Morgunblaðið - 13.04.2019, Qupperneq 1
Ásdís Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
Yngvi Ólafsson, yfirlæknir á bæklun-
arskurðdeild Landspítalans, telur að
þröngur húsakostur og skortur á
læknum og legurými séu helstu
ástæður biðlista sem myndast hafa
eftir liðskiptaaðgerðum. Vegna frá-
flæðisvanda finnist ekki pláss fyrir
nýja sjúklinga. Hann telur vel koma
til greina að semja við einkastofn-
unina Klíníkina til að létta á biðlistum.
„Ég myndi fyrst og síðast byggja
upp þessa stofnun sem ég er að vinna
hjá. En á meðan finnst mér að sá
möguleiki að semja við Klíníkina ætti
að vera uppi á borði. Sem tímabundin
lausn. Það eru þúsund manns á bið-
lista með sínar þjáningar. Mér finnst
sjálfsagt að reyna að koma þeim til
hjálpar á einhvern hátt,“ segir Yngvi í
viðtali í Sunnudagsblaði Morgun-
blaðsins um helgina.
Gafst upp á biðinni
Einnig má þar finna viðtal við
bæklunarskurðlækninn Hjálmar Þor-
steinsson á Klíníkinni og hinn 71 árs
Sigurð Sigmannsson sem beið í tvö ár
með stigversnandi verki í hné. Hann
er einn af mörgum Íslendingum sem
lenda á löngum biðlistum; fyrst eftir
viðtali við lækni og svo eftir aðgerð. Á
meðan var líf hans í biðstöðu og lífs-
gæðin minnkuðu.
Sigurður gafst að lokum upp á bið-
inni og borgaði sjálfur aðgerð á Klín-
íkinni; aðgerð sem hann vill fá endur-
greidda sem sín sjálfsögðu mann-
réttindi.
„Ég er nú hættur að vinna (sem ég
ætlaði alls ekki að gera strax, en
varð), orðinn ellilífeyrisþegi og hef
greitt mína skatta og skyldur frá 14-
15 ára aldri samviskusamlega. Þá
finnst mér það ansi hart að þurfa að
borga fyrir heilbrigðisþjónustu sem
er svo til lífsnauðsynleg.“
Myndi stytta biðlistana
Yfirlæknirinn Yngvi Ólafsson telur að semja ætti við Klíníkina tímabundið
MBiðlistar »24 og Sunnudagur
Morgunblaðið/Ásdís
Biðlistar Þúsund manns eru enn á
biðlistum eftir liðskiptaaðgerðum.
L A U G A R D A G U R 1 3. A P R Í L 2 0 1 9
Stofnað 1913 88. tölublað 107. árgangur
HÚN LÉT FÓLK
HAFA ÞAÐ
ÓÞVEGIÐ AFMÆLI TRÍÓ NORDICA
ÁST Á TÓNLIST OG VINÁTTA 42
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
A
c
ta
v
is
7
1
1
0
3
0
Betolvex
B-12
H
Fæst án
lyfseðils
Við mikla kátínu viðstaddra undirrituðu ráðherrar vilja-
yfirlýsingu í gær á málþingi Geðhjálpar og Bergsins um að
veita 60 milljónir króna til Bergsins næstu tvö árin. Bergið er
svokölluð lágþröskuldaþjónusta sem byggist á áströlsku úr-
ræði fyrir ungt fólk, er nefnist Headspace. Hugmyndafræðin
byggist á því að ungt fólk á aldrinum 12-25 ára geti gengið að
því vísu að eiga kost á því að leita til einhvers, sama hversu
stór eða lítil vandamálin eru. Einnig er gert ráð fyrir að leitað
verði eftir stuðningi meðal fyrirtækja og annarra aðila sem
bera samfélagslega ábyrgð. Ólafur Stefánsson, fyrrverandi
landsliðsfyrirliði í handbolta, var með erindi á málþinginu og
brá á leik við undirritunina eins og honum einum er lagið.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fyrrverandi landsliðsfyrirliði hvatti ráðamenn til dáða
GUÐNÝ SKOÐAR GUÐRÚNU 14