Morgunblaðið - 13.04.2019, Síða 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2019
Bandarískur unglingakór frá
einkaskólanum Lake Worth
Christian School í Boynton Beach
á Flórida heldur tónleika í Kalda-
lóni Hörpu á morgun, sunnudag,
kl. 17.30. Stjórnendur kórsins eru
Beth Acosta og Megan Wade, en
þær hafa báðar víðtæka þekkingu
og reynslu í tónlistar- og leikhús-
geiranum að því er segir í tilkynn-
ingu. Á efnisskránni eru fjölbreytt
verk allt frá klassískri tónlist til
djasstónlistar. „Kórinn hefur tölu-
verða reynslu af að koma fram um
öll Bandaríkin en þessir tónleikar
verða þeir fyrstu sem hann heldur
í Evrópu. Kórnum hefur í fram-
haldinu verið boðið að halda tón-
leika í Kanada og Ítalíu auk þess
sem hann mun koma fram í messu
í Vatikaninu.“ Aðgangur er ókeyp-
is.
Bandarískur ung-
lingakór í Hörpu
Evróputónleikar Hluti kórsins sem kem-
ur fram á tónleikunum í dag. Um er að
ræða fyrstu tónleika kórsins í Evrópu.
Samdrykkja um
fornbókmenntir
veldur haldin í
Veröld – húsi
Vigdísar í dag,
laugardag, milli
kl. 16 og 18. Þar
flytja erindi
Marianne E. Kal-
inke, prófessor
emeritus við Uni-
versity of Illinois
og heiðursdoktor við Háskóla
Íslands, Kirsten Wolf, prófessor við
University of Wisconsin, og Úlfar
Bragason, rannsóknarprófessor við
Stofnun Árna Magnússonar í
íslenskum fræðum. Fundarstjóri er
Þórunn Sigurðardóttir, rannsókn-
arprófessor við Stofnun Árna
Magnússonar í íslenskum fræðum.
Samdrykkja um
fornbókmenntir
Úlfar
Bragason
Sönghópurinn Alumni, skipaður
söngvurum úr kór Clare College í
Cambridge, verður gestur Listvina-
félags Hallgrímskirkju um helgina
og kemur fram á tónleikum í Hall-
grímskirkju í dag kl. 17 og syngur í
messu á Pálmasunnudag kl. 11. Á
efnisskrá hópsins er fjölbreyt efnis-
skrá með verkum allt frá endurreisn
til nútímans þar sem breskri og ann-
arra þjóða tónlist er teflt saman á mjög fallegan og áhrifamikinn hátt, eins
og segir í tilkynningu. Stjórnandi er Graham Ross.
Alumni syngur í Hallgrímskirkju
Söngfuglar Kór Clare College en úr hon-
um koma söngvarar Alumni hópsins.
Daníel Bjarnason
hefur verið ráð-
inn aðalgesta-
stjórnandi Sin-
fóníuhljómsveitar
Íslands (SÍ) til
tveggja ára fram
og með sept-
ember.
Daníel stjórnar
hljómsveitinni á þrennum tónleikum
í Eldborg á næsta starfsári og á tón-
leikaferðalagi hennar til Þýskalands
og Austurríkis í nóvember 2019. Þá
mun Daníel stjórna upptökum á
íslenskri tónlist fyrir bandaríska út-
gáfufyrirtækið Sono Luminus.
Daníel segir það sér mikinn heið-
ur að taka við stöðunni. „Undanfarin
ár hef ég átt í mjög nánu og góðu
sambandi við hljómsveitina og ég
hlakka til að halda áfram að vinna
með öllu því frábæra fólki sem
stendur að Sinfóníuhljómsveit
Íslands, bæði hljómsveitinni sjálfri
og fólkinu á bak við tjöldin,“ segir
Daníel sem var staðarlistamaður SÍ
2015-18 þar sem hann gegndi bæði
hlutverki hljómsveitarstjóra og tón-
skálds.
„Daníel er einstaklega fjölhæfur
listamaður sem hefur djúpan skiln-
ing á því hljóðfæri sem heil sinfón-
íuhljómsveit er, bæði sem tónskáld
og hljómsveitarstjóri. Daníel hefur
síðustu ár náð stórkostlegum alþjóð-
legum frama og unnið með virtustu
listamönnum og hljómsveitum
heims. Það er okkur einstakt
ánægjuefni að Daníel sé fyrsti
íslenski hljómsveitarstjórinn til að
vera útnefndur aðalgestahljóm-
sveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar
Íslands. Við erum stolt af Daníel og
hans listrænu sigrum og væntum
mikils af samstarfinu,“ segir Arna
Kristín Einarsdóttir framkvæmda-
stjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Daníel nýr aðalgestastjórnandi SÍ
Daníel Bjarnason
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Ég kynntist konunni minni í kvik-
myndanámi og við elskum bæði
sögulegar og dulrænar kvikmyndir.
