Morgunblaðið - 13.04.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2019
Njóttu þess að hlakka til
Cabo Verde með VITA
Flogið með Icelandair
8nætur, 4.–13. nóvember
Verð frá246.100 kr.
á mann m.v. 2 í tvíbýli – allt innifalið!
Club Hotel Riu Funana★★★★★
„Ég held að allir séu nú að klára að
henda dóti í töskur fyrir markað-
inn. Það er búið að fara góður tími í
að skipuleggja þetta og nú er allt að
smella,“ segir Kristín Lea Sigríðar-
dóttir við Morgunblaðið.
Vísar hún í máli sínu til fata-
markaðar fyrrverandi starfsmanna
flugfélagsins WOW air sem haldinn
verður í dag, laugardaginn 13. apr-
íl, milli klukkan 12 og 18 í Holta-
görðum í Reykjavík. Þar munu um
80 fyrrverandi WOW-liðar bjóða
gestum og gangandi að kaupa fatn-
að ýmiss konar, heimilis- og snyrti-
vörur og skart. Vert er að benda
áhugasömum á að einungis verður
hægt að greiða fyrir vörurnar með
peningum.
„Þetta verður stórglæsilegur
markaður. Helst verða föt til sölu,
einhverjir fylgihlutir, skart, barna-
og heimilisvörur. Svo grunar mig
að einhverjar flugfreyjur muni
selja gamalt kaupæði úr Ameríku-
flugunum,“ segir Kristín Lea og
hlær við. Spurð hvort hægt verði að
kaupa búninga frá WOW air kveður
hún nei við. „Kannski verður eitt-
hvert WOW-dót en ekki búningur-
inn – hann er orðinn safngripur.“
Gamlir starfsmenn hins fallna flugfélags WOW air opna markað í Holtagörðum í Reykjavík
Markaður
WOW-liða
opnaður í dag
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Rannsókn á áhrifum lyfs á sjúklinga
með arfgenga heilablæðingu hefst á
næstunni. Hún er eingöngu fram-
kvæmd hér á landi enda hefur
stökkbreyting á geninu sem veldur
sjúkdómnum aðeins fundist í fólki á
Íslandi, raunar aðeins í fáeinum
fjölskyldum.
Bakhjarl rannsóknarinnar er
Arctic Therapeutics, fyrirtæki sem
Hákon Hákonarson, barnalæknir í
Fíladelfíu í Bandaríkjunum,
sérfræðingur í lungna- og gena-
rannsóknum, stofnaði ásamt félaga
sínum í því skyni að framkvæma
rannsóknina. Hann er eins og fram
hefur komið tengdur Katrínu Björk
Guðjónsdóttur á Flateyri fjöl-
skylduböndum en hún hefur blogg-
að mikið um bataferli sitt.
Engin meðferð til
Engin meðferð hefur verið til við
arfgengri heilablæðingu. Hákon
segir að lyfið lofi góðu, miðað við
áhrif þess á frumur, mýs og þá fáu
einstaklinga sem hafi tekið það.
Þurfi þó að rannsaka það frekar.
„Við vonumst til að hægt verði í
framtíðinni að byrja að nota þetta
lyf hjá börnum til að koma alger-
lega í veg fyrir að sjúkdómurinn
þróist nokkurn tímann,“ skrifar Há-
kon.
Samkvæmt upplýsingum frá Há-
koni er tilgangur rannsóknarinnar
að leggja mat á öryggi, þolanleika
og virkni lyfsins NAC hjá einstak-
lingum 18 ára og eldri sem eru með
stökkbreytinguna sem veldur heila-
blæðingunni. Notað er þekkt lyf
sem skráð er og markaðssett hér á
landi og hefur staðist allar tilskildar
prófanir fyrir skráningu.
