Morgunblaðið - 06.04.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2019
MIÐJARÐARHAFIÐ
INDEPENDENCE OF THE SEAS
1.–13. SEPTEMBER
ÚRVAL ÚTSÝN | HLÍÐASMÁRA 19 | 201 KÓPAVOGI | 585 4000 | UU.IS
VERÐ FRÁ 345.900 KR.
NÁNAR Á URVALUTSYN.IS
EÐA Í SÍMA 585 4000
LILJA SIGURÐARDÓTTIR
FARARSTJÓRI
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Arðbærast er að flýta lagningu Suð-
urlandsvegar frá Norðlingaholti að
Fossvöllum og á milli Kamba og Ölf-
usár, af þeim framkvæmdum sem
starfshópur um fjármögnun sam-
göngukerfisins kannaði. Hópurinn
listaði upp níu framkvæmdir á Suð-
urlandsvegi, Reykjanesbraut/
Grindavíkurvegi og Vesturlandsvegi
sem hagkvæmast væri að flýta fram-
kvæmdum á með tilliti til öryggis,
umferðar og þjóðhagslegs ábata.
Eyjólfur Árni Rafnsson, verk-
fræðingur og formaður starfshóps-
ins, afhenti Sigurði Inga Jóhanns-
syni samgönguráðherra tillögurnar í
gær.
Mikil þörf á framkvæmdum
Í skýrslunni kemur fram að álag á
vegi landsins hefur aukist mikið á
undanförnum árum, meðal annars
vegna fjölgunar ferðamanna, en
framlög til vegagerðar verið lág. Því
hafi skapast þörf fyrir viðhald og ný-
framkvæmdir. Vegagerðin telur
nauðsynlegt að fara í um 200 verk-
efni á næsta aldarfjórðungi sem
áætlað er að kosti yfir 400 milljarða
króna. Þó gert sé ráð fyrir auknu
fjármagni í gildandi fjármálaáætlun
dugi það ekki til og þurfi að finna
leiðir til að fjármagna og forgangs-
raða framkvæmdum og flýta eins og
kostur er.
Tillögur hópsins um flýtifram-
kvæmdir má sjá á meðfylgjandi
korti. Gert er ráð fyrir að þær kosti
40 milljónir á næstu 7 árum. Þó að
margar arðbærustu framkvæmd-
irnar séu innan höfuðborgarsvæð-
isins eru þær undanskildar. Unnið
er sérstaklega að undirbúningi
þeirra verkefna á vegum stjórnvalda
og sveitarfélaganna á höfuðborg-
arsvæðinu.
Starfshópurinn telur æskilegast
að fjármagna flýtiframkvæmdir með
viðbótar-ríkisútgjöldum eða breyttri
forgangsröðun í ríkisútgjöldum. Sú
leið er talin hagkvæmari fyrir ríkið
en aðrir kostir vegna lægri fjár-
magnskostnaðar.
Lagt er til að hugmyndir um veg-
gjöld vegna einstakra framkvæmda
verði þróaðar áfram. Reynist ekki
unnt að fjármagna flýtifram-
kvæmdir með ríkisfé leggur starfs-
hópurinn til að stofnað verði op-
inbert hlutafélag sem sjái um
framkvæmdir, lántökur og inn-
heimtu veggjalda að framkvæmdum
loknum.
Bent er á að samvinnuverkefni
ríkis og einkaframtaks henti vel í
stórum og vel skilgreindum nýfram-
kvæmdum. Sundabraut og tvöföldun
Hvalfjarðargagna eru nefnd sem
dæmi um slíkt.
Starfshópurinn leggur til að gjald-
taka af umferð til að standa undir
kostnaði við flýtiframkvæmdir mið-
ist við hverja framkvæmd fyrir sig
og gjald sé í samræmi við kostnað
þeirra framkvæmdar. Innheimt
gjald á einum stað verði ekki notað
til að standa undir framkvæmdum á
öðrum stað. Lagt er til að við slíka
sérstaka gjaldtöku af einstökum
framkvæmdum hefjist innheimta
ekki fyrr en í lok framkvæmda, þeg-
ar opnað er fyrir umferð.
Ríkisfé til flýtiframkvæmda
Starfshópur leggur til að framkvæmdum við níu vegakafla verði flýtt Suðurlandsvegur
hagkvæmastur Verði veggjöld innheimt megi aðeins nota þau í viðkomandi framkvæmd
Morgunblaðið/Eggert
Tillögur Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður starfshóps um fjármögnun samgöngukerfisins, og Sigurður Ingi Jó-
hannsson samgönguráðherra með skýrslu sem inniheldur tillögur um fjármögnun flýtiframkvæmda.
