Morgunblaðið - 13.04.2019, Side 20

Morgunblaðið - 13.04.2019, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2019 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Húsið sem hýsa á starfsemi Hafrann- sóknastofnunar við Fornubúðir í Suðurhöfninni í Hafnarfirði er óðum að taka á sig mynd. Byggingin er orðin þrjár hæðir, en hún verður á fimm hæðum. Húsið er rúmlega fjög- ur þúsund fermetrar og byggt úr krosslímdum timbureiningum frá Austurríki, sem styttir framkvæmda- tímann. Nokkur hús hafa verið byggð hérlendis á þennan hátt og önnur eru í byggingu, en húsið við Fornubúðir mun vera stærsta ein- staka framkvæmdin hér þar sem krosslímt tré er notað. Á heimasíðu Fornubúða fasteigna- félags hf. kemur fram að samningur hafi verið gerður í ársbyrjun 2017 um að byggja og leigja Hafrannsókna- stofnun húsnæði undir alla starfsemi hennar. Þar kemur fram að bygg- ingar úr krosslímdu tré ryðji sér mjög til rúms erlendis „enda mikilvægt skref í viðleitni manna við að minnka kolefnislosun. Hús byggð á þennan hátt eru með já- kvætt kolefnisspor,“ segir á heima- síðunni. Þar kemur fram að Hafró verði einn stærsti vinnustaðurinn í bænum. Hafrannsóknastofnun hefur verið til húsa í sjávarútvegshúsinu við Skúlagötu. Þegar greint var frá flutningunum í Hafnarfjörð kom fram að Stjórnarráðið fengi húsnæð- ið við Skúlagötu og var velferðar- ráðuneytið nefnt í því sambandi. Stálþil og fylling á vegum hafnarinnar Áformað er að stofnunin fái hús- næðið afhent í október. Við hlið nýja hússins er vöruhúsið Fornubúðir og verða um 1.400 fermetrar þess nýttir sem m.a. geymsla, verkstæði og út- gerðaraðstaða Hafró. Á vegum Hafnarfjarðarhafnar er samhliða unnið að framkvæmdum við nýjan hafnarkant á Háabakka, þar sem rannsóknaskipin munu hafa for- gang á viðleguplássum. Í vikunni var byrjað að reka niður stálþil, sem verður 110 metrar og bætist við 30 metra þil sem er fyrir. Fyrir haustið verður gengið frá fyllingu að þilinu og þekju á uppfyll- inguna. Í kverkinni milli Háabakka og Óseyrarbryggju, við hús Hafró, verður opið hafnarsvæði með útivist- arsvæði m.a. með trébryggju til dorgveiði og annarrar útivistar. Morgunblaðið/Sigtryggur Sigtryggsson Fornubúðir Talsverð breyting verður á svæðinu í Suðurhöfninni í Hafnarfirði með nýja húsinu. Byggja fimm hæðir fyrir Hafró úr krosslímdu tré Tölvumynd/Batteríið arkitektar  Rís við Fornubúðir í Suðurhöfninni í Hafnarfirði Talsvert tjón varð á handfæra- bátnum Hring GK 18, tólf tonna plastbáti, þegar talið er að hann hafi siglt á hval út af Höfnum á Reykjanesi í maí í fyrra. Málið var afgreitt frá siglingasviði rannsókna- nefndar samgönguslysa á mánudag. Í atvikalýsingu kemur fram að skipverjar hafi verið að kippa á veiðunum og siglt á milli tveggja báta þegar mikið högg kom aftan á bátinn, hann lyftist upp og vélin drap á sér. Skipverjar sáu hval- sporð við síðu bátsins og blóðflekk í sjónum. Eftir að vélin fór í gang kom titringur í bátinn en það náðist að sigla á hægri ferð til hafnar. Við rannsókn kom fram að tals- verðar skemmdir urðu á bátnum, m.a. eyðilagðist skrúfan, flapsar og hlífðargrind beygluðust, sprungur komu undir vélina og botnstykkið rifnaði frá. Fram kom hjá skip- stjóra að það hefði verið mikið lán að boltarnir sem héldu botnstykk- inu náðu ekki að rífa sig í gegn. aij@mbl.is Talsvert tjón er siglt var á hval Norska fiskeldisfyrirtækið SalMar hefur bætt við sig tæplega 9% hlutafjár í Arnarlaxi, stærsta ís- lenska laxeldisfyrirtækinu, og á nú rúm 63% hlutafjár