Morgunblaðið - 06.04.2019, Blaðsíða 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2019
Útlína nefnist sýning sem opnuð
verður í Gerðarsafni í Kópavogi í
dag kl. 13. Á henni má sjá verk úr
safneign Gerðarsafns allt frá árinu
1950 til dagsins í dag. Á sýningunni
er útlínan notuð til þess að tengja
verk þvert á miðla, eins og segir í
tilkynningu. „Línan flæðir á milli
teikninga, málverka og prentverka
og útlínan öðlast eigið líf í (þrívíðu)
formi skúlptúra og rýmisverka. Út-
línan verður allt í senn: þráðurinn á
milli verka, afmörkun og enda-
leysa,“ segir þar um sýninguna sem
er hluti af +Safneigninni, rými á
neðri hæð safnsins sem tileinkað er
rannsóknum á safneign Gerðar-
safns þar sem gestum er gefinn
kostur á að kynnast innra starfi
safnsins.
Unnið verður að rannsóknum á
listaverkunum fyrir opnum dyrum
og mun gagnagrunnur um verkin
vaxa meðan á sýningu stendur, að
því er fram kemur í tilkynningu. Á
sýningunni megi því sjá verk sam-
hliða handteiknuðum leiðbein-
ingum, ljósmyndum, viðtölum við
listamenn og skráningarspjöldum.
Sýningarstjórar eru Brynja
Sveinsdóttir og Hrafnhildur Giss-
urardóttir.
Útlína tengir verk
saman þvert á miðla
Lína In house production I-III, verk eftir Theresu Himmer frá 2017.
Veronika S. Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Fyrsta einkasýning Almars S. Atla-
sonar, Búskipti, verður opnuð í dag
kl. 16 í menningarrýminu Midpunkt í
Hamraborg í Kópavogi. Á sýning-
unni freistar hann þess að skera í
sundur KitchenAid-hrærivél, al-
genga brúðkaupsgjöf, til að tákna að-
skilnað hluta sem ættu í raun ekki að
vera aðskildir. Viðfangsefnið er per-
sónulegt og heimspekilegt en sýn-
ingin snýst um tvískinnung alls –
hvar ólík sjónarhorn er að finna á
hinum ýmsu stöðum í daglegu lífi.
Skref út fyrir
þægindarammann
Almar vakti mikla athygli fyrir
verkefni sitt í myndlistardeild við
Listaháskóla Íslands árið 2015, þeg-
ar hann dvaldi í viku einsamall í
plexíglerkassa. Gjörningurinn hlaut
mikla og óvænta athygli og fylgdist
þjóðfélagið grannt með dvöl Almars í
kassanum gegnum samfélagsmiðla.
Almar er fyrst og fremst málari
þrátt fyrir ófáa gjörninga í gegnum
tíðina. Sýningin Búskipti er skref út
fyrir þægindarammann að hans
sögn: „Þetta er í raun ný tegund af
sýningu fyrir mig því það þarf svolít-
ið hugrekki fyrir mig að sýna eitt-
hvað þar sem enginn er á typpinu og
enginn er að meiða sig heldur ein-
hver „nenna“ fyrir tilfinningar og
liti,“ segir Almar. Hann segir að það
sem einkenni sýninguna sé hvernig
hægt sé að sjá hlutina á ólíkan hátt,
t.d. að grár sé hvítur ef hann er um-
kringdur svörtu. Einnig veltir hann
fyrir sér óþægindunum sem fylgja
því að slíta hlutina í sundur.
„Eins og ef sinnhvor verslunar-
stjórinn væri í verslunarrými í
Kringlunni. Hún væri slitin í sundur
og ómögulegt væri að vita hvaða
kassa maður ætti að fara á, allt væri í
rugli. Svo erum við að gera þetta all-
an daginn, við erum alla daga að slíta
í sundur veruleika sem við höldum að
eigi heima saman. Þetta snýst um
tvískinnung alls, til dæmis hvernig
Evrópusambandið sér Brexit, hvern-
ig Bretland sér Brexit og hvernig
grár er hvítur ef hann er umkringdur
svörtu.“
Kitchen Aid-hrærivél
sundurskorin
Á sýningunni verða ýmist mál-
verk, prentverk, höggmyndir og
myndbandsverk en Kitchen Aid-
gjörningurinn er einmitt tekinn upp
á myndband og sýndur á sýningunni
með tveimur sjónarhornum; sjón-
arhorni sýningarstjórans og sjón-
arhorni listamannsins.
„Nú eru Kitchen Aid-vélar algeng-
ar brúðkaupsgjafir en svo lendir fólk
í vandræðum þegar það á að skilja.
Þetta er svolítið eins og flekaskil.
Það er fáránlegt að hugsa til þess að
einu sinni hafi Skandinavía og Kan-
ada verið að kyssast einhvers staðar
á Íslandi,“ segir hann og bætir við að
aðgerðin að skera í sundur Kitchen
Aid-vél geti verið groddaleg og flókin
líkt og hjónaskilnaður. „Það er hægt
að hætta saman í einni setningu en
síðan er svo ótrúlega margt sem ger-
ist,“ segir hann.
