Morgunblaðið - 06.04.2019, Blaðsíða 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2019
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ég var staddur á einhverriAirwaveshátíðinni fyrirmargt löngu (finnst mér) og
Kristín Anna var að ljúka mögnuðu
setti í Fríkirkjunni. Heyra mátti
saumnál detta á meðan Kristín lék á
píanóið. Nei, „lék“ nær þessu ekki,
hún verður ein með píanóinu, fer inn
í það eiginlega og innlifunin er með
miklum ólíkindum. Þetta vita þeir
sem hafa sótt með henni tónleika og
þeir eru efalaust kinkandi kolli við
þennan lestur.
Kjartan Sveinsson, sem stýrir
upptökum á þessari plötu hér, I
must be the devil, var í kirkjunni og
ég rakst á hann þegar fólk var að
yfirgefa svæðið í lok tónleika.
„Verður þetta ekki gefið út?“ spurði
ég hann og nánast þreif í frakkann
hans. Með sárbænandi
augum. „Jújú, þetta kem-
ur út,“ sagði hann kank-
vís, og sá um leið á mér
aumur. „Við erum að
vinna í því að það gerist.
Það mun gerast!“
Já, því að platan er
búin að vera lengi í því
ferli, og hafa óstöðugir
(eins og ég) verið að ærast og það
fullkomlega. Þið getið því rétt
ímyndað ykkur þá strauma sem
runnu um mig þegar ég fékk loksins
tölvupóst frá skrifstofu Ragnars
Kjartanssonar um að dæmið væri
loks klárt. Bel-Air Glamour
Records, útgáfa á hans snærum,
kom óðar á mig eintaki, og var það
Hver djöfullinn
Ljósmynd/Ari Magg
starfsmaður þar sem afhenti (síð-
ustu plötu, Howl, fékk ég hins vegar
senda með leigubíl en það er önnur
saga).
Howl (2015) var án efa lang-
besta plata þess árs og ég varð orð-
laus þegar ég heyrði það verk. Þar
er rödd Kristínar sett í
hljóðlykkjur sem svo
streyma fram undir
draugalegri hljóðmottu.
Röddin rís og fellur
leiðslubundið og maður
fór í hálfgerðan trans við
að hlusta. Galdur. Þetta
reit ég á sínum tíma:
„Það er nefnilega eitt-
hvað í gangi á þessari plötu sem erf-
itt er að orða, einhver kynngikraft-
ur sem læsir sig um hljóðrásirnar.
Þetta tilkomumikla verk felur þá í
sér sterka, listræna yfirlýsingu.
Ekki er sleginn þumlungur af; átta-
tíu mínútur af nánast sama töfrum
slegna stefinu eða ekki neitt!“ Ég
stend við hvert orð.
I must be the devil er allt öðru-
vísi verk. Hér eru „lög“, hvar stuðst
er við píanóið, en tónlistin var samin
á árunum 2005-2017. Píanó og rödd
eru einkennandi, en hér eru líka
strengir, bassar og ýmislegt annað
sem styðja við framvinduna. Lög
segi ég, en í þeim öllum er eitthvert
„x“ sem verður trauðla lýst. Hvern-
ig stendur á því að maður heyrir
kannski mjög áþekka tónlist eftir
annan listamann og þar er ekkert að
gerast, en svo heyrir maður í tónlist-
arkonu eins og Kristínu Önnu, sem
er einfaldlega að spila á píanó og
syngja, og maður er gjörsamlega á
bríkinni frá fyrsta tóni! Sumir hafa
bara höndlað eitthvað sem við dauð-
legir eigum ekki möguleika á að
skilja.
„Tónlistin sem ég hafði verið að
semja í gegnum árin var mjög per-
sónulegt mál,“ hefur Kristín Anna
sagt. „Til þess að komast af tilfinn-
ingalega og andlega.“ Þetta heyrist
vel, enda farið inn í kviku við hvert
slag og hverja nótu. Ég mun aldrei
gleyma því er ég tók einu sinni við-
tal við hana og hún settist við píanó í
því miðju og spilaði fyrir mig. „Þetta
er geðveikt,“ hugsaði ég, „en á lík-
lega aldrei eftir að komast almenni-
lega út.“ En nú er þetta komið út. Til
allrar hamingju. Og hér er ég líka
að dæsa yfir þeim fáránleika að vera
að reyna að skrifa eitthvað um
þetta. Því að þessi tónlist sleppur
svo gjörsamlega undan öllu slíku.
Galdur. Alger.
