Morgunblaðið - 13.04.2019, Qupperneq 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2019
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
MARALUNGA sófi L 238 cm
Hönnun: Vico Magistretti
Í klípu
„KOMSTU MEÐ EIGIN POKA EÐA MÁ
BJÓÐA ÞÉR EINN Á 30 KRÓNUR?”
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„NEI, ÞAÐ ER EKKI AUÐVELT AÐ SJÁ FYRIR
NÍU ÆTTLEIDDUM BÖRNUM Í MENNTASKÓLA
MEÐ 300 ÞÚSUND Á MÁNUÐI!”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... göngutúr í rokinu.
ÉG SVAF … BORÐAÐI
SVO
HVERNIG VAR
DAGURINN ÞINN?
MYNSTRUÐ EFNI
FITA MIG!
EN FRÚ
MÍN …
KANNSKI ANNAÐ MYNSTUR?
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Flugufjandinn. A-Enginn
Norður
♠K5
♥KG97
♦Á
♣KDG1053
Vestur Austur
♠DG9862 ♠10743
♥Á852 ♥D63
♦K63 ♦D72
♣– ♣862
Suður
♠Á
♥104
♦G109854
♣Á974
Suður spilar 5♦.
Í fyrsta leik Íslandsmótsins fékk
norður flugu í höfuðið og þar sveimaði
hún suðandi hring eftir hring: „Makker
á ekki tígul, makker á ekki tígul.“ En
flugufjandinn laug.
Gjafarinn í austur sagði pass, suður
líka og vestur vakti á 1♠. Norður var
að búa sig undir að segja 2♣ þegar
einhver innri rödd (flugan) hvíslaði að
honum að spilin væru alltof góð í ein-
falda innákomu og betra væri að halda
hjartalitnum inni í myndinni með dobli.
„En ef makker meldar tígul?“ spurði
norður fluguna.
„Það gerir hann aldrei,“ svaraði
flugan. „Suður á ekki langlit fyrst hann
vakti ekki á hindrun.“ Norður lét sann-
færast og doblaði. Austur sagði 3♠ og
suður 5♦. Tveir niður og 6♣ á borð-
inu.
„Varstu með sexlit?“
„Já, en tvo ása til hliðar. Maður opn-
ar ekki á veikum tveimur með tvo
ása.“
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Staðan kom upp á lokuðu ofurskák-
móti sem lauk fyrir skömmu í Sham-
kir í Aserbaídsjan en mótið var haldið
til minningar um aserska stórmeistar-
ann Vugar Gashimov. Sigurvegari
mótsins, norski heimsmeistarinn
Magnus Carlsen (2845), hafði svart
gegn tékkneska stórmeistaranum
David Navara (2739). 51... h4+! 52.
Kg4 hvítur hefði einnig tapað eftir
aðra leiki. 52...Hxf4+ 53. Kxf4 Hxa3
54. c6 Hc3 55. Bd5 h3 56. Ke5 Hc5
57. Kd6 Hxd5+! 58. Kxd5 h2 og hvít-
ur gafst upp. Lokastaða efstu manna
mótsins varð eftirfarandi: 1. Magnus
Carlsen 7 vinninga af 9 mögulegum.
2.-3. Liren Ding (2812) og Sergey Kar-
jakin (2753) 5 v. 4.-6. Teimour Radja-
bov (2756), Alexander Grischuk (2771)
og Viswanathan Anand (2779) 4 1/2
v. Sjötta umferð GAMMA Reykjavíkur-
skákmótsins hefst kl. 13:00 í dag í
Hörpu, sjá nánar á reykjavikopen.com
og skak.is.
Svartur á leik
ég við meistaraprófsritgerð og þar
með meistaragráðu í stjórnun skóla-
stofnana, en það var nám sem ég
hafði lagt stund á með hléum við Há-
skólann á Akureyri. Frá þessum
tíma hef ég sinnt kennslu við Verk-
menntaskólann.“
Áhugamál Hermanns eru mörg,
tónlist, íþróttir og brids eru þar á
meðal og nýjasta áhugamálið er golf.
