Morgunblaðið - 30.03.2019, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MARS 2019
Dohop leitar að markaðsstjóra félagsins á Íslandi til þess að hjálpa félaginu að vaxa og dafna á íslenska
markaðnum. Markmiðið er að fjölga notendum sem leita að flugi, hótelum og bílaleigubílum og bóka á Dohop.
Einstakt tækifæri fyrir þá sem sem eru tilbúnir að takast á við þær áskoranir sem því fylgja.
Markaðsstjóri
Markaðsstjóri Dohop á Íslandi þarf að:
• Hafa reynslu sem nýtist í starfi, t.d. reynslu af
markaðsmálum hjá netfyrirtæki.
• Hafa gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
• Hafa yfirgripsmikla þekkingu á mælanlegri markaðs-
setningu á netinu og viðeigandi tólum, t.d. Google
Ads, Analytics, Facebook, Twitter o.s.frv.
• Kunna að gera áætlun um mælanlega markaðssetn-
ingu, setja hana fram skilmerkilega í kynningu og
töflureikni, hrinda henni í framkvæmd og hafa vilja og
úthald í að fylgja henni eftir þar til árangri er náð.
• Vera hugmyndaríkur, drifinn, ákafur, fullur eldmóði
og hafa metnað til þess að skara framúr.
• Góð laun eru í boði ásamt frábæru starfsumhverfi.
Umsóknarfrestur er til 8. apríl 2019.
Vinsamlega sendið umsókn ásamt ferilsskrá
á jobs@dohop.com.
Öllum umsóknum verður svarað fyrir 30. apríl 2019.
Nánari upplýsingar veitir Davíð Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Dohop, davidg@dohop.com.
Rafvirkjar
Straumvirki ehf. óskar eftir að ráða rafvirkja
eða rafvirkjanema til starfa.
Framtíðarvinna. Næg verkefni framundan.
Vinsamlega sendið umsókn og upplýsingar
á netfangið straumvirki@simnet.is
Lögfræðingur á sviði
sveitarstjórnar- og byggðamála
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið auglýsir lausa til umsóknar stöðu
lögfræðings á sviði sveitarstjórnar- og byggðamála til afleysinga í eitt ár.
Helstu verkefni eru m.a. vinna við gerð lagafrumvarpa, afgreiðsla stjórn-
sýsluverkefna og umsjón frumkvæðismála gagnvart sveitarfélögum,
umsjón með samningu reglugerða og endurskoðun þeirra, aðkoma
að gerð samninga, þátttaka í starfshópum á verkefnasviði skrifstofunnar,
m.a. varðandi stefnumótun, samskipti við stofnanir, Alþingi og almenning.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Embættis- eða meistarapróf í lögfræði.
• Mjög góð þekking á stjórnsýslurétti.
• Þekking á málefnum sveitarfélaga æskileg.
• Gott vald á íslensku í ræðu og riti og ensku.
• Kunnátta í einu Norðurlandatungumáli kostur.
• Þekking á áætlunargerð æskileg.
• Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt, sem og í hóp.
• Drifkraftur, metnaður og skipulagshæfileikar.
Um er að ræða fullt starf, tímabundið til eins árs. Athygli er vakin á því að
í samræmi við byggðastefnu stjórnvalda er starfið auglýst án staðsetningar.
Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um auglýst starf.
Nánari upplýsingar veitir Guðný E. Ingadóttir, mannauðsstjóri, í síma 545 8200.
Umsóknarfrestur er til mánudagsins 15. apríl nk.
Umsóknum skal skila rafrænt á Starfatorgi
– starfatorg.is. Þar má einnig finna nánari
upplýsingar um starfið.
CONSULAR
ASSISTANT
(summer/part time)
SECURITY GUARD
(summer/full time)
SECURITY GUARD
(permanent/full time)
Sendiráð Bandaríkjanna leitar að einstak-
lingum í tímabundin og framtíðar störf.
Umsóknarfrestur er til 7 apríl, 2019.
Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu
sendiráðsins:
http://is.usembassy.gov/embassy/jobs/
The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking
individuals for temporary and permanent
positions. The closing date for these positi-
ons is April 7, 2019. Application forms and
further information can be found on the
Embassy’s home page: http://is.usem-
bassy.gov/embassy/jobs/
Applications must be submitted through
Electronic Recruitment Application (ERA)
Kópavogsbær auglýsir eftirtalin störf
laus til umsóknar:
kopavogur.is
Grunnskólar
Dönskukennari í Salaskóla
Eðlis- og efnafræðikennari í Salaskóla
Kennarar í Kópavogsskóla
Kennari í nýsköpun og tækni í Salaskóla
Leiklistarkennari í Kársnesskóla
Samfélagsfræðikennari í Salaskóla
Tónmenntakennari í Salaskóla
Umsjónarkennari í Kársnesskóla
Leikskólar
Deildarstjóri í Efstahjalla
Leikskólakennari í Efstahjalla
Sérkennari í heilsuleikskólann Fífusali
Velferðarsvið
Félagsráðgjafi í ráðgjafa- og íbúadeild
Sumarstörf fyrir ungmenni með fötlun
Eingöngu er hægt að sækja um störfin í
gegnum ráðningarvef Kópavogsbæjar.
Laus störf
hjá Kópavogsbæ
Sérfræðingar í ráðningum
lind@fastradningar.is
mjoll@fastradningar.is
FAST
Ráðningar
www.fastradningar.is