» Píanó og rödd erueinkennandi, en hér
eru líka strengir, bassar
og ýmislegt annað sem
styðja við framvinduna.
Lög segi ég, en í þeim
öllum er eitthvert „x“
sem verður trauðla lýst.
I must be the devil er
ný breiðskífa Kristínar
Önnu Valtýsdóttur og
sannar að hún er með
fremstu tónlistarmönn-
um landsins. Innihaldið
er engu líkt.
Listakona Kristín
Anna veit að djöfullinn
er með öll bestu lögin …
Menntaskólinn í tónlist býður upp á
söngleikjasprengju í kvöld kl. 20 í
stóra salnum í Háskólabíói. „Gríð-
arstór leikhópur, orkestra og rytm-
ísk hljómsveit leiða áhorfendur í
gegnum söngleikjasöguna með
söng, dansi og hljóðfæraleik,“ segir
um viðburðinn á tix.is og verða á
sýningunni flutt þekkt atriði úr
mörgum vinsælustu söngleikjum
Broadway. Í hópi sýnenda eru ung-
ir og efnilegir tónlistarnemendur
skólans sem leggja stund á söng-
nám og hljóðfæraleik og ungir
dansarar koma fram undir hand-
leiðslu danshöfundarins Chantelle
Carey.
Sýningin er hugarsmíð Carey og
verða flytjendur um 80 í heildina.
Carey hefur komið fram í fjölda
söngleikja á West End í London og
víðar og þá m.a. í Chicago og Jo-
seph and the Amazing Technicolor
Dreamcoat. Hún hefur hlotið tvenn
Grímuverðlaun fyrir dansverk, fyrir
Bláa hnöttinn og Slá í gegn, var að-
stoðardanshöfundur í Billy Elliot
og Mamma Mia í Borgarleikhúsinu
og hefur stýrt sviðsframkomu í
söngsýningum MÍT og kennir nú
líka hreyfingu við skólann, skv. til-
kynningu. Aðrir listrænir stjórn-
endur sýningarinnar eru Jóhann G.
Jóhannsson, Ingvar Alfreðsson,
Þórunn Guðmundsdóttir, Örn Árna-
son og Pálmi Sigurhjartarson.
Morgunblaðið/Hari
Margreynd Chantelle Carey danshöfundur átti hugmyndina að sýningunni.
Söngleikjasprengja
Menntaskólans í tónlist
Snjóbretta- og tónlistarhátíðinni
AK Extreme hefur verið aflýst en
hún átti að venju að fara fram um
páskana á Akureyri. Hátíðin var
fyrst haldin árið 2002 og hefur
snjóbrettafólk m.a. sýnt listir sínar
í miðbænum þar sem tónleikar hafa
einnig verið haldnir. Ekki fylgir
sögunni hvers vegna hátíðinni í ár
var aflýst en á vef hennar kemur
fram að halda eigi hátíðina á næsta
ári. Á Facebook-síðu hátíðarinnar
segir að vegna óviðráðanlegra að-
stæðna nái skipuleggjendur ekki að
halda hátíðina í ár en muni koma
sterkari inn á næsta ári og hafi haf-
ist handa við undirbúning.
Aflýst Emmsjé Gauti á AK Extreme 2017.
Hátíðinni AK
Extreme aflýst
Tónlistarfélag
Akureyrar
stendur fyrir
brasilísku karni-
vali í menning-
arhúsinu Hofi á
morgun kl. 18.
Anna Breiðfjörð
danskennari hef-
ur karnivalið
með því að
kenna þátttak-
endum réttu sporin í hinni seið-
mögnuðu sömbu sem dönsuð er
jafnan á karnivölum. Ríó kvart-
ettinn leikur fyrir þeim dansi og
kl. 19 verður borinn fram bras-
ilískur matur og drykkur á 1862
Bistró. Klukkan 20 leikur Ríó
kvartett brasilíska tónlist. Kvart-
ettinn skipa Rodrigo Lopes, Dani-
ele Basini, Michael Weaver og
Stefán Ingólfsson.
Brasilískt karnival
haldið í Hofi
Dansari á karnivali í
Ríó de Janeiro.
Trymbilvikan
Nú mæta allir trymblar sem á kjuðum geta haldið.
Ný sett, symbalar, statíf og allskonar trommur og
slagverksdót á sérstöku tilboðsverði þessa
skemmtilegu og sérstöku trymbilviku 2019.
Vikan fyrir páska: 8. - 13. apríl
S k i p h o l t i 5 0 d • 5 5 2 1 1 8 5 • t o n a s t o d i n . i s