Morgunblaðið - 06.04.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2019
Ásakanir eru af ýmsum toga ogeins og kunnugt er þá eru
Staksteinar hrifnastir af duldum
ásökunum þar sem enginn veit um
hvað verið er að tala eða yfirleitt
hvort nokkuð hefur verið sagt. Mik-
ilverðast
er að les-
endur lesi
á milli lín-
anna en
séu ekki að bögglast við að stauta
sig í gegnum stafi á blaði.
Þess vegna taka Staksteinar und-ir að hneykslanlegt er að í um-
fjöllun innri endurskoðunar um
nokkur framúrkeyrslumál borg-
arinnar skuli blasa við „fremur
ódulin ásökun í garð“ stjórnenda
hjá borginni eins og einn stjórnandi
hjá borginni orðar það í at-
hugasemd sinni.
Auðvitað gengur ekki, án þessauðvitað að Staksteinar vilji
taka of sterkt til orða, að innri end-
urskoðun borgarinnar skuli ekki
fela það betur í skýrslu sinni að
fjármálastjórn borgarinnar sé í
ólestri og að kostnaðaráætlanir
standist ekki.
Afar mikilvægt er þegar óreiðaní rekstri borgarinnar er gagn-
rýnd að þá sé það gert á þann hátt
að gagnrýnin dyljist sem flestum
þeirra sem hana lesa.
Og vissulega er alvarlegt að sjálfinnri endurskoðun borg-
arinnar skuli ekki átta sig á þessu.
En hvað má þá segja um þá „óduldu
ásökun“ stjórnenda borgarinnar
sem fram kemur á „ódulda ásökun“
innri endurskoðunar?
Staksteinar telja að sú ásökun séafar glannaleg og vara ein-
dregið við að almennir borgarar
reyni að lesa þar á milli línanna.
„Fremur
ódulin ásökun“
STAKSTEINAR
sp
ör
eh
f.
Sumar 10
La Dolce Vita, eða hið ljúfa líf, á vel við þessa ferð um
ítölsku og frönsku rivíerurnar. Skemmtilegt samspil töfrandi
skoðunarferða, slökunar og rólegheita er rauði þráðurinn
í þessari glæsilegu og ljúfu ferð. Ferðin byrjar og endar
í Mílanó og verður m.a. farið til Mónakó, Nice við Côte
d’Azur og fetað í fótspor kvikmyndastjarnanna í Cannes.
15. - 24. júní
Fararstjóri: Hólmfríður Bjarnadóttir
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Verð: 268.600 kr. á mann í tvíbýli. ÖRFÁ SÆTI LAUS
Mjög mikið innifalið!
Ítalska rivíeran
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
„Mótið er afar mikilvægt fyrir ís-
lenskt skáklíf og hefur verið flagg-
skip þess síðan framsýnir menn héldu
fyrsta Reykjavíkurskákmótið í Lídó
árið 1964. Mótið er afar vinsælt og
hátt skrifað úti í
hinum stóra heimi
og hefur síðustu
ár lent í 2.-4. sæti
yfir besta opna
skákmót heims í
vali atvinnuskák-
manna,“ segir
Gunnar Björns-
son, forseti Skák-
sambands Ís-
lands, um
Reykjavíkurskákmótið 2019 sem
hefst í Hörpu kl. 15 á mánudaginn og
stendur til 16. apríl.
Mótið verður að þessu sinni til-
einkað minningu Stefáns Kristjáns-
sonar stórmeistara, sem lést langt
fyrir aldur fram í fyrra.
Sérstakur heiðursgestur mótsins
er nýr forseti FIDE, hinn rússneski
Arkady Dvorkovich. Sá var um tíma
aðstoðarforsætisráðherra Rússlands
og var formaður undirbúnings-
nefndar um HM í fótbolta í Rússlandi
í fyrra.
