Morgunblaðið - 06.04.2019, Side 43
syni í Efri-Hrepp í Skorradal og var
húsfreyja þar frá 1953. Þau hjónin
stunduðu fyrst hefðbundinn búskap
en síðar skógrækt, hrossabúskap og
ferðaþjónustu. Nýjar aðferðir þeirra
við uppgræðslu og notkun hrossa til
að halda í skefjum óæskilegu grasi í
skóglendi urðu til þess að þau fengu
landgræðsluverðlaun árið 2000.
Gyða var beðin um að sjá um útibú
frá Kleppjárnsreykjaskóla á Hvann-
eyri árið 1968. Hún fór þá í Kenn-
araskóla Íslands og aflaði sér kenn-
araréttinda og síðar sérkennara-
réttinda. Gyða var síðan skólastjóri
Andakílsskóla á Hvanneyri í 15 ár og
sérkennari í Grunnskóla Borgarness
í 10 ár.
Gyða hefur alla tíð haft ánægju af
kórastarfi og hefur sungið í ýmsum
kórum. Hún var félagi í fjölmörgum
félögum bæði tengdum atvinnu og
félagsmálum og var m.a. formaður
Sambands borgfirskra kvenna um
skeið. Þau hjónin byggðu sér hús á
Akranesi og hafa búið í því frá árinu
2000. Þau hafa verið dugleg að
ferðast og hafa m.a. heimsótt
Egyptaland og Brasilíu.
Gyða er að heiman í dag.
Fjölskylda
Eiginmaður Gyðu er Guðmundur
Þorsteinsson, f. 19. mars 1928, húsa-
smíðameistari og bóndi. Foreldrar
hans voru hjónin Þorsteinn Jónsson,
f. 25. júní 1886, d. 15. apríl 1967,
bóndi í Efri-Hrepp, og Guðrún Jó-
hanna Guðmundsdóttir, f. 30. júní
1896, d. 14. september 1967, hús-
freyja í Efri-Hrepp.
Börn Gyðu og Guðmundar eru 1)
Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir, f.
22. apríl 1953, augnlæknir, bús. í
Efri-Hrepp. Maki: Jóhannes Guð-
jónsson, endurskoðandi. Barnabörn:
Gauti, f. 1979, Bjarki, f. 1981, Helga
Sjöfn, f. 1985, sjö barnabarnabörn;
2) Bergþór Guðmundsson, f. 25. júlí
1959, gæðastjóri, bús. á Akranesi.
Maki: Bryndís Rósa Jónsdóttir bók-
ari. Barnabörn: Guðmundur Páll, f.
1987, Jón Birkir, f. 1990, Gyða
Björk, f. 1991, þrjú barnabarnabörn
og barnabarnabörnin eru því alls tíu.
Systkini Gyðu: Guðrún Pálína
Bergþórsdóttir, f. 9. febrúar 1920, d.
1. maí 2015, vefnaðarkennari í Borg-
arnesi; Þorbjörg Bergþórsdóttir, f.
17. maí 1921, d. 7. maí 1981, kennari
á Blönduósi; Páll Bergþórsson, f. 13.
ágúst 1923, fv. veðurstofustjóri, bús.
í Reykjavík; Jón Bergþórsson, f. 12.
september 1924, d. 4. júní 2018,
framkvæmdastjóri í Reykjavík; Sig-
rún Bergþórsdóttir, f. 8. ágúst 1927,
d. 20. maí 2016, húsfreyja og ferða-
þjónustubóndi á Húsafelli; Ingibjörg
Bergþórsdóttir, f. 27. ágúst 1930, d.
12. júlí 2014, húsfreyja og ferða-
þjónustubóndi í Fljótstungu.
Foreldrar Gyðu voru hjónin Berg-
þór Jónsson, f. 8. október 1887, d. 9.
júlí 1955, bóndi í Fljótstungu, og
Kristín Pálsdóttir, f. 13. júlí 1885, d.
15. ágúst 1965, húsfreyja í Fljóts-
tungu.
Úr frændgarði Gyðu Bergþórsdóttur
Gyða Bergþórsdóttir
Vigdís Ásmundsdóttir
húsfr. í Ánanaustum
Guðrún Pétursdóttir
húsfr. í Fljótstungu
Jón Pálsson
b. í Fljótstungu
Bergþór Jónsson
b. í Fljótstungu í Hvítársíðu
Páll Jónsson
b. og smiður í Múlakoti í Hvítársíðu
Þorbjörg Pálsdóttir
húsfr. á Bjarnastöðum
Páll Helgason
b. á Bjarnastöðum í Hvítársíðu
Kristín Pálsdóttir
húsfr. í Fljótstungu
Bergþór
Pálsson
söngvari
Páll
Bergþórsson
fyrr. veður-
stofustjóri
Þuríður Guðmundsdóttir
húsfr. á Sólskála
Helgi Einarsson
tómthúsm. á Sólskála á Seltjarnarnesi
Valgerður Pétursdóttir húsfr. á HúsavíkÁki Jakobsson alþm.
