Morgunblaðið - 21.03.2019, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 21.03.2019, Blaðsíða 51
DÆGRADVÖL 51 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MARS 2019 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Allt sem viðkemur heimili þínu og fjölskyldu ætti að blómstra á næstunni. Hugsanlegt er að einhver bjóði þér í ferða- lag. 20. apríl - 20. maí  Naut Láttu ekki aðra þurfa að velkjast í vafa um meiningar þínar. Ef þú sýnir tillitssemi munu aðrir hlusta á þig. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er margt að gerast í kringum þig og þú mátt hafa þig alla/n við til að straumurinn hrífi þig ekki með sér. Settu markið hátt, þú getur allt sem þú vilt. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú þarft að hrista af þér ýmsar venj- ur sem falla ekki að því lífi sem þig langar til þess að lifa. Gefðu þér tíma til að njóta feg- urðar náttúrunnar með þínum nánustu. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Nú verður þú að hrökkva eða stökkva því ekkert annað getur þokað málum þínum áfram. Stattu svo fast á þínu. Vertu því var- kár í umgengni þinni við aðra. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Peningum sem þú eyðir í dag til að fegra heimilið er vel varið. Láttu af allri gagnrýni á aðra og líttu í eigin barm. 23. sept. - 22. okt.  Vog Gerðu eitthvað sem er óvenjulegt og ólíkt því sem þú hefur áður tekið þér fyrir hendur. Ekki reyna að fá makann til að skipta um skoðun í deilumáli ykkar á milli. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Fátt er skemmtilegra en góðar stundir í faðmi fjölskyldunnar. Losaðu þig við allt það sem þú þarft ekki lengur á að halda. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú átt auðvelt með að hrífa fólk með þér og því ert þú oft í skemmtinefnd fyrirtækisins. Þú saknar stundum gömlu góðu daganna þegar engar skyldur hvíldu á þér. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þetta er góður dagur til félagslífs, sérstaklega til að leika sér við börn. Nú er allt að falla í ljúfa löð í ástarsambandinu. Einhver ský sjást þó enn á himni. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Af hverju ertu dapur/döpur? Það er ástæðulaust því nú er rétti tíminn til að láta slag standa og taka áhættu. Ekki vera hissa þó einhver vilji kynnast þér. Þú hefur svo margt til brunns að bera, trúðu á þig. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er erfitt fyrir þig að gera þér upp áhuga þegar þú hefur hann ekki. Gagnrýni er holl, en við erum flest að reyna að gera eins vel og við getum. Taktu til í geymslunni, það léttir á sálartetrinu. Frumburður Víkverja varð þriggja ára á dögunum. Er það svo sem ekki í frásögur færandi en þegar Víkverji spurði prinsinn hvernig honum liði að vera orðinn þriggja ára svaraði sá stutti um hæl: „Ég er svolítið smeykur!“ Smeykur? Fyrst velti Víkverji fyrir sér hvar snáðinn hefði lært það orð en grunar hann Sigga þarna sem liggur alltaf úti með ærn- ar í haganum um að bera þar höfuð- ábyrgð. x x x En af hverju var hann smeykur?„Ég er orðinn svo gamall!