„Almar í kassanum að eilífu“
Almar hefur haft í nógu að snúast
að undanförnu og hélt meðal annars
gjörning á sýningunni Ég býð mig
fram þar sem gestir og gangandi
fengu að húðflúra á honum bakið.
Eftir sitja 40 til 50 húðflúr á baki
Almars: „Nú er ég orðinn dýrgripur,
það þarf að koma þessu í einhverja
erfðaskrá og setja mig í formalín
þegar ég dey. Þá er það Almar í
kassanum að eilífu,“ segir Almar
léttur í bragði.
Þekkir fólk þig úti á götu vegna
gjörningsins?
„Ég held ég sé í rauninni blindur á
það. Fólk brosir voða mikið og kink-
ar kolli til mín og ég brosi voða mikið
til þess. Ég vil trúa að það sé vegna
þess að allir séu svo almennilegir,“
segir Almar.
Tilfinningahiti
og tvískinnungur
Sýning Almars Atlasonar, Búskipti, markar skref út fyrir
þægindarammann Ólík sjónarhorn eru höfð í hávegum
Morgunblaðið/Eggert
Í Midpunkt Almar í sýningarrýminum Midpunkt í Hamraborg.
Geigen býður upp á aðra tón-
leikaupplifun sína, Geigen Galaxy
#2, á Vorblótinu í Tjarnarbíói í
kvöld kl. 19. Geigen er teknóf-
iðludúó sem var stofnað í fyrra af
Gígju Jónsdóttur og Pétri Egg-
ertssyni en þau voru fiðluleikarar
í æsku en eru listafólk í dag, eins
og þau orða það sjálf. Gígja er
myndlistarkona og dansari en
Pétur tónskáld og plötusnúður.
Bæði vildu þau notfæra sér fiðlu-
hæfileika sína í listsköpun sinni
og fannst tímabært að upphefja
fiðluna í nútíma- eða framtíð-
arlegu samhengi, segir í tilkynn-
ingu og að Geigen Galaxy sé upp-
lifun sem blandi saman
vísindaskáldskap, fiðluleik og
barrokktísku allt við dúndrandi
taktfastan bassa í útfjólublárri og
neonlitaðri ljósadýrð. Sjón og
heyrn eru sögu ríkari, eins og sjá
má af þessari lýsingu.
Fjólublá Teknófiðludúóið Geigen.
Teknófiðludúóið
Geigen á Vorblóti
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Sun 7/4 kl. 13:00 Sun 5/5 kl. 13:00 Sun 19/5 kl. 16:00
Sun 7/4 kl. 16:00 Sun 5/5 kl. 16:00 Sun 26/5 kl. 13:00
Lau 13/4 kl. 12:00 Sun 12/5 kl. 13:00 Sun 26/5 kl. 16:00 Aukas.
Sun 14/4 kl. 13:00 Sun 12/5 kl. 16:00 Sun 2/6 kl. 13:00
Sun 14/4 kl. 16:00 Lau 18/5 kl. 13:00 Aukas. Lau 8/6 kl. 13:00
Sun 28/4 kl. 13:00 Lau 18/5 kl. 16:00 Aukas.
Sun 28/4 kl. 16:00 Sun 19/5 kl. 13:00
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Lau 13/4 kl. 19:30 Lau 4/5 kl. 19:30 Mið 8/5 kl. 19:30
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið)
Lau 6/4 kl. 19:30 Fös 3/5 kl. 19:30 Mið 22/5 kl. 19:30
Fös 12/4 kl. 19:30 Fim 9/5 kl. 19:30
Fyndinn og erótískur gamanleikur
Þitt eigið leikrit (Kúlan)
Lau 6/4 kl. 15:00 Lau 13/4 kl. 15:00 Sun 28/4 kl. 17:00
Sun 7/4 kl. 15:00 Lau 13/4 kl. 17:00
Sun 7/4 kl. 17:00 Aukas. Sun 28/4 kl. 15:00
Það er þitt að ákveða hvað gerist næst!
