Morgunblaðið - 06.04.2019, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2019
Tjarnargata 4, 3. hæð | Sími 546 1100 | investis@investis.is | www.investis.is
Fyrirtæki til sölu
• Ferðaþjónustufyrirtæki í Reykjavík, á Suðurlandi og Austurlandi, fjölbreytt
þjónusta með góða afkomu
• Fremsti Fish´nChips veitingastaður landsins. Stöðug sala og góð afkoma á
besta stað í bænum
• Öflugt fyrirtæki í bílaréttingum og bílasprautun. Fastir samningar við
öfluga viðskiptavini
• Sérverslanir á Laugavegi og í Smáralind, vel þekkt merki með langa
viðskiptasögu
• Tvö gistihús í miðbænum með langa viðskiptasögu og góð meðmæli á netinu
• Leigusamningur að veitingastað í vesturbænum, nálægt miðbænum,
stöðug velta og flottar innréttingar/tækjabúnaður
Ráðgjafar / eigendur
Haukur Þór Hauksson, Rekstrarhagfræðingur, MBA
Gsm. 8939855
Thomas Möller, Hagverkfræðingur, MBA
Gsm. 8939370
Opið hús mánudaginn 8. apríl
milli kl. 17:30 og 18:15
Glæsilegt 312 fm. einbýlishús á þremur pöllum við Dalprýði í Garðabæ. Fimm svefnherbergi
og tvö baðherbergi. Húsið er heilklætt með læstri Zink klæðningu frá Blikksmiðjunni Vík.
Vandaðar hurðir og Rayners álgluggar með solstop speglagleri. Arkitekt hússins er Pálmar
Kristmundsson sem hannaði það með tilliti til náttúru og umhverfis. Verð mkr. 149,7.
Sími 566 0000 • www.helgafellfasteignasala.is
Gunnar Sv. Friðriksson
Lögmaður / Löggiltur fasteignasali
S: 566 0000 / 842 2217
DALPRÝÐI 13, 210 GARÐABÆR
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Stefnt er að því að viðskipta-
sendinefnd frá Sankti Pétursborg
komi hingað til lands með vorinu.
Ágúst Andrésson, forstöðumaður
kjötafurðastöðvar KS á Sauð-
árkróki og kjörræðismaður Rúss-
lands á Íslandi, aðstoðar við að
koma á tengslum við íslenskt við-
skiptalíf.
Ágúst fékk boð um að mæta á
fund með forystumönnum samtak-
anna „Business Russia“ þegar
hann var á ferð í Pétursborg.
Þetta eru samtök um allt Rússland
sem eru í góðum tengslum við
stjórnvöld og fer starfsemi þeirra
vaxandi. Katerina Gerasimova sem
vinnur með Íslendingum að mark-
aðssetningu á skyri og kjöti í
Rússlandi er í viðskiptaráðinu og
fulltrúi þess gagnvart Íslandi. Hún
var með Ágústi á fundinum í Pét-
ursborg.
Vöktu athygli á HM
Ákveðnar hindranir eru í við-
skiptum milli landanna. Ágúst seg-
ir að Rússarnir leggi meðal annars
áherslu á ferðaþjónustu og sýnist
honum að þar séu tækifæri fyrir
bæði löndin. „Mér fannst einnig
áhugavert að ræða við fólk þarna
sem vinnur að nýrri tækni við
meðferð og endurvinnslu á úrgangi
sem þeir virðast leggja mikla
áherslu á núna,“ segir Ágúst.
Hann segir heimsmeistaramótið
í knattspyrnu sem fram fór í Rúss-
landi á síðasta ári hafi opnað ýms-
ar dyr og vakið athygli á Íslandi.
Á mótinu hófst markaðssetning á
skyri hjá rússnesk-íslensku fyrir-
tæki sem gerði vörumerkjasamn-
ing við MS um framleiðsluna.
Ágúst segir að möguleikar séu á
að gera enn meira á því sviði.
Um páskana kemur dagskrár-
gerðarfólk frá rússneskri sjón-
varpsstöð til að gera þátt um mat-
armenningu, land og þjóð.
Þátturinn er vinsæll í Austur-
Evrópu og bindur Ágúst vonir við
að hann geti vakið athygli á Ís-
landi og íslenskum afurðum.
Móttaka Dmitry Panov, formaður Business Russia í Pétursborg, og Ágúst Andrésson takast í hendur. Katerina Ge-
rasimova sem sæti á í viðskiptaráðinu og er fulltrúi þess gagnvart Íslandi stendur við hlið Ágústs.
Von á viðskiptasendinefnd
frá Sankti Pétursborg
Bjóða nýja tækni við meðferð og urðun úrgangsHelgi Bjarnasonhelgi@mbl.is
„Það eru jákvæð teikn á lofti. Von-
andi halda skilyrðin áfram að batna.
Vonandi sjáum við einhverja hækk-
un afurðaverðs í haust,“ segir Guð-
finna Harpa Árnadóttir, bóndi í
Straumi, sem í gær var kosin nýr
formaður Landssamtaka sauðfjár-
bænda á aðalfundi samtakanna sem
lauk í Reykjavík í gær.
Fjórir bændur buðu sig fram til
að taka við embættinu af Oddnýju
Steinu Valsdóttur sem ekki gaf kost
á sér til endurkjörs. Þeir eru, auk
Guðfinnu, Trausti Hjálmarsson í
Austurhlíð 2, Sigurður Þór Guð-
mundsson í Holti og Einar Freyr
Elínarson í Sólheimahjáleigu. Sá
síðastnefndi dró framboð sitt til
baka rétt áður en til kosninga kom
og lýsti yfir stuðningi við Guðfinnu.
Því var kosið á milli hinna þriggja.
Halda áfram á sömu braut
„Við höldum áfram á þeirri góðu
braut sem fyrrverandi formaður var
á og reynum að efla og styrkja gras-
rótina,“ segir Guðfinna þegar spurt
er um hugsanlegar breytingar með
nýjum formanni.
Guðfinna Harpa er bóndi í
Straumi í Hróarstungu á Fljótsdals-
héraði og starfsmaður Ráðgjafar-
miðstöðvar landbúnaðarins. Hún
býr í samstarfi við foreldra sína og
þau eru samtals með tæplega 600
ær á vetrarfóðrum.
Eins og fram kemur er hún nokk-
uð bjartsýn á framtíðina. „Ég vona
að framtíðin sé björt og mun leggja
mitt af mörkum til að svo geti orð-
ið.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Formaður Guðfinna Harpa Árnadóttir var kjörin til forystu sauðfjárbænda.
Vonast eftir
hækkun afurða
Guðfinna nýr formaður sauðfjárbænda
Fimm voru handteknir af lögreglu
um miðjan dag í gær, en þeir til-
heyrðu hópi fólks sem stóð fyrir
kyrrsetumótmælum í dómsmála-
ráðuneytinu í miðbæ Reykjavíkur.
Voru það meðal annars meðlimir
samtakanna No Borders, sem berj-
ast t.a.m. fyrir „algjöru ferðafrelsi“
á milli ríkja, sem voru handteknir
við ráðuneytið.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu var
fólkið handtekið fyrir að fara ekki
að ítrekuðum fyrirmælum lögreglu,
en þess var óskað að hópurinn yfir-
gæfi húsnæði ráðuneytisins. Er
þetta í fjórða skipti á skömmum
tíma sem lögregla þarf að fjarlægja
fólk úr ráðuneytinu vegna óspekta.
Handteknir í dómsmálaráðuneytinu
Morgunblaðið/Eggert
Engin landamæri Frá mótmælum hælis-
leitenda við Útlendingastofnun nýverið.