“ Vík- verji gat varla annað en hlegið ögn að einlægninni sem fylgdi þessum orðum. Vonandi er æskudýrkun samfélagsins ekki ennþá orðin svo ofboðslega mikil að menn teljist vera komnir af léttasta skeiði þegar þeir eru orðnir þriggja ára. x x x Eða hvað veit maður? Er ekki alltafverið að gera kröfu um að fólk sé helst bara ekkert að eldast, ef það komist hjá því, heldur skelli á sig alls kyns hrukkukremum og fegrunar- meðölum til að viðhalda æskuljóm- anum dýrmæta. Vonandi kemur Víkverji ekki að stráknum sínum næst með maskara og gúrkur á aug- unum. x x x Þá um leið fór smá hrollur um Vík-verja, því hann á allavegana engan séns, orðinn kortér í mið- aldra, ef það að vera þriggja telst allt í einu vera gamall. Víkverji hlýt- ur á þeim mælikvarða að vera bara hálfgerður steingervingur. Gott ef hann er ekki farinn að finna fyrir smá liðagigt. x x x Ætli það sé samt ekki einhversvona upplifun sem fleygir mönnum á aldri Víkverja út í það að fara allt í einu að lita á sér hárið, ef þeir hafa það þá enn, eða kaupa sér skellinöðru eða rafmagnsbassa upp úr þurru? Svona áminning um að kannski er maður sjálfur ekki alveg enn þá með „það“ ef maður var það þá nokkurn tímann og að nú sé síð- asti sénsinn til að bæta úr því? Hmm. Kannski Víkverji skelli sér á smáhrukkukrem. vikverji@mbl.is Víkverji Í þínar hendur fel ég anda minn, þú frelsar mig, Drottinn, þú trúfasti Guð! (Sálm 31:6) A U G N V Í T A M Í N Fæst í öllum helstu apótekum www.provision.is Augnþurrkur er algengt vandamál. Viteyes Tear support vítamín inniheldur öll gæðavítamín og olíur til að uppfylla daglegar þarfir fyrir heilbrigða tárafilmu. Einnig gott sem fyrirbyggjandi vítamín fyrir augun. Nýtt Jón Ingvar Jónsson yrkir „Argastaleir“ og birtir á Boðnarmiði: Sjálfa 1. Ég hef alveg afleit gen enda fól og glanni, rætinn, þver og illgjarn en annars gull af manni. Sjálfa 2. Æ, mig langar inn á Vog, er það nokkur vegur? Vera gegn og góður og guði þóknanlegur. Sjálfa 3. Jón er enn á röngu róli, ranglátur og svikull drjóli, á sitt fé í skattaskjóli, skömm er að því ljóti fóli þó að á hann hlaði hóli hefðarkonur uppi í bóli. Hjálmar Jónsson er með á nót- unum: Vissulega grettur, grár og glaðar stundir tregar, en sjálfumyndir, þessar þrjár, þær eru svakalegar. Jón Gissurarson spyr hvort ein- hver á Boðnarmiði viti um höfund að eftirfarandi vísu: Þar til klukkan telur tólf teygjast læt ég vöku og þá stundum geng um gólf, geri marga stöku. Jón lætur þess getið að Guðmund- ur Valtýsson bóndi á Eiríksstöðum í Svartárdal hafi sagt sér að Kári Jónsson frá Valadal hafi oft raulað hana fyrir munni sér þegar hann var á Eiríksstöðum og gekk þar um gólf á kvöldin. Guðmundur segðist ekki vita fyrir víst hvort hún sé eftir Kára, en það gæti þó allt eins verið. Jón segist ekki muna til þess að hafa heyrt Kára fara með vísuna en Kári var föðurbróðir hans. Þór Sigurðsson rifjar upp að Kári í Valadal orti um þrjár heimasætur: Hálffullur um heiminn geng, hendingarnar skýri, margan heillað hefur dreng Hósa á Víðimýri. Síðan fleygnum sýp ég á, sigli leiði búnu, alltaf finn ég ylinn frá Álftagerðis Rúnu. Ástarvímu á mér fann, oft er grínið skrítið, Kári Stínu einni ann ofur pínulítið. Stína var Kristín Pétursdóttir í Vatnshlíð. Enn segir Þór að eftir Kára sé sú vísa, sem oftast er sungin a.m.k. á Norðurlandi er menn koma saman og gleðjast. Vísan sé hins vegar allt- af að breytast og það til hins verra. Rétt er hún svona: Skála og syngja Skagfirðingar, skemmtun vanda og gera hitt. Heyrið, slyngir Húnvetningar, hér er landaglasið mitt. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Sjálfumyndir og misjafnt fólk „HVAÐ MEINARÐU MEÐ „FARÐU ÚT MEÐ HUNDINN”? ÉG GET EKKI HREYFT MIG.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að skilja að lífið verður aldrei eins og áður. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann URRRR… ÉG HATA KETTI! KETTIR GERA MIG STURLAÐAN! OG ÞÚ ERT VIRKILEGA GÓÐUR Í ÞVÍ! MÍN ER ÁNÆGJAN EKKI VEIT ÉG HVERS VEGNA KARLAR DREKKA, EN ÉG VEIT HVÍ KONUR DREKKA! HVÍ DREKKA KARLAR SVONA MIKIÐ? KARLAR!KRÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.