Morgunblaðið - 06.04.2019, Page 35
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2019
Begga og sami læknir fram-
kvæmdi þær báðar. Aðgerðin á
mér tókst með ágætum. Við
ræddum saman um þessi mál í
Keflavík fyrir brottför vélarinnar
og taldi Beggi sig ekki vera nógu
góðan í fætinum þó að liðnir væru
10 mánuðir frá aðgerð en við von-
uðum þó báðir að þetta lagaðist
eftir tvo mánuði eða svo. En ekki
gekk það eftir – örlögin gripu inn í
– og þannig fór það.
Eitt af því besta sem hægt var
að segja um nokkurn mann í
gamla daga var: Hann var dreng-
ur góður. Það var Beggi vissulega.
Kynni okkar Hönnu af honum
voru afar góð og umfram allt
skemmtileg. Eiginkonu hans Jó-
hönnu Reynisdóttur, börnum
þeirra og öðrum sem eiga um sárt
að binda vottum við innilega
samúð. Kveðjum svo þennan góða
dreng með eftirfarandi:
Klökkum huga kveðjum drenginn
og kynnum okkar góða manns,
Bergleif okkar burt er genginn
blessuð veri minning hans.
Ingólfur Dan Gíslason,
Jóhanna Jónsdóttir.
Í dag kveðjum við okkar kæra
vin Bergleif Gannt Joensen.
Er sárasta sorg okkur mætir,
og söknuður huga vorn grætir.
Þá líður sem leiftur úr skýjum
ljósgeisli af minningum hlýjum.
(H.J.H)
Við hjónin eigum svo margar
yndislegar minningar frá sam-
skiptum okkar við Begga. Það var
eins og umhverfið og öll tilveran
magnaðist af glaðværð og þrótti í
návist Begga.
Mælskan og hrífandi frá-
sagnargleði, dillandi hlátrasköll
og gleði náði tökum á öllum nær-
stöddum.
Okkar líf er svo miklu ríkara af
hans kynnum og tryggri vináttu í
gegnum árin. Því þökkum við af
alhug það allt sem kæri Beggi gaf
okkur vinunum af sínum lífsneista
og lífsvisku.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(Valdimar Briem)
Okkar dýpsta samúð til elsku
Jóhönnu okkar og fjölskyldunnar
allrar.
Sigurbjörg og Árni, Selfossi.
Jæja Beggi, minn kæri vinur,
nú ert þú farinn yfir móðuna
miklu og óvænt var það. Ekki gat
ég ímyndað mér að þú yrðir farinn
frá okkur 12 tímum eftir að við
Þorgerður kvöddum ykkur Jó-
hönnu eftir æðislega kvöldstund á
Kanarí.
Margs er að minnast, margar
ferðir fórum við feðgar í Árnes til
þín, Jóhönnu og Söru litlu enda
vildi Unnar Leó ekkert fara annað
en til ykkar og alltaf var gaman,
mikið hlegið og góðar sögur hjá
þér, minn kæri, smá öl og eldvatn
stundum. Svo var Kanarí í mars
aðalmálið hjá þér ár eftir ár, ha-
haha, og númer eitt var 17. mars
(dagur heilags Patreks) og við
vinir þínir héldum upp á hann fyr-
ir þig þetta árið. Beggi, þú varst
einstaklega hreinskiptinn, virki-
lega skemmtilegur og góður mað-
ur og ég tala nú ekki um sögurnar,
satt eða ýkt skipti ekki máli, góðar
voru þær og breytilegar.
Ég vil þakka þér, minn kæri
vinur, fyrir skemmtileg kynni og
hvað þú hugsaðir alltaf vel til
Unnars litla vinar þíns eins og þú
sagðir alltaf. Jóhönnu og öllum
börnum þínum sendi ég innilegar
samúðarkveðjur.
Guðlaugur Unnarsson.
✝ RannveigHöskuldsdóttir
fæddist á Ísafirði 2.
september 1950.
