Morgunblaðið - 21.03.2019, Page 48
48 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MARS 2019
Starfið er í blóma áÞjóðminjasafninuog fjölbreyttar
sýningar í gangi, hér er
fjöldi gesta alla daga og
í mörg horn að líta,“
segir Margrét Hall-
grímsdóttir þjóðminja-
vörður, sem er 55 ára í
dag. „Við erum að vinna
í því að auka aðgengi
enn betur en áður að
safninu og nú gildir einn
aðgöngumiði sem árs-
kort. Miðinn kostar
2.000 krónur og auðvit-
að fyrir börnin. Árs-
miðann er hægt að nýta
allt árið og koma eins oft
og hver vill. Það er vin-
sælt að koma í safnið og skoða einstakar sýningar eða jafnvel einstaka
grip, hlýða á fyrirlestra já eða fá sér kaffi.“
Ýmsar sérsýningar eru í gangi, ljósmyndasýningar og sýningar á
kirkjulist fyrri alda. Þá er skyggnst inn í heim miðaldaklaustranna á
sérstakri sýningu. „Á fullveldisárinu sigldum við í höfn stóru rann-
sóknaverkefni um friðaðar kirkjur landsins ásamt samstarfsaðilum og í
tilefni af því var efnt til hátíðarsýninga um listgripi í kirkjum landsins.
Þar má sérstaklega nefna sýninguna Kirkjur Íslands: Skrúði og áhöld
þar sem eru til sýnis gripir frá fjölmörgum friðuðum kirkjum um allt
land en við höfum verið í góðu samstarfi við gott fólk sem hefur lánað
okkur kirkjugripina til sýningar. Það er því einstakt tækifæri nú til þess
að kynna sér kirkjulistasögu okkar í Bogasal Þjóðminjasafnsins.
Meðal frétta af innra starfi Þjóðminjasafnsins er að nú er verið að
vinna að lokaáföngum flutninga á hundruðum þúsunda safngripa, þar
af jarðfundnum minjum fornleifarannsókna, í kjöraðstæður hvað varð-
ar öryggisgæslu og varðveisluskilyrði í nýinnréttuðu húsnæði í Hafnar-
firði þar sem einnig er aðstaða til kennslu og rannsókna. Þá er Ljós-
myndasafn Íslands í Þjóðminjasafni að fá betri aðstæður til varðveislu
og rannsókna í Kópavogi á rúmlega 6 milljónum ljósmynda. Þá er í
fréttum að nú er unnið að undirbúningi sumarstarfs í húsum Þjóðminja-
safns um allt land og í þessum orðum töluðum var verið að undirrita
samstarfssamning við Byggðasafn Skagfirðinga í Glaumbæ um afnot af
torfhúsum Þjóðminjasafns til safnastarfs í Skagafirði. Það er gefandi
samvinna við söfnin á landsbyggðinni sem ferðafólk nýtur góðs af.“
Áhugamál Margrétar eru fjölskyldan og samvera með sínu fólki, en
hún á fjögur uppkomin börn og eitt barnabarn. Þá eru ritstörf og lestur
bóka nokkuð sem Margrét fæst við í frístundum sem og útivist.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þjóðminjavörður Margrét Hallgrímsdóttir.
Aðgöngumiðinn
gildir sem árskort
Margrét Hallgrímsdóttir er 55 ára í dag
Ö
rlygur Kristfinnsson
fæddist 21. mars 1949 á
Siglufirði. „Ég ólst upp í
hinum litríka og líflega
síldarbæ sem Siglu-
fjörður var á þessum árum. Þar var
Ljósmyndastofa Siglufjarðar nokk-
urs konar miðdepill tilverunnar.“ Ör-
lygur var í sveit í sex sumur frá 6 ára
til 12 ára aldurs, hann vann síðan öll
sumur margs konar störf sem tengd-
ust síldariðnaði og annarri fisk-
vinnslu.
Örlygur varð stúdent frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1969, stundaði
síðan fjögurra ára nám við Mynd-
lista- og handíðaskóla Íslands og lauk
kennaraprófi þaðan 1973.
Örlygur var myndlistarkennari í
20 ár, aðallega á Siglufirði og hélt þar
myndlistarsýningar af og til. Hann
stóð að stofnun Félags áhugamanna
um minjasafn 1989 og starfaði sem
Örlygur Kristfinnsson myndasmiður – 70 ára
Í Kárahnjúkaferð Örlygur og Guðný með tvíburabörn sín, Hildi og Hrafn, árið 2006.
Siglufjörður aftur orð-
inn líflegur og litríkur
Á Síldarminjasafninu Hákon, krónprins Noregs, vígir Bátahúsið 29.6. 2004
og fylgist með síldarsöltun ásamt Ólafi Ragnari forseta og fríðu föruneyti.
Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða
mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í
einn mánuð.
Hægt er að senda mynd
og texta af slóðinnimbl.
is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Á „Íslendinga“ síðum
Morgunblaðsins er
meðal annars sagt frá
merkum viðburðum
í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum,
barnsfæðingum
eða öðrum
tímamótum.
TILBOÐSDAGAR
50%
AFSLÁTTU
R
ALLT AÐ
3.356
Áður: kr. 4.795
3.356
Áður: kr. 4.795
1.998
Áður: kr. 3.995
1.498
Áður: kr. 2.995
998
Áður: kr. 1.995
4.196
Áður: kr. 5.995
-30%
-30%
-30% -50%
-50%
-50%
Rafvörumarkaðurinn við Fellsmúla | Sími: 585 2888
OPIÐ ALLA DAGA
Mán. til fös. kl. 9–18.
Laugard. kl. 10–16.
Sunnud. kl. 12–16