Gísli Ólafur Pétursson
héraðslæknir á Húsavík
Jakob Gíslason
orkumálastjóri
Gísli Ólafur Jakobsson
skipulagsarkitekt í
Kaupmannahöfn
Guðmundur Gíslason
sjóm. í Ánanaustum
Guðrún VigdísGuðmundsdóttir
húsfr. í Rvík
Sverrir
Kristjánsson
sagnfr. og
rithöundur
Pétur Ólafur Gíslason
bæjarfulltr. í Ánanaustum
Halldóra
Bjarnad.
húsfr. víða
Kristín
Jónsd. húsfr.
á Kirkjubóli
Guðmundur
Böðvarss.
skáld á
Kirkjubóli
Guðrún Bjarnadóttir yngri
húsfr. í Múlakoti
Böðvar
Guðmundsson
rithöfundur
Guðrún
Pálsdóttir
húsfreyja á
Refsstöðum
í Hálsasveit
Helgi
Sigurðs-
son
bóndi á
Heggs-
stöðum
Andakílí
Sigurður
Helgason
skólastjóri
Laugar-
gerðisskóla
og
deildarstj.
í mennta-
málaráðu-
neytinu
Hjónin Guðmundur og Gyða með
Landgræðsluverðlaunin.
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2019
Berglind Bjarnadóttir fæddist6. apríl 1957 í Hafnarfirði,dóttir hjónanna Bjarna Ólafs-
sonar, f. 1920, d. 2006, skósmíða- og
pípulagningameistara í Hafnarfirði,
og Fríðu Ásu Guðmundsdóttur, f.
1924, húsfreyju í Hafnarfirði.
Berglind ólst upp í Hafnarfirði og
var meðal stofnenda Kórs Öldutúns-
skóla árið 1965. Þegar kórinn hélt í
sína fyrstu utanlandsferð til Finn-
lands árið 1968 var Berglind fyrsti
einsöngvari kórsins. Hún söng síðar
m.a. með Kór Hafnarfjarðarkirkju,
Pólýfónkórnum og Þjóðleikhús-
kórnum.
Berglind gekk til liðs við þjóðlaga-
sveitina Lítið eitt árið 1972 og söng
með sveitinni inn á tvær plötur, var
tíður gestur í sjónvarpinu og varð
landsþekkt söngkona. Hún sá einnig
um þátt fyrir börn í Ríkisútvarpinu á
sem hét. „Undir tólf“.
Stúdentsprófi lauk hún frá Flens-
borgarskóla og vorið 1978 tók hún
burtfararpróf í einsöng frá Tónlistar-
skóla Kópavogs. Árið 1979 flutti hún
til Svíþjóðar ásamt unnusta sínum og
síðar eiginmanni, hún fór að læra
söng og hann sálfræði. Berglind lauk
einsöngskennaranámi við Stock-
holms Musikpedagogiska Institution
árið 1984 en hélt áfram námi við
Opera Workshop Auk söngnámsins
lagði hún stund á tónlistarsögu og
þýsku. Berglind hélt tónleika bæði
hér á landi og í Svíþjóð. Að loknu
kennaraprófi þjálfaði hún tvo kóra og
kenndi einsöng við Kursverk-
samheten vid Stockholms Universit-
fit.
Söng Berglindar er ekki að finna á
mörgum plötum öðrum en þeim sem
Lítið eitt sendi frá sér. Hún söng inn
á vísnaplötuna Út um græna grundu
(1976) og jólaplötuna Jólastrengir
(1977), auk þess að syngja bakraddir
með hljómsveitinni Eik á litla plötu
þeirra sem út kom 1975.
Berglind var gift Rúnari Matthías-
syni sálfræðingi, f. 12.12. 1953, sem
nú er búsettur í Hafnarfirði.
Berglind veiktist af krabbameini
og lést 10. desember 1986.