„Öll gefa þau lífinu lit ef svo má
segja. Skemmtilegast er þó að fylgj-
ast með fólkinu sínu, börnum og
barnabörnum, vaxa og dafna.“
Fjölskylda
Eiginkona Hermanns er Bára
Björnsdóttir, f. 26.7. 1962, leikskóla-
kennari. Foreldrar hennar voru
hjónin Björn Elíasson, f. 6.10. 1925,
d: 14.6. 2010, skipstjóri á Dalvík, og
Ragnheiður Guðmundsdóttir, f. 30.4.
1931, d. 23.11. 2014, kennari á Dal-
vík.
Börn Hermanns og Báru eru: 1)
Tómas, f. 7.9. 1981, sálfræðingur, bú-
settur í Reykjavík; Maki: Heba Sah-
in hótelstýra, dóttir þeirra er Arna
Magnea; 2) Harpa, f. 2.5. 1988; versl-
unarkona og ofurmamma á Akur-
eyri. Maki: Hallgrímur Jónasson
knattspyrnumaður, börn þeirra eru
Dagbjört Bára, Jónas Ari, Viktor
Bjarki og Hrafnhildur Sara; 3)
Bjarki, f. 8.6. 1996, nemi í hagfræði
við HÍ.
Systur Hermanns eru Jóhanna
Dagbjört, f. 16.7. 1954, stuðnings-
fulltrúi á Akureyri; og Guðrún
Hrönn, f. 29.9. 1962, leiðbeinandi á
leikskóla á Dalvík.
Foreldrar Hermanns voru hjónin
Tómas Pétursson, f. 21.12. 1930, d.
9.4. 1963, útgerðarmaður og skip-
stjóri á mb. Hafþóri EA frá Dalvík,
og Sigríður Magnea Hermannsdótt-
ir, f. 23.3. 1934, d. 9.9. 2015, húsmóðir
og fiskverkakona.
Hermann Jón
Tómasson
Sigríður Gunnarsdóttir
húsfreyja á Sæbakka á Dalvík
Magnús Jónsson
sjómaður á Sæbakka á Dalvík
Sigríður Magnea Hermannsdóttir
húsmóðir og verkakona á Dalvík
Hermann Árnason
sjómaður á Dalvík
Baldvina Guðrún Baldvinsdóttir
húsfreyja í Ytri-Haga
Árni Jóhannsson
bóndi í Ytri-Haga á Árskógsströnd
Friðbjörn Hermannsson sjómaður á Dalvík
Árni Hermannsson sjómaður og
verkamaður í Keflavík
Þuríður Magnúsdóttir húsfreyja á Dalvík
Kristín Hólmfríður Magnúsdóttir húsfreyja á Dalvík
Gunnar Magnússon sjómaður á Dalvík
Jónína Anna Magnúsdóttir
húsfreyja á Dalvík
Ingvi Gunnar Ebenhardson
skrifstofustj. og sveitarstj.
á Selfossi og skrifstofustj. í
Reykjavík
Sigríður Jóhannsdóttir
húsfreyja á Ysta-bæ í Hrísey
Þorfinnur Jónsson
verkamaður á Ysta-bæ í Hrísey
Jóhanna Guðrún Þorfinnsdóttir
húsfreyja á Dalvík
Hanna Guðrún Pétursdóttir
húsfreyja á Siglufirði
Halldóra Ragna Pétursdóttir
húsfreyja á Siglufirði
Pétur Baldvinsson
sjómaður á Dalvík og Siglufirði
Guðrún Svava Tómasdóttir
húsfreyja í Hólkoti og
Baldvinsbæ á Dalvík
Jón Baldvin Sigurðsson
beykir og útgerðarmaður í Hólkoti og Baldvinsbæ á Dalvík
Úr frændgarði Hermanns Jóns Tómassonar
Tómas Pétursson
skipstjóri á Dalvík