Morgunblaðið - 06.04.2019, Page 45
DÆGRADVÖL 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2019
Rafvörumarkaðurinn við Fellsmúla | Sími: 585 2888
OPIÐ ALLA DAGA
Mán. til fös. kl. 9–18.
Laugard. kl. 10–16.
Sunnud. kl. 12–16
EITT LANDSINS
MESTA ÚRVAL
AF PERUM
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Ef þú þarft að láta í minni pokann
skaltu gera það með reisn. Einhver þér eldri
gefur þér góð ráð. Þakkaðu fyrir allt það
góða í lífinu.
20. apríl - 20. maí
Naut Það getur verið erfitt að draga lín-
urnar þegar aðilar eru á öndverðum meiði.
Reyndu að hrista slenið af þér því þú ert
fær í flestan sjó þó að þér finnist annað.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það getur verið einmanalegt að
bera of mikla ábyrgð og hafa of mikla stjórn
á hlutunum. Hættu að reiða þig á aðra og
farðu eftir eigin tilfinningum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er nauðsynlegt að eyða tíma
með ungviðinu og um leið að finna barnið í
sjálfum sér. Allir hafa þörf fyrir hól af og til.
Prófaðu og sjáðu hvað gerist.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er oft betra að geyma hlutina hjá
sér um stund heldur en að deila þeim strax
með öðrum. Láttu reyna á mátt samfélags-
miðla ef þig vantar vissan hlut.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það getur verið gott að bregða út af
vananum endrum og sinnum. Gerðu hreint
fyrir þínum dyrum og þá mun allt leysast af
sjálfu sér.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarft að finna jafnvægi milli vinnu
og fjölskyldulífs. Að vita að maður skapar
sína framtíð er í senn spennandi og ógn-
vænlegt.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Nú verður ekki lengur hjá því
komist að taka til hendinni því verkefnin
hafa hlaðist upp. Bittu endahnút á vinskap
sem þjónar engum tilgangi lengur.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Skildu vinnuna eftir á sínum
stað. Ekki gefast upp fyrr en í fulla hnefana
þegar kemur að ástamálunum. Þú færð
merkilegar fréttir.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú hefur verið hrókur alls fagn-
aðar að undanförnu og ættir að gefa sjálf-
um/sjálfri þér frí frá félagslífinu um stund.
Leitaðu ráða þegar þú ert ekki viss.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Að hjálpa öðrum gefur stundum
ekkert til baka, ekki einu sinni vissuna um
að hafa gert gott. Allt er með kyrrum kjör-
um í félagslífinu en það mun breytast.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú þarft ekki að hrökkva frá þótt til
þín sé leitað um forystu í máli sem þú telur
þig ekki vita nóg um. Settu heilsuna í fyrsta
sæti.
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Fjölda manna finnum hér.
Fríður knörr mun vera.
Stundum hurðar handfang er.
Í hendi sverð menn bera.
Hagyrðingum þótti gátan
strembin en sjálfur skýrir Guð-
mundur gátuna þannig:
Mannhring finna megum hér.
Mun skip hringur vera.
Hringur oft á hurðum er.
Hring stríðskappar bera.
Þá er limra:
Framsóknar foringinn slyngi
fimlega snerist í hringi,
en jafnvægið missti
og jörðina kyssti,
þegar hann féll af þingi.
Og síðan ný gáta eftir Guðmund:
Illa ganga yrkingar,
aumt er þetta tíðarfar,
og allar bjargir bannaðar,
berist ei við gátu svar:
Andinn, sem í brjósti býr.
Í biblíunni kóngur dýr.
Sést ei nokkur hræða hér.
Hjarta í brjóskfiskunum er.
Meðan ég skrifa þetta Vísnahorn
rifjast upp fyrir mér „Utan hrings-
ins“, ljóð Steins Steinarr. Við Ari
Jósefsson gátum aldrei gert upp við
okkur, hvort það væri heim-
spekilegs eðlis eða ástarkvæði, –
nema hvort tveggja sé!
