Morgunblaðið - 06.04.2019, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2019
Verið velkomin í glæsilega sýningaríbúð
Guðbjörg Guðmundsdóttir
löggiltur fasteignasali
gudbjorg@manalind.is
sími: 899 5533
Thelma Víglundsdóttir,
löggiltur fasteignasali
thelma@manalind.is
sími: 860 4700
Sölusýning Breiðakur 2-4 Garðabæ
Nýjar þriggja og fjögurra herbergja íbúðir
Glæsilegt nýtt, átta íbúða, fjölbýli með lyftu í vinsælu hverfi í Garðabæ.
Íbúðir afhendast fullbúnar án gólfefna.
Stærðir frá 122- 138 fm verð frá 63.9 millj.
Öllum íbúðum fylgja rúmgóð stæði í lokaðri bílageymslu.
Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar.
www.manalind.is Lágmúla 6 sími 511 1020
Laugardaginn 6. apríl frá 14:00-15:00
Sunnudaginn 7. apríl frá 14:00-15:00
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Mikill áhugi er meðal framhalds-
skólanema á að boðið sé upp á
ókeypis sálfræðiþjónustu innan
veggja skólanna. Kjósa þeir frekar
að geta haft aðgang að slíkri þjón-
ustu í skólanum en á heilsugæslu-
stöðvum. Lítill áhugi er á sálfræði-
þjónustu í gegnum netið, nemendur
kjósa frekar persónuleg samtöl við
sálfræðinga. Margir nemendur vita
ekki hvort sálfræðiþjónusta er í boði
innan skólans og bæta þarf upplýs-
ingagjöf um sálfræðiþjónustu í
framhaldsskólum. Þetta er meðal
niðurstaðna skoðanakönnunar sem
gerð var meðal framhaldsskólanema
hér á landi í síðasta mánuði.
Átta þúsund svöruðu
Samkvæmt upplýsingum frá
Gunnhildi Fríðu Hallgrímsdóttur,
formanni framkvæmdastjórnar
Sambands íslenskra framhalds-
skólanema, var könnunin lögð fyrir
á tveggja vikna tímabili í 24 fram-
haldsskólum í gegnum Innu,
kennslu- og upplýsingakerfi í skól-
unum. Alls svöruðu í kringum átta
þúsund manns könnuninni og þessa
dagana er verið að vinna úr niður-
stöðunum. Þær verða birtar í heild
sinni á næstu vikum. Könnunin var
gerð í samvinnu við mennta- og
menningarmálaráðuneytið og heil-
brigðisráðuneytið.
Hlúa þarf að geðheilsu
framhaldsskólanema
Meðal þess sem spurt var um, að
sögn Gunnhildar, var hvort viðkom-
andi hefði nýtt sér þjónustu sálfræð-
ings, hvort áhugi væri fyrir að nýta
slíka þjónustu, hvort fýsilegra væri
að slík þjónusta væri innan skólans
eða á heilsugæslustöðvum, og hvort
áhugi væri á sálfræðiþjónustu í
gegnum netið.
„Það er ekki mikill áhugi á sál-
fræðiþjónustu í gegnum netið. Það
bendir til þess að fólk sé líka að leita
sér að manneskju til að tala við,
enda hafa ekki allir aðgang að því
heima. Samkvæmt könnuninni vilja
nemendur frekar fá sálfræðiþjón-
ustu inni í skólunum en á heilsu-
gæslunni. Þeir vilja hafa þetta í nær-
umhverfinu og finnst greinilega
erfiðara að labba inn á heilsugæslu-
stöð,“ segir Gunnhildur.
Hún segir töluvert vanta upp á
framhaldsskólar meti geðræn
vandamál sem alvöruveikindi. Tölur
um brottfall vegna geðrænna vanda-
mál og brota á mætingarreglum sýni
þó þörfina fyrir að betur sé hlúð að
geðheilsu nemenda.