Hún lést á krabba-
meinsdeild Land-
spítalans 19. mars
2019.
Foreldar hennar
voru Guðlaug Þor-
steinsdóttir, f. 6.
maí 1930, d. 17. júlí
2015, og Höskuldur
Ingvarsson, f. 11. júní 1924, d. 9.
nóvember 2001. Systur Rann-
veigar eru Brynja, f. 1961, og
Hrefna, f. 1967.
Rannveig giftist Flosa Jóns-
syni 1975. Þau skildu. Börn
Hrafnhildur Brynja, f. 21. febr-
úar 1974, d. 1. júní 1998, hún átti
einn son, Axel Óla.
Rannveig sleit barnsskónum í
Bolungarvík, Hnífsdal og Ísa-
firði, hún flutti árið 1976 frá Ísa-
firði með börn sín þrjú til
Reykjavíkur. Rannveig vann
ýmis störf um ævina. Hún var
m.a. skálavörður á Hveravöllum
og í Landmannalaugum, kenn-
ari í Héraðsskólanum í Reykja-
nesi í tvö ár, rak veitingastað og
sjoppu, lærði nudd, starfaði að
málefnum fatlaðra og fleira.
Síðustu starfsárin var hún um-
sjónamaður íþróttahúss Háskóla
Íslands. Rannveig var ætíð mikil
útivistarmanneskja, hún stund-
aði hálendisferðir á árum áður,
fór á mótorhjóli um Evrópu og
víða innanlands. Eftir starfslok
dvaldi Rannveig löngum stund-
um á Spáni.
Útför hennar fór fram 28.
mars í kyrrþey að hennar ósk.
þeirra eru: 1) Aðal-
steinn, f. 23. mars
1969. Búsettur í
Danmörku. Giftur
Mirku Wischnew-
ski, hann á börnin
Ásu Dögg, Jón
Flosa, Stefaníu og
Brynjar. Ása Dögg
á soninn Angantý
Helga. Börn Mirku:
Siri Elisabet og Ka-
yah. 2) Guðlaug, f.
13. sept. 1972, búsett í Þorláks-
höfn. Gift Magnúsi Magnússyni,
hún á börnin Úlfar Hrafn og
Hrafn Alexander. Börn Magn-
úsar: Andrés Már, Magnús,
Kristinn og Salome Vera. 3)
Elsta systir mín hefur kvatt,
snörp stutt barátta við vágest
sem hafði betur.
Þegar ég fer að muna eftir
mér var Rannveig flutt að heim-
an, komin með sína eigin fjöl-
skyldu og bjó í Reykjavík. Það
var alltaf spennandi að fara í
höfuðborgina í heimsókn. Í
kringum fermingaraldurinn
fékk ég meira að segja að vera
hjá henni sem barnapía, sem var
ótrúlega spennandi.
Rannveig var natin við ung-
lingssystur sína, valdi með mér
fermingarfötin, fór með mig í
Þórsmörk og Landmannalaugar
og fór með mig á fyrstu og
sennilega einu sinfóníutón-
leikana mína.
Þegar hún varð kennari í
Reykjanesi við Ísafjarðardjúp
varð ég að fara þangað líka, það
voru góð ár.
Ég bjó líka hjá henni í hálfan
vetur þegar ég fór í framhalds-
skóla í Reykjavík.
Þegar ég flutti svo suður og
fór að búa var hún dugleg að
fylgjast með hvernig litlu systur
gekk og var alltaf tilbúin að að-
stoða mig vð erindi í höfuðborg-
inni.
Hún var með mér þegar ég
fékk þær fréttir að ég ætti von á
mínu fyrsta barni. Oftar en ekki
hélt fólk að við værum mæðgur
frekar en systur.
Rannveig var alltaf hörku-
dugleg, hún var nagli, vildi helst
ekki vera neinum háð.
