Morgunblaðið - 06.04.2019, Page 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2019
FYRSTA FLOKKS RÁÐSTEFNU- OG
FUNDARAÐSTAÐA UM ALLT LAND
– ÁRSHÁTÍÐIR, SÖLUFUNDIR,
NÁMSKEIÐ, VEISLUR OG VIÐBURÐIR –
Nánari upplýsingar: islandshotel.is/fundir
Bókanir: fundir@islandshotel.is
Nýr forseti Alþjóðaskák-sambandsins, ArkadyDvorkovich, verður við-staddur opnun Reykja-
víkurskákmótsins, minningarmóts
um Stefán Kristjánsson, sem hefst í
Hörpu á mánudaginn. Hann var aðal-
framkvæmdastjóri HM í knattspyrnu
í Rússlandi sl. sumar og þótti standa
sig vel. Þótt hann sé ekki óumdeildur
og þyki hafa sterk tengsl við Pútín
Rússlandsforseta tóku flestir kjöri
hans vel og ekki er útlit fyrir þrásetu
hans í stóli eins og fyrirrennarans, nú
hefur verið girt fyrir þann möguleika
að forseti FIDE starfi lengur en í átta
ár.
Dvorkovich mun hitta Lilju Al-
freðsdóttur menntamálaráðherra og
ræða þá hugmynd, að í tilefni 50 ára
afmælis einvígis aldarinnar verði
heimsmeistaraeinvígið árið 2022 hald-
ið hér á landi. Þó að lítil umræða hafi
farið fram innan skáksamfélagsins
hér og að einvígi Fischers og Spasskís
sumarið ’72 lifi eiginlega sjálfstæðu
lífi hefur hefur Gunnar Björnsson,
forseti SÍ, sent inn kostnaðaráætlun
upp á 700 milljónir sem er til skoð-
unar hjá ráðuneytinu.
Meira en 250 skákmenn eru skráðir
til leiks. Heimavarnarliðið er skipað
Hannesi Hlífari Stefánssyni, virkasta
íslenska stórmeistaranum, Jóhanni
Hjartarsyni, Hjörvari Steini Grét-
arssyni, Braga Þorfinnssyni, Guð-
mundi Kjartanssyni og Birni Þor-
finnssyni svo nokkrir séu nefndir.
Stigahæsti maður mótsins er Gawain
Jones.
Sannkallað einvalalið ungra skák-
manna mun tefla í Hörpu. Má þar
nefna tvo Írana, Alireza Firouzja, 16
ára, en því hefur verið spáð að einn
góðan veðurdag verði hann heims-
meistari í skák, og Parham Maghs-
oodloo, sem er heimsmeistari ung-
linga 20 ára og yngri. Og þarna
verður yngsti stórmeistari heims,
Indverjinn Dommaraju Gukesh, 12
ára, og landar hans Pragnanandhaa
og skákdrottningin Tania Sadchev.
GAMMA er aðalstyrktaraðili móts-
ins.
Carlsen efstur í Shamkir
Heimsmeistarinn Magnús Carlsen
hefur náð forystu á stórmótinu í
Shamkir í Aserbaídsjan sem haldið er
til minningar um Vugar Gashimov.
Carlsen „sveið“ Anand og Navara í 3.
og 4. umferð en þeir náðu sér báðir á
strik þrátt fyrir það. Staðan: 1. Magn-
ús Carlsen 3½ v. (af 5). 2.-3. Anand og
Karjakin 3 v. 4.-7. Ding, Radjabov,
Navara og Grischuk 2½ v. 8. Mame-
dyarov og Topalov 2 v. 10. Giri 1½ v.
„Skyldubyrjun“ elítumótanna,
Berlínarvörnin, hrundi í eftirfarandi
skák fimmtu umferðar:
Wisvanathan Anand – Anish Giri
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Rf6 4. d3
Það er af sú tíð að menn fór glaðir
út í drottningarlausa miðtaflið sem
hefst með 4. 0-0 Rxe4 5. d4 Rd6 7.
Bxc6 dxc6 8. dxe5 Rf5 9. Dxd8+
Kxd8 o.s.frv.
4. … Bc5 5. c3 0-0 6. Rbd2 He8 7.
0-0 a6 8. Bxc6 dxc6 9. Rc4 Rd7 10.
He1 Bf8 11. d4 exd4 12. cxd4 Rb6
13. Rxb6 cxb6 14. h3 b5 15. Bf4 Be6
16. He3
Leikandi létt taflmennska og hvít-
ur er með mun betra tafl.
15. … f6 17. b3 Dd7 18. Dc2 Had8
19. Hd1 Df7 20. Bg3 Dh5
21. Bc7!
Læsir drottningarvængnum og
undirbýr gegnumbrot á miðborðinu.
21. … Hd7 22. Bb6 Bb4 23. Re1
Bf7 24. Rd3 Bd6 25. Hde1 Bb8 26. f4
f5 27. Re5! Bxe5 28. dxe5 fxe4 29.
Dxe4 Hd2 30. H3e2 Bd5 31. De3
Hxe2 32. Hxe2 Df5 33. g4 Db1 34.
Kf2 h5 35. f5 Dh1 36. Kg3!
Frábær leiktækni. Kóngurinn er í
öruggu skjóli og svartur án mótspils.
36. … He7 37. Bc5 He8 38. e6 Kh7
39. Dg5
– og Giri gafst upp.