félagsins. Eftir að SalMar keypti eignar- hluti Fiskisunds og Trygginga- miðstöðvarinnar í Arnarlaxi um miðjan febrúar og hlutur félagsins fór yfir 50% gerði fyrirtækið öðr- um hluthöfum tilboð um kaup á öllu hlutafé á svipuðu verði. Til- boðið er runnið út. Samkvæmt til- kynningu SalMar til kauphallar- innar í Osló bætir félagið um 8,8% við eign sína þannig að hún verð- ur rúm 63% af heildarhlutafé, samkvæmt bráðabirgðatölum. Nýr hluthafalisti hefur ekki ver- ið birtur. Hluthafar munu þó áfram vera hátt í fjörutíu talsins. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins er ekki vitað til þess að neinn hluthafi hafi selt alla eign sína en einhverjir hafa minnkað hluti sína. Samkvæmt því eru Matthías Garðarsson, stofnandi fyrirtækisins, Kristian, sonur hans og fyrrverandi forstjóri, áfram meðal hluthafa í gegnum félög skráð í Noregi. Einnig Kjartan Ólafsson, stjórnarformaður Arn- arlax, en hans félag er íslenskt. Ís- lensk fyrirtæki áttu mjög lítinn hlut í Arnarlaxi, eftir að Fiskisund og TM seldu, aðeins örfá prósent. Hluturinn sem SalMar er nú að bæta við sig kemur væntanlega aðallega frá fyrirtækjum sem skráð eru í Noregi. Þessi niðurstaða kemur Kjart- ani ekki á óvart. Hann segir að hluthafar sjái tækifæri í Arnar- laxi. Menn hafi lært mikið af rekstrinum. Kaup SalMar á viðbótarhlutum séu ákveðin stað- festing á því að fyrirtækið sé á réttri leið. Kjartan tekur fram að eignar- aðild SalMar fylgi aukin þekking og stöðugleiki í rekstri. Norska fyrirtækið njóti trausts og Arnar- lax njóti góðs af því. helgi@mbl.is Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Sjókvíar Arnarlax er stærsta fisk- eldisfyrirtæki landsins. SalMar komið með 63% hlut í Arnarlaxi  Íslendingar eiga lítinn hlut í félaginu Ágúst Þór Árnason, að- júnkt við Háskólann á Akureyri, lést á heimili sínu hinn 11. apríl eftir snarpa baráttu við krabbamein. Hann fæddist í Reykjavík 26. maí 1954. Foreldrar hans voru Ólöf Þórarinsdóttir kennari við Langholts- skóla og Árni Jóhanns- son verktaki. Ágúst Þór stundaði nám í heimspeki, lög- fræði og stjórnmála- fræði í Berlín við Die Freie Uni- versität, auk doktorsnáms sem enn var ólokið við Johann Wolfgang von Goethe Universität. Ágúst Þór starfaði m.a. sem fram- kvæmdastjóri Mannréttinda- skrifstofu Íslands frá 1994-1998 og var framkvæmdastjóri Lögfræði- akademíu Reykjavíkur um tíma. Hann var fréttaritari Bylgjunnar í Berlín á árunum 1986- 1989 og fréttaritari RÚV í Berlín 1989- 1991 þar sem hann flutti meðal annars fréttir af falli Berlínar- múrsins. Ágúst Þór sinnti blaðamennsku á Tímanum frá 1993- 1994. Hann starfaði við Háskólann á Akureyri frá árinu 2002 þar til hann fór í leyfi vegna veikinda snemma á þessu ári. Eftir Ágúst Þór liggur fjöldinn allur af fræðigrein- um, sem hann skrifaði einn eða í samstarfi við aðra. Hann var einn af þeim sem stóðu að heimspekikaffi á Bláu könnunni. Ágúst Þór eignaðist þrjú börn: Guðmund Árna, Brynjar og Elísa- betu, barnabörnin eru sjö. Sambýlis- kona hans var Margrét Elísabet Ólafsdóttir. Andlát Ágúst Þór Árnason Fagleg og persónuleg húsfélagaþjónusta Eignarekstur leggur áherslu á að einfalda og hagræða málin fyrir húsfélög Traust - Samstaða - Hagkvæmni eignarekstur@eignarekstur.is • www.eignarekstur.is • Sími 566 5005 Ráðgjöf Veitum faglega ráðgjöf til húsfélaga Bókhald Höfum umsjón með bókhaldi fyrir húsfélög Þjónusta Veitum persónulega þjónustu sem er sérsniðin að hverju og einu húsfélagi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.