Erfiðasta tímabilið í lífi henn-
ar var þegar Hrafnhildur dóttir
hennar lést í bílslysi, hún átti
erfitt með að vinna úr sorginni,
naglinn vildi taka þetta á hörk-
unni, árin á eftir voru okkur öll-
um mjög erfið.
Rannveig var töffari í eðli
sínu, hún vildi vera töff klippt,
töff klædd, hún gaf sjálfri sér í
55 ára afmælisgjöf mótorhjóla-
próf og naut sín á hjólinu.
Hún kom með hópana af mót-
orhjólafólki á Ljósanótt í nokk-
ur ár í súpu heim til mín, það
vakti athygli í rólegu götunni
minni.
Þegar hún fór til Spánar tók
hún upp alveg nýjan lífsstíl,
líkamlega formið var aldrei
betra og hún naut þess að
hreyfa sig. Þegar hún kom heim
síðasta sumar ætluðum við syst-
ur í fjallgöngu saman þegar hún
yrði búin með þennan veikinda-
pakka. Síðustu mánuðir hafa
verið erfiðir, hún ætlaði ekki að
láta þennan vágest sem krabb-
inn er sigra og barðist af hörku
en varð undan að láta.
Hún lifði draumalífi á Spáni
og ætlaði sér að fara þangað
aftur og halda áfram að lifa
drauminn.
Stóra markmiðið hennar var
að ganga Jakobsveginn, við sem
eftir erum gerum það bara
kannski í hennar minningu.
Takk fyrir allt, kæra stóra
systir, að hafa fengið að vera
með þér daglega síðustu vikur
er ómetanlegt, ég á eftir að
sakna þess svo mikið að fá þig
ekki í heimsókn á Þorláksmessu
í skötu og á Ljósanótt.
Kvöldstundin okkar í haust
þar sem við borðuðum saman og
fórum svo á Ellý-sýninguna, þar
sem brosið fór ekki af þér, er
dýrmæt minning, þú verður allt-
af í huga mér.
Þín systir,
Hrefna.
Elsku stóra systir. Margar
minningar koma upp í hugann á
þessum dimmu dögum. Ég trúi
því varla að þú sért farin frá
okkur, þú varst svo ákveðin í að
vinna þessa baráttu.
Alltaf var stutt í húmorinn
hjá þér, alveg fram á síðustu
stundu.
Þú varst ekki tilbúin í þitt síð-
asta ferðalag, áttir eftir að gera
svo margt. Þú varst búin kaupa
hús á Spáni og ætlaðir að njóta
þess að vera þar í ellinni, hjóla-
túrar og göngur voru þitt uppá-
hald.
En mikið er ég fegin að þú
fékkst tvö ár þar.
Ég er mjög þakklát fyrir að
hafa fengið að vera með þér
þessar síðustu tvær vikur í þínu
lífi.
Ég trúi því að þú sért á betri
stað núna og er viss um að það
verður tekið vel á móti þér.
Kveðja, þín systir
Brynja.
Rannveig
Höskuldsdóttir
Við erum til staðar þegar þú
þarft á okkur að halda
551 1266
Skipulag útfarar
Dánarbússkipti
Kaupmálar
Erfðaskrár
Reiknivélar
Minn hinsti vilji
Fróðleikur
Sjá nánar á
www.utfor.is
Vesturhlíð 9 Fossvogi | Sími 551 1266 | utfor.is
Önnumst alla þætti útfararinnar
með virðingu og umhyggju að leiðarljósi
Reynslumikið fagfólk
Elín Sigrún Jónsdóttir
Framkvæmdastjóri
Jón G. Bjarnason
Útfararþjónusta
Ellert Ingason
Útfararþjónusta
Lára Árnadóttir
Útfararþjónusta
Katla Þorsteinsdóttir
Lögfræðiþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
Útfararþjónusta
Magnús Sævar
Magnússon
Útfararþjónusta
Emilía Jónsdóttir
Félagsráðgjafi
Sigrún Óskarsdóttir
Guðfræðingur
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
utfor.is