Dvorkovich setur
Reykjavíkurskák-
mótið og ræðir HM-
einvígi hér á landi
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Ljósmynd/Chess Base
Nýr forseti FIDE Arkady Dvorkovich.
Langflest okkar nota þráð-laus fjarskipti oft á hverj-um degi og þykir það jafn-sjálfsagt og að skrúfa frá
vatni að morgni eða kveikja ljós að
kveldi.
Hægt er að skipta þráðlausum
fjarskiptum í tvo meginflokka, fjar-
skipti yfir þráðlaus net (Wi-Fi) og
fjarskipti um farsímakerfi. Þó að
upplifunin sé svipuð af notkun þess-
ara neta eru þau gerólík. Wi-Fi netin
eru þau sem fólk notar heima hjá sér
eða á vinnustöðum og hafa almennt
litla langdrægni. Miðpunktur þeirra
er beinir sem tengdur er netinu með
ljósleiðara eða símalínu með DSL-
tækni. Þessi net þjóna einkum þeim
tilgangi að veita fólki „þráðlaust
frelsi“ en fjarskiptin fara fram gegn-
um fastanetið.
Varnir Wi-Fi neta gagnvart árás-
um og hlustun óvel-
kominna aðila hafa
þróast gegnum tíðina.
Fyrstu varnir voru
nefndar WEP (Wired
Equivalent Privacy) og
eru mörg ár síðan þær
voru brotnar. Fólk ætti
alls ekki að nota WEP
til varna. Næst kom
tækni sem nefnist
WPA og WPA2 (Wire-
less Protected Access).
Árið 2017 uppgötvaðist
veila í þeirri tækni sem
hefur verið lagfærð í
sumum tækjum en
ekki öllum. Þeir sem nota þessa
tækni í tiltölulega nýjum beinum
ættu að vera allvel varðir ef þeir velja
nægilega sterkt lykilorð. Í janúar
2018 kom fram þriðja aðferðin sem
nefnd er WPA3 og mun bæta öryggi
Wi-Fi neta til muna. Hún er þó ekki
komin víða í umferð og búist er við
því að nokkur ár líði þar til hún kemst
í almenna notkun.
Nettengingar um farsíma nást í
flestum byggðum Íslands og sums
staðar utan byggðar. Þeir sem
ferðast til útlanda taka eftir því að
farsímanet þar veita oft mun verri
þjónustu en farsímanet á Íslandi.
Þetta stafar af því að farsímanetin á
Íslandi eru víða þéttriðin og hér er
færra fólk sem nýtir sér
getu hverrar far-
símastöðvar en gerist
erlendis. Geta far-
símastöðva skipst milli
þeirra notenda sem nota
stöðina hverju sinni. Nú
eru þrjár kynslóðir far-
símakerfa í notkun hér á
landi, 2G (GSM), 3G
(UMTS) og 4G (LTE).
Mest af gagnafjarskipt-
unum fer um 3G og 4G,
reyndar er 4G hreint
gagnafjarskiptakerfi
þar sem tal er flutt eins
og hver önnur tölvugögn.
Gagnafjarskipti um farsíma eru
orðin svo ódýr hér á landi að margir
eru hættir að nýta Wi-Fi í farsímum
sínum og treysta eingöngu á far-
símatenginguna. Þá vaknar spurn-
ingin um öryggi slíkra fjarskipta, er
t.d. hægt að hlera fjarskipti um far-
síma? Í maí nk. munu verkfræðingar
við Ruhr-háskólann í Þýskalandi og
New York-háskólann í Bandaríkj-
unum birta grein sem alþjólega verk-
fræðingafélagið IEEE gefur út.
Greinin ber heitið „Breaking LTE on
Layer Two“ og er bæði löng og ít-
arleg. Þar kemur fram að hugsanlegt
er að komast inn í fjarskipti á 4G neti.
Til þess þarf þó mikla þekkingu og
búnað og því er ólíklegt að slík inn-
brot eigi sér stað af hendi annarra að-
ila en stórra fyrirtækja eða leyni-
þjónustna. Innbrotin eru af því tagi
sem nefnt er „man-in-the-middle at-
tack“ og felast í því að setja upp far-
símastöð sem smeygir sér inn í fjar-
skiptin, tekur við öllum gögnum
farsímanotanda og sendir þau áfram
en tekur jafnframt af þeim afrit.
Þetta þýðir ekki að hægt sé að
„hlusta“ á fjarskiptin eða ná í gögnin
sem send eru. Hins vegar er hugs-
anlegt að finna nöfn þeirra sem eiga í
fjarskiptum við tiltekna fjar-
skiptastöð og jafnvel hvaða heimasíð-
ur þeir heimsækja. Þetta er nefnt
„Website fingerprinting“.
Þeir sem vilja vita meira um þetta
efni geta farið á heimasíðuna https://
alter-attack.net.
Öryggi þráðlausra fjarskipta
Eftir Svönu Helen Björnsdóttur
»Ný aðferð í þráðlaus-
um fjarskiptum,
nefnd WPA3, mun bæta
öryggi þráðlausra neta
til muna.
Svana Helen
Björnsdóttir
Höfundur er verkfræðingur og
framkvæmdastjóri Stika ehf.
svana@stiki.eu
Upplýsingaöryggi
Öryggi Hversu auðvelt er að hlera fjarskipti um farsíma?
Hvar er næsta
verkstæði?
FINNA.is