Um 250 manns frá 40 löndum eru
skráðir til leiks á mótið, þar af 33
stórmeistarar. Fjórir íslenskir stór-
meistarar taka þátt í mótinu. Það eru
Hjörvar Steinn Grétarsson, stiga-
hæsti skákmaður landsins, Hannes
Hlífar Stefánsson, sigursælasti kepp-
andinn í sögu Reykjavíkur-
skákmótanna, Jóhann Hjartarson,
sem hefur náð lengst allra íslenskra
skákmanna á heimsvísu ásamt Frið-
riki Ólafssyni, og nýjasti stórmeistari
okkar Íslendinga, Bragi Þorfinnsson.
Stórmeistari kvenna, Lenka
Ptácníková, fer fremst í heimavarn-
arliði íslenskra skákkvenna. Stiga-
hæstur keppenda er enski stórmeist-
arinn Gawain Jones. Indverska
undrabarnið Dommaraju Gukesh
teflir í fyrsta skipti á Reykjavíkur-
skákmóti. Í janúar síðastliðnum varð
hann næstyngsti stórmeistari sög-
unnar, 12 ára gamall. Aðeins Sergei
Karjakin varð stórmeistari yngri.
Margar eftirtektarverðar skákkon-
ur taka þátt í mótinu. Þeirra kunnust
hérlendis er án efa hin indverska
Tanja Sachdev sem sló eftirminnilega
í gegn árið 2016. Margar ungar og ís-
lenskar setja einnig svip á mótið. »
Skák 29
Reykjavíkurmótið afar mik-
ilvægt fyrir skáklíf á Íslandi
Gunnar Björnsson
Heiðursgestur Andrei Dvorkovich, forseti FIDE, fyrrverandi aðstoðar-
forsætisráðherra Rússlands, er sérstakur gestur Reykjavíkurskákmótsins.
Heilbrigðisráðuneytið hefur ákveðið að setja lið-
skiptaaðgerðir, augasteinsaðgerðir, tilteknar
kvenlíffæraaðgerðir og brennsluaðgerðir vegna
gáttatifs í forgang við ráðstöfun 840 milljóna króna
sem ætlaðar eru til að stytta bið sjúklinga eftir
mikilvægum aðgerðum. Þetta kemur fram í til-
kynningu heilbrigðisráðuneytisins á vef stjórnar-
ráðsins.
Þetta eru sömu aðgerðaflokkarnir og settir voru
í forgang samkvæmt mati Embættis landlæknis í
sérstöku biðlistaátaki til þriggja ára sem lauk á síð-
asta ári. Landspítalinn, Sjúkrahúsið á Akureyri og
Heilbrigðisstofnun Vesturlands munu taka að sér
að sinna fleiri aðgerðum en þau myndu gera að öllu
óbreyttu, með þeim fjármunum sem sérstaklega
eru ætlaðir í þessu skyni. Alls munu stofnanirnar
þrjár framkvæma um 570 liðskiptaaðgerðir um-
fram þann aðgerðafjölda sem þær hefðu annars
sinnt án sérstaks fjárframlags. Af þeim verða 250
gerðar á Landspítalanum, 250 á Sjúkrahúsinu á
Akureyri og 70 á Heilbrigðisstofnun Vesturlands.
Augasteinsaðgerðir verða 1.300 fleiri en ella.
Fjölgunin þessara aðgerða er fyrst og fremst hjá
Landspítalanum sem mun sinna 1.200 aðgerðum.
Við Landspítalann verður völdum aðgerðum á
grindarbotnslíffærum kvenna fjölgað um 80, 28 að-
gerðum við Sjúkrahúsið á Akureyri og 29 við Heil-
brigðisstofnun Vesturlands. mhj@mbl.is
Forgangsaðgerðir til að stytta bið
Aðgerðir til að stytta bið sjúklinga
» 840 milljónir settar í forgangsaðgerðir.
» 1.300 fleiri augasteinsaðgerðir.
» Þar af 1.200 á Landspítalanum.
» Um 570 fleiri liðskiptaaðgerðir.
» Þar af verða 250 gerðar á Landspít-
alanum, 250 á Sjúkrahúsinu á Akureyri og
70 á Heilbrigðisstofnun Vesturlands.