Súper - þar sem kjöt snýst um fólk (Kassinn)
Lau 6/4 kl. 19:30 Aukas. Fim 11/4 kl. 19:30 Mið 24/4 kl. 19:30
Mið 10/4 kl. 19:30 Aukas. Fös 12/4 kl. 19:30 Fös 26/4 kl. 19:30
Nýtt og bráðfyndið leikrit, fullt af "gnarrískum" húmor
Loddarinn (Stóra Sviðið)
Lau 27/4 kl. 19:30 Frums. Fös 10/5 kl. 19:30 4.sýn Fim 23/5 kl. 19:30
Þri 30/4 kl. 19:30 2.sýn Lau 11/5 kl. 19:30 5.sýn
Fim 2/5 kl. 19:30 3.sýn Fös 17/5 kl. 19:30 6.sýn
Hárbeitt verk eftir meistara gamanleikjanna
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 10/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Brúðkaup Fígaros (Stóra Sviðið)
Lau 7/9 kl. 19:30 Frums. Fös 20/9 kl. 19:30 3.sýn Lau 28/9 kl. 19:30 5.sýn
Sun 15/9 kl. 19:30 2.sýn Lau 21/9 kl. 19:30 4.sýn Lau 5/10 kl. 19:30 6.sýn
Óborganlegu gamanópera eftir meistara Mozart
Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 6/4 kl. 19:30 Lau 6/4 kl. 22:00
Dimmalimm (Brúðuloftið)
Lau 6/4 kl. 14:00 Lau 13/4 kl. 15:00 Lau 27/4 kl. 15:30
Lau 6/4 kl. 15:30 Lau 27/4 kl. 14:00
Ástsælasta ævintýri þjóðarinnar
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Matthildur (Stóra sviðið)
Sun 7/4 kl. 19:00 16. s Þri 30/4 kl. 19:00 26. s Mið 29/5 kl. 19:00 36. s
Mið 10/4 kl. 19:00 17. s Fim 2/5 kl. 19:00 27. s Fim 30/5 kl. 19:00 37. s
Fös 12/4 kl. 19:00 18. s Fös 3/5 kl. 19:00 aukas. Sun 2/6 kl. 19:00 38. s
Lau 13/4 kl. 13:00 19. s Mið 8/5 kl. 19:00 29. s Mið 5/6 kl. 19:00 39. s
Sun 14/4 kl. 19:00 20. s Fim 9/5 kl. 19:00 30. s Fim 6/6 kl. 19:00 40. s
Þri 16/4 kl. 19:00 21. s Mið 15/5 kl. 19:00 31. s Fös 7/6 kl. 19:00 41. s
Mið 24/4 kl. 19:00 22. s Fim 16/5 kl. 19:00 32. s Mán 10/6 kl. 19:00 42. s
Fim 25/4 kl. 19:00 23. s Mið 22/5 kl. 19:00 33. s Fim 13/6 kl. 19:00 43. s
Fös 26/4 kl. 19:00 24. s Fim 23/5 kl. 19:00 34. s Fös 14/6 kl. 19:00 44. s
Sun 28/4 kl. 19:00 25. s Sun 26/5 kl. 19:00 35. s Sun 16/6 kl. 19:00 45. s
Stundum ég þarf að vera svolítið óþekk!
Elly (Stóra sviðið)
Lau 6/4 kl. 20:00 210. s Sun 5/5 kl. 20:00 213. s Fös 31/5 kl. 20:00 217. s
Lau 13/4 kl. 20:00 211. s Sun 12/5 kl. 20:00 214. s Lau 8/6 kl. 20:00 218. s
Lau 27/4 kl. 20:00 212. s Fös 17/5 kl. 20:00 215. s Lau 15/6 kl. 20:00 Lokas.
Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fös 24/5 kl. 20:00 216. s
Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!
Ríkharður III (Stóra sviðið)
Fim 11/4 kl. 20:00 Lokas.
Allra síðasta sýning!
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Lau 6/4 kl. 20:00 Lokas.
Allra síðasta sýning!
Kæra Jelena (Litla sviðið)
Fös 12/4 kl. 20:00 Frums. Fös 26/4 kl. 20:00 7. s Mið 8/5 kl. 20:00 12. s
Sun 14/4 kl. 20:00 3. s Sun 28/4 kl. 20:00 8. s Fös 10/5 kl. 20:00 13. s
Þri 16/4 kl. 20:00 4. s Fim 2/5 kl. 20:00 9. s Sun 12/5 kl. 20:00 14. s
Mið 24/4 kl. 20:00 5. s Fös 3/5 kl. 20:00 10. s Mið 15/5 kl. 20:00 15. s
Fim 25/4 kl. 20:00 6. s Sun 5/5 kl. 20:00 11. s
Kvöld sem breytir lífi þínu.
Club Romantica (Nýja sviðið)
Lau 13/4 kl. 20:00 Lokas.
Allra síðustu sýningar.
Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið)
Lau 13/4 kl. 20:00 aukas.
Aukasýning komin í sölu.
Bæng! (Nýja sviðið)
Fös 26/4 kl. 20:00 Frums. Mið 8/5 kl. 20:00 4. s Fim 23/5 kl. 20:00 7. s
Sun 28/4 kl. 20:00 2. s Fim 9/5 kl. 20:00 5. s Sun 26/5 kl. 20:00 8. s
Fös 3/5 kl. 20:00 3. s Fim 16/5 kl. 20:00 6. s Fim 30/5 kl. 20:00 9. s
Alltof mikið testósterón
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fim 9/5 kl. 20:00 aukas. Lau 11/5 kl. 20:00 aukas.
Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!