Morgunblaðið - 13.04.2019, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2019
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, for-
maður skipulags- og samgönguráðs
Reykjavíkur, segir uppbyggingu nýs
íbúðahverfis í Skerjafirði geta hafist
fyrir áramót. Ætlunin sé að ljúka
nýju deiliskipulagi í haust. Það sé
unnið í samstarfi
við aðila sem hafa
fengið vilyrði
fyrir lóðum.
Miðað við að
framkvæmdir
hefjist í desem-
ber, og að upp-
byggingin taki 18
mánuði, gætu
fyrstu íbúðirnar
komið á markað
um mitt ár 2021.
Borgarráð samþykkti fyrir helgi
áætlun um úthlutun lóða í hverfinu.
Þar er áætlað að verði 1.250 íbúðir
þegar hverfið er fullbyggt en upp-
byggingin verður áfangaskipt.
Í fyrsta áfanga er ætlunin að
byggja upp reiti 1-10 nyrst á skipu-
lagssvæðinu. Þar verða 600-700
íbúðir í fjögurra til fimm hæða hús-
um. Reitir 1-3 verða boðnir út til
smærri byggingaraðila en reitir 4, 6
og 10 til stærri byggingaraðila. Reit-
ur 5 fer undir hagkvæmt húsnæði,
reitur 7 til Félagsstofnunar stúd-
enta, reitur 8 undir bílastæðahús og
Reitur 9 til Bjargs íbúðafélags.
Áhersla á deiliíbúðir
„Reitur 6 verður sérstaklega aug-
lýstur fyrir aðila sem vilja byggja
deiliíbúðir, þ.e.a.s. litlar íbúðir með
sameiginleg rými á jarðhæð; þvotta-
hús, setustofu o.s.frv.,“ segir Sigur-
borg Ósk. Nokkrir reitir verði
eyrnamerktir smærri verktökum til
að stuðla að fjölbreytni á byggingar-
markaði. Þá sé hagkvæma húsnæðið
ætlað ungu fólki og fyrstu kaupend-
um, alls 70-100 íbúðir á reit 5. Jafn-
framt hafi Félagsstofnun stúdenta
fengið vilyrði fyrir 160 íbúðum og
Bjarg íbúðafélag vilyrði fyrir 100
íbúðum. Bjarg er fyrir tekjulága.
Sigurborg Ósk segir ekki gert ráð
fyrir bílakjöllurum í hverfinu. „Með
þessu erum við að lækka byggingar-
kostnaðinn við hvert hús. Þetta gef-
ur jafnframt meiri sveigjanleika í
skipulagi. Við getum þá m.a. komið
fyrir blágrænum ofanvatnslausnum
og gróðursett meira. Það er erfitt að
hafa stór og falleg tré ef bílakjallarar
eru undir öllum húsum. Þá er minna
rými fyrir rætur. Bílakjallari er með
steypt yfirborð og hleypir engu vatni
í gegnum sig en blágrænar ofan-
vatnslausnir snúast einmitt um að
nýta jarðveginn og yfirborð til að
hreinsa rigningarvatnið. Við viljum
hafa náttúrulegt svæði fyrir rigning-
arvatnið,“ segir Sigurborg Ósk.
Hún vísar til þess að vestan við
nýja hverfið, á grænu svæði milli
gamla og nýja Skerjafjarðar, verði
tjarnir þar sem rigningarvatn mun
safnast saman.
Erfitt að samnýta bílakjallara
„Þá eru bílakjallarar alltaf erfiðir
hvað varðar samnýtingu. Stundum
standa þeir hálftómir. Þetta snýst
um að ná sem bestri nýtingu á bíla-
stæðum,“ segir Sigurborg Ósk.
Hún segir reiti 11-25 verða skipu-
lagða í kjölfar þess að framkvæmda-
leyfi er gefið út fyrir nyrðri reitina.
Syðstu reitirnir verði á landfyllingu
sem skapi land fyrir íbúðarhúsnæði.
„Það þarf að undirbúa landfyll-
inguna vel. Svo þarf að fá grænt ljós
frá Skipulagsstofnun, m.a. varðandi
hvort meta þurfi umhverfisáhrifin.“
Landfylling fyrir brúna
Við gerð fyrirhugaðrar brúar yfir
Fossvog, sunnan við einn flugbraut-
arendann, verði gerð lítil landfylling.
„Sú landfylling verður nýtt til þess
að flytja efni til og frá þessu Skerja-
fjarðarsvæði við uppgröft húsanna
en þarna er líka mengaður jarðvegur
sem mögulega þarf að færa til,“ segir
Sigurborg. Landfyllingar verði ekki
hefðbundnar grjótfyllingar eins og
t.d. við Sæbraut heldur verði þær
með miklum jarðvegi og sandi. Með
því endurheimtist vistkerfi sem
skapi náttúrulega strönd.