„Þetta er orðið miklu minna tabú
en það var en engu að síður kemur í
ljós í könnuninni að margir vissu
ekki af sálfræðiþjónustu í sínum
skóla eða töldu hana fyrir hendi þeg-
ar svo var ekki.“
Gunnhildur segir að Samband ís-
lenskra framhaldsskólanema hafi
barist fyrir því að sálfræðiþjónusta
verði aðgengileg í öllum skólum síð-
ustu ár. Það sé hluti af forvörnum að
slík þjónusta sé til staðar. Ef nem-
endur þurfi á víðtækri meðferð að
halda geti hún farið fram á heilsu-
gæslustöðvum eða á stofum sálfræð-
inga. „Það þarf að taka þetta skref.
Að kalla þetta neyðarástand er vægt
til orða tekið.“
Þörf á öflugri stoðþjónustu
Síðustu þrjú ár hefur verið til-
raunaverkefni í gangi í MH þar sem
boðið hefur verið upp á ókeypis sál-
fræðiþjónustu. Bóas Valdórsson sál-
fræðingur hefur starfað þar við góð-
an orðstír. „Það er áhugi og vilji til
að halda þessari vinnu áfram enda
hefur verið mikil ánægja með þetta
framtak,“ segir Bóas í samtali við
Morgunblaðið. „Ég tel að huga þurfi
sérstaklega að því að tryggja fjár-
magn í stoðþjónustu í menntaskóla.
Nemendur á menntaskólaaldri
þurfa á stuðningi að halda. Það er
þörf á því að veita öfluga stoðþjón-
ustu í menntaskólum ef við ætlum að
viðhalda öflugu menntakerfi og
draga úr brottfalli. Öflug stoðþjón-
usta kallar á skólasálfræðing, náms-
ráðgjafa og sérkennara.“
Hann segir að ekki hafi verið mót-
uð afgerandi stefna um sálfræði-
þjónustu í öllum framhaldsskólum
eða hjá ráðuneytinu. „Staðan í dag
er misjöfn eftir skólum. Það eru þó
nokkrir framhaldsskólar sem bjóða
upp á sálfræðiþjónustu í skólanum
og annars staðar hafa þeir aðgengi
að slíkri þjónustu. Þessi þjónusta er
mjög ólík að umfangi og í áherslum.
Það hefur ekki verið gerð sérstök
úttekt á því hver þörfin er eða
hvernig hún er að þróast. Þeir sál-
fræðingar sem ég er í samskiptum
við segja að eftirspurnin sé mikil og
nemendur nýti þjónustuna vel þegar
hún er í boði.
Ég tel að það sé mikilvægt að
þjónustan sé aðgengileg í nærum-
hverfi nemenda. Sálfræðingar nýt-
ast betur ef þeir starfa inni í skólum
og geta stutt við nemendur í þeirra
umhverfi. Bæði er auðveldara að
nýta sér hana og hún nýtist fleir-
um.“
Erum að berjast við brottfall
Bóas kveðst hafa áhyggjur af því
að fjármögnun fyrir sálfræðiþjón-
ustu í menntaskólum sé ekki tryggð.
Þar standi upp á stjórnvöld því
skólastjórnendur séu oftast vel upp-
lýstir um mikilvægi þessa, að hans
mati.
„Auðvitað þarf að tryggja fjár-
hagslegt svigrúm til að skólar geti
boðið upp á þessa þjónustu. Við er-
um að berjast við brottfall og við
viljum stuðla að ákveðnum forvörn-
um í baráttunni fyrir bættri geð-
heilsu ungmenna hér á landi.“
Vilja sálfræðinga inn í skólana
Ný könnun meðal menntaskólanema sýnir áhuga á ókeypis sálfræðiþjónustu innan veggja skólanna
Ekki verið mótuð stefna hjá stjórnvöldum Mikil ánægja með þriggja ára tilraunaverkefni í MH
Morgunblaðið/Hari
Menntaskóli Nemar vilja aðgang að ókeypis sálfræðiþjónustu í skólum.
Bóas
Valdórsson
Gunnhildur Fríða
Hallgrímsdóttir