Rannsóknin verður framkvæmd á
Landspítalanum í Fossvogi og er
ábyrgðarmaður hennar Elías Ólafs-
son, sérfræðingur í taugasjúkdóm-
um. Áætlað er að allt að 50 ein-
staklingar af báðum kynjum muni
taka þátt í henni.
Boðið að láta greina sig
Samkvæmt upplýsingum Há-
konar verður leitað til einstaklinga
sem taldir eru eiga á hættu að vera
með stökkbreytt gen vegna fjöl-
skyldusögu. Þótt leitað sé til þeirrra
sem eru í áhættuhópnum þýðir það
ekki að allir hafi stökkbreytt gen en
fólkinu er þá gefinn kostur á að láta
kanna það. Ef viðkomandi reynist
bera genið verður honum boðið að
taka þátt í rannsókninni með því að
taka lyfið NAC í níu mánuði og láta
meta hversu mikil lækkun verður á
tilteknum óæskilegum eggjahvítu-
efnum í blóði, þvagi og útfellingum í
húð.
Reynt að stöðva sjúkdóminn í börnum
Morgunblaðið/G. Rúnar
Mannhaf Fáir einstaklingar hafa greinst með arfengt heilablóðfall.
Frumathugun á lyfi sem nota á við arfgenga heilablæðingu lofar góðu Rannsókn er að hefjast hér á
landi á áhrifum lyfsins á fullorðna sjúklinga Notað er lyf sem skráð er og markaðssett hér á landi
Arfgeng heilablæðing
» Stökkbreyting á geni sem
veldur arfgengri heilablæðingu
finnst í fimm fjölskyldum á Ís-
landi og er ekki þekkt annars
staðar í heiminum. Vitað er að
milli 20 og 30 einstaklingar
eru með þennan sjúkdóm en
vísindamenn reikna með að
þeir séu mun fleiri.
» Í rannsókn sem senn hefst
verður fólki í áhættuhópi
vegna fjölskyldusögu boðið að
láta greina hvort það ber sjúk-
dóminn.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við getum ekki hent þeim út, félög-
unum,“ segir Sigurður Víðisson, for-
stöðumaður Sundhallar Reykjavík-
ur.
Fastagestir í lauginni supu marg-
ir hveljur í byrjun vikunnar þegar
tilkynnt var að karlaklefinn yrði lok-
aður vegna viðhalds í næstu viku.
Töldu laugargestir að karlarnir
yrðu að sitja heima meðan konurnar
hefðu laugina út af fyrir sig. Svo
verður þó ekki, að sögn Sigurðar.
„Það var hengdur upp miði og
þetta var eitthvað illa orðað þar. Ég
fór í málið og þetta er vonandi að-
eins skiljanlegra núna. Karlarnir fá
að nota gamla kvennaklefann með-
an á viðhaldi stendur,“ segir Sig-
urður.
Umrætt viðhald felst að sögn Sig-
urðar aðeins í þrifum sem ekki er
hægt að framkvæma meðan klef-
arnir eru í notkun. Munu þrifin
standa yfir á mánudag og þriðjudag.
Ekki stendur til að breyta eða hrófla
á neinn hátt við klefunum sem eru
mörgum kærir. „Það má enda ekk-
ert gera í þessu húsi. Það verður allt
að vera eins og það hefur verið.“
Ekki er þó allt eins og verið hefur
í Sundhöllinni um þessar mundir því
stóra stökkbrettið hefur verið lokað
um hríð vegna viðgerða. „Það var
ónýt undirstaðan á því og þurfti að
endurhanna brettið. Við erum alltaf
að ýta á að verkið klárist enda rýrir
þetta gæðin hér,“ segir forstöðu-
maðurinn.
Karlar verða sendir í kvenna-
klefann í Sundhöll Reykjavíkur
Loka karlaklefa vegna viðhalds Fastagestum brugðið
Morgunblaðið/Gísli Sigurðsson
Sundhöll Reykjavíkur Hressa þarf
upp á gamla góða karlaklefann.