hennar er beint á
Barnaspítala Hringsins.
Erna Einarsdóttir
Sigurður Einarsson Arndís Björnsdóttir
Einar Þór Daníelsson
Hildigunnur Daníelsdóttir Árni Garðarsson
Þóra Jensdóttir
Helga Þórunn Óttarsdóttir Gústav Arnar Davíðsson
Þórunn Sigurðardóttir
Björn Sigurðsson
og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
BIRNA ÞÓRA GUÐBJÖRNSDÓTTIR,
Reykjavíkurvegi 16,
Hafnarfirði,
lést á Hrafnistu þriðjudaginn 12. mars.
Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudaginn 21. mars kl. 13.
Rúnar Þór Egilsson Svanhildur M. Bergsdóttir
Guðbjörn Egilsson Sigurjón Egilsson
Egill Fannar Rúnarsson
Bergdís Mjöll Rúnarsdóttir Trausti Kristinsson
Heiðrún Birna Rúnarsdóttir Nanna Ósk Arnarsdóttir
og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
SIGURBJÖRN REYNIR EIRÍKSSON,
Aðalgötu 1,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
fimmtudaginn 14. mars.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 26. mars
klukkan 13.
Eiríkur S. Sigurbjörnsson
Jóhanna P. Sigurbjörnsd. Wayne Carter Wheeley
Valdís S. Sigurbjörnsdóttir Ægir Frímannsson
Sigurbjörn R. Sigurbjörnss.
Símon G. Sigurbjörnsson
afabörn, langafabörn og langalangafabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
KRISTRÚN SIGURFINNSDÓTTIR,
fyrrverandi húsfreyja
Efsta-Dal 1,
lést á Dvalarheimilinu Ási, Hveragerði,
sunnudaginn 17. mars. Útförin fer fram frá Skálholtsdómkirkju
föstudaginn 29. mars klukkan 14.
Fyrir hönd aðstandenda
Sigurfinnur Vilmundarson Margrét J. Þórarinsdóttir
Theodór I. Vilmundarson Ragnheiður B. Sigurðardóttir
Gunnar Vilmundarson Jóna Bryndís Gestsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn