Morgunblaðið - 06.04.2019, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2019
BAKARÍ / KAFFIHÚS / SALATBAR
Sunnumörk 2, Hveragerði, sími 483 1919, Almar bakari • Opið alla daga kl. 7-18
SÉRBAKAÐfyrir þig
SALATBAR
ferskur allan
daginn
PFAFF • Grensásvegi 13 • 108 Reykjavík • Sími: 414 0400 • www.pfaff.is
Verð áður 7.900 kr.
Tilboð: 6.400 kr.
Hitaundirteppi
TS-23
Momentum
TRUE þráðlaus
heyrnartól
Amber Milano 3
Hangandi ljós
Verð áður 34.900 kr.
Tilboð: 27.900 kr.
Verð áður 45.900 kr.
Tilboð: 30.000 kr.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þetta er eins og hver annar dagur í
vinnunni. Ég er að vísu ekki enn
kominn í hesthúsið en það er mikið
að gera, ég þarf að gera hestana
klára fyrir stóðhestaveislu á morgun
[í dag] og eins er von á hópi fólks í
heimsókn,“ segir Jakob Svavar Sig-
urðsson í gærmorgun en hann varð
efstur í einstaklingskeppni meist-
aradeildar í hestaíþróttum eftir æsi-
spennandi lokakeppni. Hann stund-
ar tamningar og þjálfun á
Fákshólum í Rangárvallasýslu.
Jakob Svavar er einn af kunnustu
knöpum landsins, er ríkjandi heims-
meistari í tölti og margfaldur sig-
urvegari á Íslandsmótum og lands-
móti hestamannafélaga. Hann hefur
tekið þátt í meistaradeild í hesta-
íþróttum í um tólf ár, unnið marga
sigra og oft verið í 2. eða 3. sæti en
ekki náð í stóra bikarinn fyrr en nú.
Á síðasta ári var hann í forystu fyrir
lokakvöldið, eins og nú, og sigraði í
fyrri keppni kvöldsins, töltinu, eins
og nú, en tapaði titlinum með því að
ná ekki árangri í síðustu greininni,
flugskeiði.
Réðst í lokagreininni
Fyrir lokagreinina í fyrrakvöld,
flugskeiðið, var Jakob með 5,5 stiga
forskot á aðalkeppinautinn, Að-
alheiði Önnu Guðjónsdóttur. Til þess
að vinna þurfti hún að ná 5. sæti í
skeiðinu eða ofar, miðað við að Jak-
ob næði ekki inn í 10. efstin sætin
sem gefa stig. Eftir fyrri umferðina í
skeiðinu var Aðalheiður í 4. sæti en
Jakob í 13. þannig að hún var í góð-
um málum. Jakob lagði allt í söl-
urnar á seinni sprettinum og náði 10.
sætinu auk þess sem sterkir skeið-
hestar og menn bættu tíma sína á
seinni sprettinum og ýttu Aðalheiði
niður í 7. sætið. Það dugði Jakobi vel
til að ná titlinum og bæta fyrir von-
brigðin í fyrra.
Jakob neitar því ekki að hann hafi
hugsað til flugskeiðsins á síðasta ári
þegar hann missti meistaradeild-
artitilinn. „Þetta hafðist og gerði
keppnina bara skemmtilegri.
Keppnir eiga að vera spennandi, fyr-
ir þá sem horfa á. Það eru komnir
fram margir góðir knapar og mig
grunar að þetta verði spennandi
keppni á næstu árum,“ segir Jakob.
Hefði orðið svekktur
„Þetta var mjög sætt. Mér fannst
ég standa mig vel í fyrra, þótt ég hafi
ekki náð að sigra. Aðalheiður hefði
verið vel að sigrinum komin en ég
hefði samt orðið svekktur ef ég hefði
ekki unnið,“ segir Jakob Svavar.
Hann tók forystuna í annarri
keppni vetrarins og hélt henni allt til
loka.
Næg verkefni eru framundan hjá
Jakobi, eins og öðrum afreks-
knöpum. Hann nefnir undirbúning
fyrir kynbótasýningar og eftir það
hefjast mót sumarsins og undirbún-
ingur fyrir Heimsleika íslenska
hestsins sem að þessu sinni verða í
Berlín. Þar verður Jakob í landsliði
Íslands enda á hann titil að verja.
Hann segir ekki ákveðið með hesta-
kost sinn á heimsleikunum. Segir að
það verði að ráðast með vorinu. Það
geri ákvörðunina alltaf erfiða að
hestar sem fluttir eru út vegna HM
eigi ekki afturkvæmt til landsins.
Jakob Svavar fékk 55 stig og Að-
alheiður Anna 52,5 stig. Þriðji varð
fjórfaldur meistaradeildarmeistari,
Árni Björn Pálsson, með 37 stig.
Lið Hrímnis/Export hesta varð
efst í liðakeppninni en liðsmenn
þessu fengu samtals 360 stig. Viðar
Ingólfsson var liðsstjóri og aðrir í
liðinu voru Hans Þór Hilmarsson,
Helga Una Björnsdóttir, Siguroddur
Pétursson og Þórarinn Ragnarsson.
Keppnir eiga að
vera spennandi
Ljósmynd/Louisa Hackl
Meistari Jakob Svavar Sigurðsson og Júlía frá Hamarsey á fljúgandi ferð
í töltkeppninni. Júlía hefur fært honum marga sigra á síðustu árum.
Jakob Svavar sigraði í meistaradeild í hestaíþróttum
Bryddað verður upp á ýmsu
skemmtilegu í Vogaskóla í Reykja-
vík í dag, þar sem er opið hús milli
klukkan 13 og 15 í tilefni af 60 ára
afmæli skólans. Dagskráin hefst
með ávarpi skólastjóra og borg-
arstjóra á karnivali sem Skóla-
hljómsveit Austurbæjar stýrir. Síð-
ar munu nemendur í 5. og 6. bekk
flytja frumsamið fjöllistaverk,
barnakórinn mun syngja og fleira
óvænt gerast. Skólinn býður upp á
drykki og köku. Yfirskrift hátíð-
arinnar er Skólinn í dag og verða
allar kennslustofur opnar og hægt
að ganga um og skoða rými. Gefið
verður út veglegt afmælisblað í til-
efni afmælisins og gamlar bekkj-
armyndir hengdar upp. Stjórn-
endur skólans segja allir
velunnara skólans vera hjart-
anlega velkomna ásamt nem-
endum, foreldrum og starfsfólki.
sbs@mbl.is
Afmælishátíð í
Vogaskóla í dag
Karnival og skólahúsið er til sýnis
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vogaskóli Opið hús í dag í tilefni af sextíu ára afmæli skólans.