Hæstu húsin í hverfinu verði 4-5
hæðir en húsin næst flugbrautinni
tvær hæðir. Nýja hverfið verði í góðu
samræmi við gamla Skerjafjörðinn.
„Við náum mjög góðum þéttleika á
íbúðum en um leið er gert ráð fyrir
mikilli breidd í samsetningu íbúa
sem birtist í lóðaúthlutunum.“
Íbúðir á landfyllingu
í nýjum Skerjafirði
Formaður skipulagsráðs segir nýja hverfið mjög blandað
1-3. Útboð, smærri byggingaraðilar
4, 6 og 10. Útboð, stórir byggingaraðilar
5. Hagkvæmt húsnæði
7. Félagsstofnun stúdenta
8. Bílastæðahús
9. Bjarg
1
6
7 8 9
10
11
12 13 14 15
17 18 19
20 21
22
2324 25
16
2 3 4 5
750 íbúðir er alls gert ráð fyrir í 1. áfanga
Nýtt hverfi í Skerjafirði, 1. áfangi
Drög að úthlutunaráætlun fyrir norðurhluta skipulagssvæðisins
H
ei
m
ild
:
Re
yk
ja
ví
ku
rb
or
g
R EY K JAV Í K
Skerjafjörður
Sigurborg Ósk
Haraldsdóttir
Fylgist með á facebook • Skoðið laxdal.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
FISLÉTTIR JAKKAR
Flottir í ferðalögin
Gallabuxur
/strechbuxur
frá 9.900 kr
Frá 19.900 kr.
Opið 11-15 í dag
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Síðar skyrtur
Kr. 17.900
Str. 36-48
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Churchill klúbburinn kynnir
spennandi hádegisfyrirlestur:
NO MORE CHAMPAGNE;
Churchill and His Money
Fyrirlesari: David Lough sagnfræðingur og fjárfestir.
Dagur: Í dag, laugardaginn 13. apríl 2019.
Staður: Fyrirlestrasalur Þjóðminjasafns Íslands, Suðurgötu 41.
Tími: Húsið opnað kl. 12. Fyrirlestur hefst kl. 12:30
og fundi lýkur kl. 13:30
Spennandi hádegisfyrirlestur um brokkgeng fjármál Winstons
Churchills. Stærstan hluta ævinnar lifði Churchill um efni fram sem
þýddi að hann þurfti að hafa sig allan við til að forðast gjaldþrot
og sendi því frá sér skæðadrífu bóka og blaðagreina. Á fjórða
áratugnum var hann hæstlaunaðasti penni Bretlands. David Lough
fyrirlesari þessa fundar er höfundur frábærrar metsölubókar um
efnið sem varpar nýju og áhugaverðu ljósi á ævi og lífshlaup
þessa merkasta stjórnmálaleiðtoga 20. aldarinnar.
Boðið verður upp á léttar kaffiveitingar fyrir fund.
Allir velkomnir. Þátttaka ókeypis.
CHURCHILL KLÚBBURINN á ÍSLANDI
affiliate: International Churchill Society
Landsréttur hef-
ur sýknað Ríkis-
útvarpið af kröf-
um Steinars
Bergs Ísleifs-
sonar, en Steinar
Berg krafði RÚV
um miskabætur
og afsökunar-
beiðni vegna
endurvarps á ummælum tónlistar-
mannsins Bubba Morthens í þætt-
inum Popp- og rokksaga Íslands.
Fram kemur í dómi Landsréttar
að RÚV uni því þó að því sé óheimilt
að sýna þáttinn þar sem Bubbi lét
ummælin í garð Steinars Berg falla.
Ríkisútvarpið þarf þó ekki að
greiða Steinari miskabætur né
birta dómsorð á vef sínum, ruv.is,
eins og farið hafði verið fram á.
RÚV krafðist og fékk sýknu í
málinu á þeim grundvelli að Bubbi
Morthens hefði einn og sér verið
ábyrgur fyrir þeim ummælum sem
hann lét falla um Steinar Berg og
þeirra viðskiptasamband á árum
áður.
Héraðsdómur Reykjavíkur
dæmdi þónokkur ummæli Bubba
dauð og ómerk, meðal annars þau
sem hann lét falla í 7. þætti þátta-
raðarinnar Popp- og rokksaga Ís-
lands. Þátturinn birtist á RÚV í
mars 2016 og síðan endursýndi
RÚV einnig þáttinn og gaf þátta-
röðina út á DVD-diskum.
RÚV sýknað af kröf-
um Steinars Bergs