Hugsanlegar
flýtifram-
kvæmdir
Heimild: Samgöngu- og
sveitarstjórnarráðuneytið
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við vildum auðvitað sjá þetta burt
en reglurnar hafa í það minnsta
verið rýmkaðar. Þetta er skref í
rétta átt og kannski náum við þessu
út næst,“ segir Björn Snæbjörns-
son, formaður Starfsgreinasam-
bandsins.
Reglur um svokallað fullorðins-
kaup verða rýmkaðar í nýjum
kjarasamningum SGS við SA, verði
þeir samþykktir. Fram til þessa
hefur fullorðinskaup verið miðað við
20 ár eða að viðkomandi hafi þurft
að vinna 700 klukkustundir til að
komast á fullt kaup. Að sögn Björns
breytast ákvæði um þetta á þann
veg að miðað verði við 18 ára aldur
eða skila þurfi 300 tímum hjá at-
vinnurekanda eða 500 tímum í
starfsgrein til að komast á fullt
kaup. Launin á þeim tíma eru 95%.
Björn segir að fleiri ánægjulegir
áfangar hafi náðst við gerð kjara-
samninganna. Til að mynda rýmri
veikindaréttur foreldra. Fram til
þessa hefur veikindaréttur vegna
barna miðast við 13 ára aldur en í
nýju samningunum færist hann upp
að 16 árum. „Þarna er verið að laga
stöðuna fyrir barnafólk þegar það
lendir í alvarlegum veikindum. Það
var enginn réttur fyrir foreldra 14-
15 ára þegar börnin lentu til að
mynda inni á spítala. Nú getur fólk
nýtt sína daga. Þetta mun hjálpa
mörgum,“ segir Björn.
Hann segir að eina breytingin á
launaflokkum í nýjum kjarasamn-
ingum hafi verið hjá fólki sem starf-
ar við ræstingu. „Þetta hefur verið
mikið baráttumál innan Starfs-
greinasambandsins enda er mikið
álag á fólki sem starfar við ræst-
ingar. Það hækkar um tvo launa-
flokka. Þetta er dæmi um þá vinnu
sem menn voru að vinna í þessum
samningum. Þetta var einn sigurinn
okkar.“
„Opnari og sveigjanlegri“
Félag atvinnurekenda skrifaði í
gær undir kjarasamning við VR og
Landssamband íslenskra verslunar-
manna. Samningurinn gildir til 1.
nóvember 2022 og er í öllum meg-
inatriðum samsvarandi lífskjara-
samningi VR og Samtaka atvinnu-
lífsins hvað varðar launa- og
vinnutímabreytingar, að því er segir
í tilkynningu. Þar segir þó að samn-
ingur FA sé opnari og sveigjanlegri.
Skilgreining dagvinnutímabils sé til
að mynda mun rýmri en í samningi
VR/LÍV og SA. Vinna megi umsam-
inn hámarksdagvinnutíma sam-
kvæmt samningnum hvenær sem er
á tímabilinu frá kl. 7 til kl. 19.
Morgunblaðið/Hari
Skrifað undir Í lífskjarasamningnum eru rýmkuð réttindi ungs fólks á
vinnumarkaði og veikindaréttur. Ræstingafólk hækkar um tvo launaflokka.
Veikindaréttur rýmkaður
Ræstingafólk
hækkar um tvo
launaflokka
Sigurður Ingi
Jóhannsson
samgöngu-
ráðherra segir
að skýrsla
starfshóps um
fjármögnun
samgöngu-
framkvæmda
verði tekin til
skoðunar í
ráðuneytinu. Hann bendir á að
nýlega hafi verið samþykkt
samgönguáætlun og fjármála
áætlun og verið sé að ljúka sam-
komulagi við Samtök sveitarfé-
laga á höfuðborgarsvæðinu um
framkvæmdapakka upp á um
100 milljónir króna á næstu 15
árum. „Allt þetta verður tekið
saman og notað við endur-
skoðun samgönguáætlunar sem
lögð verður fyrir þingið í haust,“
segir Sigurður Ingi.
Gert var ráð fyrir þeim mögu-
leika í samgönguáætlun að
stofna opinbert hlutafélag til að
innheimta veggjöld og fjár-
magna vegaframkvæmdir. Sig-
urður Ingi segir að sá kostur sé
ekki útilokaður, eftir að fram-
kvæmdum er lokið, þótt starfs-
hópurinn telji æskilegra að
flýtiframkvæmdir verði fjár-
magnaðar beint af ríkinu.
Ráðherra bendir á að vegna
orkuskipta í samgöngumálum
lækki hratt á komandi árum þau
gjöld á bensín og dísilolíu sem
varið er til vegaframkvæmda.
Starfshópurinn tók ekki á þeim
hlutum og vísaði málinu aftur
til stjórnvalda til útfærslu.
Tekið upp við
endurskoðun
áætlunar
SAMGÖNGURÁÐHERRA
Sigurður Ingi
Jóhannsson