Sóley er þannig mynd. Hún er kvik-
mynd í fullri lengd sem listakonan
Róska, leikstýrði og skrifaði í sam-
vinnu við eiginmann sinn Manrico
Pavolettoni árið 1982,“ segir Lee
Lorenzo Lynch en hann ásamt eigin-
konu sinni, Þorbjörgu Jónsdóttur
kvikmyndagerðarkonu, stendur fyrir
söfunun á Karolina fund til þess að
endurgera kvikmyndina Sóley að svo
miklu leyti sem það er hægt þar sem
negatíva myndarinnar er týnd.
Sóley sem er á 35 mm filmu hefur
sjaldan verið sýnd að sögn Lynch og
eina eintakið sem vitað sé um er sýn-
ingareintak í mjög slæmu ásigkomu-
lagi hjá Kvikmyndasafni Íslands.
„Kvikmyndasafnið hefur verið
okkur innan handar við að skanna
sýningareintakið í háskerpu og söfn-
unina settum við af stað til þess að
safna fyrir kostnaði vegna stafrænn-
ar hreinsunar kvikmyndarinnar. Það
þarf einnig að bæta textasetningu og
hljóð svo hægt verði að gefa þessa
költmynd út á stafrænu formi,“ segir
Lynch sem segir Sóley falla í flokk
heimskvikmynda og þegar Róska
hafi framleitt hana 1982 hafi hún ver-
ið ein fárra íslenskra kvenna sem
leikstýrðu kvikmyndum í fullri lengd.
Mikilvægur listamaður
„Ég þekkti Rósku ekki, hún var
móðursystir Þorbjargar konu minn-
ar. Róska varð bráðkvödd 55 ára
gömul árið 1996,“ segir Lynch en
Róska var þekkt fyrir að fara sínar
eigin leiðir bæði í lífinu og listinni.
Lynch telur að Róska hafi verið
ein af mikilvægustu listamönnum Ís-
lands. Hún hafi verið pólitískur lista-
maður, sem málaði, framkvæmdi
gjörninga, kvikmyndaði og tileinkaði
sér fljótt tölvugerðarlist. Róska
lærði myndlist og kvikmyndagerð í
Prag og Róm þar sem hún bjó lengst
af.
„Róska var sögð ótrúleg krafta-
kona en hún var einn af stofnendum
Nýlistasafnsins. Róska gerði meðal
annars heimildarþætti um Ísland
fyrir ítalska sjónvarpið. Þættirnir
þóttu of pólitískir á Natóárunum til
þess að sýna þá á Íslandi,“ segir
Lynch og bætir við að Róska hafi
gert nokkrar stuttmyndir en Sóley
sé sú eina sem gerð var í fullri lengd.
Haft var eftir Rósku að Sóley
fjallaði um draum og raunveruleika
sem mætist og fari í ferðalag saman.
Sýningareintakið af Sóley var
sýnt í Iðnó 25. mars og mættu 150
manns á sýninguna að sögn Lynch
sem segir að góður rómur hafi verið
gerður að myndinni. Unga fólkinu í
kvikmyndaskólanum hafi líkað
myndin vel og fullorðinn ein-
staklingur sem lék sem barn í
myndinni kom að sjá hana í fyrsta
sinn.
„Í Sóley er töfraraunsæi og þjóð-
sagan skammt undan. Myndin ger-
ist á 18. öld og fjallar um ungan
bónda sem fer á hálendið í leit að
hestunum sínum. Þar hittir hann
Sóleyju sem er álfkona. Hún að-
stoðar hann við leit að hestunum og
hann fær að hitta fólkið hennar,“
segir Lynch og bætir við að í mynd-
inni sé tekið á misskiptingu valds og
auðs, sem sannarlega eigi fullt er-
indi í dag, 37 árum eftir að myndin
kom fyrst út.
Fordómar um álfa og huldufólk
Lynch vonast til þess að hægt
verði að frumsýna Sóley eftir lag-
færingar árið 2020. Lynch segir að
hann og Þorbjörg elski íslenskar
myndir vegna þess að í þeim sé
fjallað um álfa og hulduverur. Ýms-
ar þjóðir kjósi að mistúlka mynd-
irnar og stefni álfum og huldufólki
gegn kristni. Það séu að mati Lynch
fordómar.
Fimmtudaginn 11. apríl hafði
safnast 2101 evra af 5000 sem er
42% af markmiði söfnunarinnar sem
lýkur 4. maí. Hlekkur söfnunarinnar
er www.karolinafund.com/project/
view/2382
Safnað fyrir endurgerð Sóleyjar
Kvikmynd í fullri lengd eftir Rósku Negatíva myndarinnar týnd Kvik-
myndasafnið skannar inn sýningareintak í háskerpu Róska fór sínar eigin leiðir
Athafnafólk Lee Lorenzo Lynch og Þorbjörg Jónsdóttir telja að kvikmynd-
in Sóley, sem listakonan Róska framleiddi teljist í flokki heimskvikmynda.
Plakat Kynning kvikmyndafélags-
ins Sóleyjar á myndinni árið 1982.