Merkir Íslendingar
Berglind
Bjarnadóttir
Laugardagur
90 ára
Gyða Bergþórsdóttir
Jens Stefán Halldórsson
Sigurlaug Björnsdóttir
80 ára
Árni Björn Guðjónsson
Árný Hjaltadóttir
Björn Jensen
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Hreinn Ármannsson
Hulda Yngvadóttir
Jón Guðmundsson
75 ára
Arna Borg Snorradóttir
Birgir Sveinsson
Edda Sigurðardóttir
Jón Hjartarson
70 ára
Albert Már Steingrímsson
Árni Sigurðsson
Otto Robert Spork
Ragnhildur Unnur
Ólafsdóttir
Víðir Ísfeld Ingvarsson
60 ára
Erna Jóna Sigmundsdóttir
Freyja Hilmarsdóttir
Guðni Torfi Áskelsson
Jaroslaw Marian Borowiec
Margrét Einarsdóttir
Margrét Kristín
Guðmundsdóttir
Már Arnarson
Natalja Gordienko Palijenko
Robert Samuelsson
Mazmanian
Sigurður Blöndal
Theodór Siemsen
Sigurbergsson
Örn Sæmundsson
50 ára
Auður Perla Svansdóttir
Einar Hólm Jónsson
Einar Þór Færseth
Jóhanna Jóna
Kristjánsdóttir
Margrét Linda Marísdóttir
Ólafur Gestsson
Ryszard Dariusz Dudzik
Sesselja Jónsdóttir
Sigríður Önundardóttir
Sverrir Gíslason
Tryggvi Jóhannsson
40 ára
Atli Fjalar Larsen
Brynjólfur Flosason
Diana Andreea Baban
Diljá Ámundadóttir Zoega
Elínborg Ingunn Ólafsdóttir
Erna Rut Steinsdóttir
Gísli Haukur Þorvaldsson
Guðleif Harðardóttir
Ingi Makan Magnússon
Ivan Celic
Jens Kristján
Guðmundsson
Karen Lind Ólafsdóttir
Maja Bielecka
Margrét Jónína
Sævarsdóttir
Perla Ósk Kjartansdóttir
Rakel Björk Haraldsdóttir
Remigijus Paulionis
Roqaya Anvari
Stefán Helgi Kristinsson
Thelma Vestmann
Þorsteinn Már
Þorsteinsson
Þórdís Hrönn
Halldórsdóttir
Þórður Sigmundur
Sigmundsson
Sunnudagur
90 ára
Sigurjón Jónasson
Theódóra Guðmundsdóttir
85 ára
Friðbjörg Ingibergsdóttir
Guðmundur Finnbogason
Karen Lísa Guðmundsdóttir
Kristján Kristjánsson
80 ára
Edda Tegeder
Erlendur Kristjánsson
Gylfi Sævar Einarsson
Hulda Sigríður
Sigurðardóttir
Þorbergur Bjarnason
Örn Jóhannsson
75 ára
Friðrik Gunnar Bjarnason
Guðrún Óskarsdóttir
Hafþór Jónsson
Magnús Ingólfsson
Sara Hólm
70 ára
Andrea Sigríður Jónsdóttir
Anna Lísa Blomsterberg
Ágúst Karlsson
Ásrún Kristjánsdóttir
Brynjólfur Markússon
Edda Helgad. Bachmann
Sigríður Ólafsdóttir
Vilhjálmur Sigurgeirsson
Þórhallur Teitsson
60 ára
Aðalheiður Svanhildardóttir
Elín Guðmundsdóttir
Elín Kristín Helgadóttir
Erling Elís Erlingsson
Guðmundur Kolbeinn
Björnsson
Helga Björk Sigurðardóttir
Helga Vilhelmína Pálsdóttir
Kristín G. Guðbrandsdóttir
Marteinn Halldórsson
Orri Einarsson
Ólafur J. Straumland
Sólbjörg Karlsdóttir
Sóley Binatero
Þorsteinn O. Björgvinsson
50 ára
Alfredo Sevilla Abella
Arnar Bjarnason
Arnar Paul Michelsen
Árni Oddur Þórðarson
Berglind Stefánsdóttir
Darius Kochanas
Guðbrandur Sigurðsson
Kári Össurarson
Kristín Þórarinsdóttir
Kristján Einarsson
Ólöf Sigríður Valsdóttir
Sigmar Guðmundsson
Sigrún Hjörleifsdóttir
Sæmundur Oddsson
40 ára
Aðalheiður Jónsdóttir
Baldur Fannar Halldórsson
Berglind Eiríksdóttir
Björn Ólafsson
Emilía Jónsdóttir
Gestur Þorbjörn
Erlendsson
Hafrún Jónsdóttir
Heiðrún Grétarsdóttir
Hjálmar Sigurjón
Gunnarsson
Íris Jakobsdóttir
Jakub Gawronski
Karlotta Karlsdóttir
Kristbjörg Vala
Kristjánsdóttir
Krzysztof Jan Nazimek
Lilja Björk Hauksdóttir
Pawel Stanislaw Szczesny
Rósa Gunnarsdóttir
Sigmar Hrafn Eyjólfsson
Sigurður Jónsson
Supannee Srichakham
Til hamingju með daginn