Ég geng í hring
í kringum allt, sem er.
Og innan þessa hrings
er veröld þín.
Minn skuggi féll um stund
á gluggans gler.
Ég geng í hring
í kringum allt, sem er.
Og utan þessa hrings
er veröld mín.
Leirulækjar-Fúsi orti brúð-
arvers:
Situr hún á brúðbekk
býður ástar fram smekk
hennar skál í dag drekk
drós var aldrei mér þekk.
Vísað úr vinnu, – Káinn orti:
Góður, betri, bestur
burtu voru reknir;
illur verri verstur
voru aftur teknir.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Allt snýst í hring
eftir hring
Í klípu
„HVAÐ ER EIGINLEGA AÐ ÞÉR? ÞÚ
SKILDIR GLUGGANN EFTIR OPINN OG
LOFTKÆLINGUNA Á.”
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HVER PANTAÐI FIMM-STJÖRNU CHILI-
KÁSSU?”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að finna alltaf
föstudagsfiðringinn.
VIÐ SÝNUM AFTUR
AUGLÝSINGAR …
ÞEGAR ÞESSI
AUGLÝSING ER BÚIN
EN
FYRST …
ÆI,
Í ALVÖRU!
VITRINGUR! HVERSU
LENGI HEFUR ÞÚ
VERIÐ HÉR UPPI?
SVONA
LENGI, HA?
Eitt sinn var fyrirkomulag Evrópu-keppni félagsliða í fótbolta þann-
ig að meistarar í hverju landi fyrir
sig fóru í pottinn og síðan var dregið.
Öll lið voru í sama potti og íslensk lið
drógust á móti andstæðingum á borð
við Benfica, Juventus, Liverpool og
Real Madrid og allt gat gerst. Sama
fyrirkomulag var í Evrópukeppni
bikarhafa.
x x x
Nú er öldin önnur. Það er fyrirneðan virðingu stóru liðanna að
spila við minni spámenn í fjarlægum
löndum. Nú eru efstu liðunum í öfl-
ugustu deildunum tryggð sæti í
Meistaradeild Evrópu. Síðan eru
nokkur sæti til skiptanna fyrir lið
annarra deilda og þau geta keppt um
að hreppa þau og komast í riðla-
keppni Meistaradeildarinnar. Sú var
tíðin að snillingar á borð við Michel
Platini og Eusebio reimuðu á sig
skóna til að sparka bolta á Laug-
ardalsvelli með félagsliðum sínum,
en líkurnar á að þau örlög bíði hetja
á borð við Lionel Messi og Cristiano
Ronaldo eru hverfandi.
x x x
Nú vilja eigendur fínu liðanna íEvrópu þrengja enn að öðrum
liðum, ef ekki loka nálarauganu al-
veg. Tillögurnar um breytt fyr-
irkomulag hafa ekki verið birtar, en í
umræðunni er að 24 lið fái varanlegt
sæti í Meistaradeildinni og síðan
verði átta sæti til skiptanna háð ár-
angri liða heima fyrir. Þá verði um-
ferðir í Meistaradeildinni leiknar um
helgar, en ekki í miðri viku eins og
nú er.
x x x
Þessar hugmyndir falla reyndar ígrýttan jarðveg landsdeildanna.
Óttast forráðamenn í fótboltanum í
löndum á borð við England og
Þýskaland að þær dragi verulega úr
áhuga og geti jafnvel orðið banabiti
íþróttarinnar. Nú sé stór hluti
spennunnar hvaða lið nái að tryggja
sér þátttökurétt í Meistaradeildinni.
Virðast Englendingar og Þjóðverjar
staðráðnir í að koma í veg fyrir að
þessar áætlanir verði að veruleika,
draga eigi rauða línu við helgarnar
og yfir hana megi Meistaradeildin
ekki fara. vikverji@mbl.is
Víkverji
Ég horfi ekki á hið sýnilega heldur hið
ósýnilega. Hið sýnilega er stundlegt en
hið ósýnilega eilíft.
(Síðara Korintubréf 4.18)