Morgunblaðið - 06.04.2019, Side 1
L A U G A R D A G U R 6. A P R Í L 2 0 1 9
Stofnað 1913 82. tölublað 107. árgangur
VIÐ ERUM
ENN AÐ SEGJA
SVIPAÐAR SÖGUR
NÁTTÚRU-
ELEMENT Í
VERKUNUM
FRUMEFNI NÁTTÚRUNNAR 46ÞJÓÐSÖGURNAR 14
Síðumúla 30 Reykjavík | Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
-
30%
AFSLÁTTUR
AF FERMINGARRÚMUM
Engholm sængurver að
eigin vali fylgir með hverju
seldu fermingarrúmi.
Falleg
fermingarrúm
Níu vegaframkvæmdir eru á lista
um flýtiframkvæmdir sem starfs-
hópur um fjármögnun samgöngu-
framkvæmda hefur reiknað út að
séu arðbærastar. Framkvæmdirnar
eru út frá höfuðborgarsvæðinu, á
Suðurlandsvegi austur fyrir Sel-
foss, Reykjanesbraut að Flugstöð
og Vesturlandsvegi upp í Borg-
arnes, auk Grindavíkurvegar.
Allra arðbærustu framkvæmd-
irnar eru flýting lagningar Suður-
landsvegar frá Norðlingaholti að
Fossvöllum og Suðurlandsvegar á
milli Kamba og gatnamóta Bisk-
upstungnabrautar. »6
Morgunblaðið/Ómar
Teppa Mikil umferð er um Suðurlandsveg
á annatímum og oft umferðarteppur.
Arðbærast að flýta
Suðurlandsvegi
Flestir at-
vinnubílstjórar
nefna ójafnan
akstur sem
helsta vanda-
málið í umferð-
inni á þjóðvegi 1
á leiðinni milli
Reykjavíkur og
Akureyrar.
Meirihluti nefnir einnig stopp bíla á
hættulegum stöðum, glæfralegan
framúrakstur, farsímanotkun,
hraðakstur og umferð hjólreiða-
fólks. Þetta sýnir könnun Háskól-
ans á Akureyri. »26
Ójafn akstur vanda-
mál á þjóðvegi 1
Í sunnudagsblaði Morgunblaðsins
er fylgst með ferðalagi íslenskrar
konu til Svíþjóðar þar sem hún
gekkst undir liðskiptaaðgerð, en í
heilt ár hafði hún haltrað um,
óvinnufær og kvalin. Mjöðmin var
ónýt og þurfti hún nýja og eftir að
hafa reynt til þrautar að komast í
aðgerð á Landspítalanum var
ákveðið að halda út fyrir landstein-
ana í aðgerð. »8 og Sunnudagur
Haltraði um óvinnu-
fær og kvalin í ár
Peysufatadagurinn var haldinn hátíðlegur í
Kvennaskólanum í gær. Veðrið lék við alla við-
stadda sem settu svip á bæinn í þjóðlegum bún-
ingum. Dagurinn einkenndist af dansi og söng
og tóku nemendur sporið m.a. á Droplaugar-
stöðum, Grund, Ingólfstorgi og í porti Miðbæj-
arskólans. Löng hefð er fyrir peysufatadeginum.
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur skrifaði
í gær á veðurvefinn Bliku (blika.is) að vorkoman
yrði hæg en ákveðin næstu tvær vikur. Ekkert
útlit er fyrir hret. Vissulega verða tíð næturfrost
og engin leysing „en sólin á hins vegar eftir að
skína glatt og ylja að deginum þar sem fyrir-
stöðuhæð kemur sér fyrir á hentugum stað. Það
eitt eru nokkur tíðindi!“ Einar birti kort sem
sýnir hvar hæðin tekur sér bólfestu norðaustur
af landinu og heldur lægðunum frá. Braut þeirra
liggur langt í suðri með vætutíð í Frakklandi og
á Íberíuskaganum. Hér verður sæmilega milt
meðan sólar nýtur að deginum, en næturfrost
tíð, a.m.k. fram í miðja vikuna.
Morgunblaðið/Eggert
Pilsaþytur í borginni og vorið kemur hægt en ákveðið
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ásmundur Einar Daðason, félags- og
barnamálaráðherra, segir hugmyndir
um eiginfjárlán ríkisins til íbúða-
kaupa verða skoðaðar með lagasetn-
ingu í huga. Slík lán geti stutt tekju-
lága á markaðnum.
Þá verði hugmyndir um ráðstöfun
skattfrjáls lífeyrisiðgjalds skoðaðar
til að styðja tekjulága og fyrstu kaup-
endur við kaup á húsnæði. Ráðstöfun
séreignar verði mögulega útvíkkuð
svo hún nái til fjölmennari hóps.
Starfshópur á vegum ráðherrans
hefur skilað 14 tillögum um hvernig
lækka megi þröskuld ungs fólks og
tekjulágra inn á húsnæðismarkað.
Markaðurinn brást tekjulágum
Ásmundur Einar segir tvær áður-
nefndar tillögur verða útfærðar nán-
ar en hinar 12 skoðaðar betur.
Hann segir aðspurður að markað-
urinn hafi brugðist tekjulágum.
Með bættri áætlanagerð á vegum
nýrrar húsnæðisstofnunar megi
stuðla að betra jafnvægi milli fram-
boðs og eftirspurnar. Þá geti stuðn-
ingur við íbúðakaup gert mörgum
kleift að fara af leigumarkaði.
Horft til reynslu Breta
Frosti Sigurjónsson, rekstrarhag-
fræðingur, segir eiginfjárlán geta
hraðað eignamyndun. Þau komi til
viðbótar lánum frá banka. Við sölu
íbúðar, eða að 25 árum liðnum, sé eig-
infjárlánið greitt til baka.
Reynsla Breta af slíkum lánum sé
góð og bendi til að þau hafi lítil áhrif á
íbúðaverð. Þá sé útfærslan ekki
tæknilega flókin og til að mynda vel á
færi Íbúðalánasjóðs. »4
Ríkið styðji við íbúðakaup
Félagsmálaráðherra segir nýja gerð lána, eiginfjárlán, geta hjálpað tekjulágum
6-8 þúsund íbúðir
» Ragnar Þór Ingólfsson, for-
maður VR, sagði í ræðu er til-
lögur starfshópsins voru
kynntar að vonir væru bundnar
við nýtt húsnæðisfélag.
» Það heitir Blær og sagði
Ragnar Þór rætt um að félagið
gæti mögulega byggt 6-8 þús-
und íbúðir á 10-15 árum.