Morgunblaðið - 06.04.2019, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2019
sfs.is
Harpa Silfurberg, föstudagur 12. apríl kl. 13:00–15:00
Ávörp:
JensGarðarHelgason
formaður Samtaka fyrirtækja
í sjávarútvegi
KristjánÞór Júlíusson
sjávarútvegsráðherra
Afhendinghvatningarverðlauna
sjávarútvegsins
AfhendingstyrkjaúrRannsóknasjóði
síldarútvegsins
Erindi:
Kolefnisspor sjávarútvegsins – hvernigmá
gera betur?
Birna SigrúnHallsdóttir
umhverfisverkfræðingur hjá Environice
Hafa umhverfismál áhrif á neytendur?
Ólafur Elínarson
sviðsstjóri markaðsrannsókna hjá Gallup
Tækifæri Íslands í breyttumheimi
Pétur Þ.Óskarsson
framkvæmdastjóri Íslandsstofu
Samantekt
Heiðrún LindMarteinsdóttir
framkvæmdastjóri SFS
Fundarstjóri
AgnesGuðmundsdóttir
markaðsstjóri Icelandic Asia og
formaður Félags kvenna í sjávarútvegi
Heilbrigt haf
allra hagur
Ársfundur Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi
Arnar Þór Ingólfsson
arnarth@mbl.is
Sveinn Andri Sveinsson verður
áfram skiptastjóri þrotabús WOW
air. Krafa frá Arion banka um að
hann yrði settur
af var tekin fyrir
á fundi í fyrra-
dag. Niðurstaða
þess fundar var
að Sveinn Andri
yrði áfram
skiptastjóri.
Þetta staðfesti
Símon Sigvalda-
son, dómstjóri
Héraðsdóms
Reykjavíkur, en
RÚV greindi fyrst frá þessu. Símon
segir enn fremur að ef málið haldi
áfram verði það í formi ágreinings-
máls sem þingfest verði sérstaklega.
Arion ætlar að fá úrskurð
Arion banki ætlar að fara með
málið lengra og hyggst bankinn láta
Héraðsdóm Reykjavíkur skera úr
um skipan Sveins Andra með úr-
skurði, samkvæmt því sem Haraldur
Guðni Eiðsson, samskiptastjóri Ar-
ion banka, segir. Hann vill annars
ekkert tjá sig nánar.
Aðfinnslur Arion banka, sem var
viðskiptabanki hins fallna flugfélags
og því að líkindum einn stærsti
kröfuhafi WOW air, lúta að meintu
vanhæfi lögmannsins til þess að af-
greiða kröfur Arion banka sem
skiptastjóri, samkvæmt því sem
fram kom í fjölmiðlum í gærmorgun.
Sveinn
Andri er
skiptastjóri
Arion ósáttur við
skipan skiptastjórans
Sveinn Andri
Sveinsson
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Gunnar Baldvinsson, framkvæmda-
stjóri Almenna Lífeyrissjóðsins, hef-
ur efasemdir um lögfestingu 15,5%
skylduiðgjalds í lífeyrissjóð. En sam-
kvæmt nýkynntum lífskjarasamn-
ingi er stefnt að þeirri lögfestingu.
„Ég er ekki sannfærður um þetta
og hef bent á í ræðu og riti að þegar
iðgjöld eru svona há geta eftirlaun
orðið rífleg auk þess sem svo hátt ið-
gjald veldur því að svigrúm til annars
frjáls sparnaðar minnkar. Að því
gefnu að iðgjald sé 15,5% þá líst mér
vel á að rýmka heimildir til að nýta
3,5% til húsnæðissparnaðar,“ segir
Gunnar í samtali við Morgunblaðið.
Samkvæmt aðgerðaáætlun ríkis-
stjórnarinnar verður komið á heimild
til að ráðstafa 3,5% lífeyrisiðgjalds
skattfrjálsu til húsnæðiskaupa. Sam-
búðarfólk með samtals 650.000 krón-
ur í mánaðarlaun
gæti svo dæmi sé
tekið valið að nýta
273.000 krónur
árlega skatt-
frjálst til öflunar
húsnæðis. Þá er
heimild til að ráð-
stafa séreignar-
sparnaði inn á
íbúðalán fram-
lengd um tvö ár.
„Í fljótu bragði, miðað við það sem
var verið að kynna, sýnist mér úr-
ræðið eiga eingöngu við um kaup á
fyrstu fasteign, en ég hefði viljað
ganga lengra og heimila fólki að nota
sparnaðinn í aðra eða þriðju fasteign
en þá án skattafsláttar,“ segir Gunn-
ar. Hann bendir einnig á að í yfirlýs-
ingu stjórnvalda segir að það eigi að
lögfesta a.m.k. 12% af launum til öfl-
unar réttinda í sameign og allt að
3,5% geti farið til öflunarréttinda í
tilgreinda séregin.
„Þetta er mikil breyting frá núver-
andi lögum og mun leiða til þess að
val einstaklinga um mismunandi leið-
ir til lífeyrissparnaðar minnkar, sem
er miður.“
Aðspurður segir Gunnar það ekki
skipta miklu máli hvort verið sé að
spara með lífeyrissparnaði eða hús-
næðissparnaði.
„Þeir sem eiga húsnæði á eftir-
launum eru kannski að borga minna í
afborganir og vexti eða geta þá
minnkað við sig eignir þegar þeir
fara á eftirlaun. Mín skoðun er ein-
faldlega sú að þeir sem greiða 12%
lágmarksiðgjald í lífeyrissjóði og
nýta sér heimildir til viðbótarlífeyr-
issparnaðar eru nokkuð vel staddir.
Þess vegna finnst mér það góður
kostur, að því gefnu að iðgjaldið sé
15,5% að það séu rýmkaðar heimildir
að nýta þær til húsnæðisssparnað-
ar.“
Efasemdir um hækkun iðgjalda
Lögfesting 15,5% iðgjalda gæti dreg-
ið úr svigrúmi til frjáls sparnaðar
Gunnar
Baldvinsson
Gunnar Bragi
Sveinsson, þing-
flokksformaður
Miðflokksins, er
farinn í leyfi frá
þingstörfum um
ótilgreindan tíma.
Þetta staðfesti
Sigurður Páll
Jónsson, þing-
maður Miðflokks-
ins. Hann sagði
að samflokksmenn Gunnars Braga
hefðu fengið tilkynningu frá honum í
fyrrakvöld. Fréttastofa RÚV hafði
eftir Önnu Kolbrúnu Árnadóttur,
þingmanni Miðflokksins, að ákvörð-
un Gunnars Braga væri af persónu-
legum ástæðum.
Una María Óskarsdóttir, vara-
þingmaður Miðflokksins, mun leysa
Gunnar Braga af og taka til starfa á
mánudag. Hún sagði að samband
hefði verið haft við hana í fyrrakvöld
vegna þessa. gso@mbl.is
Gunnar Bragi
í leyfi um ótil-
greindan tíma
Gunnar Bragi
Sveinsson