Morgunblaðið - 17.04.2019, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 7. A P R Í L 2 0 1 9
Stofnað 1913 91. tölublað 107. árgangur
ATVINNUBLAÐ
MORGUN-
BLAÐSINS
NAUÐSYNLEGT
AÐ TALA MEIRA
UM BÆKUR
BORGA MEIRA
FYRIR UM-
HVERFISVÆNT
BÓKMENNTAHÁTÍÐ, 58 VIÐSKIPTAMOGGINNFINNA VINNU 8 SÍÐUR
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri
Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðár-
króki, gagnrýnir stofnun þjóðarsjóðs
svokallaðs í ítarlegu samtali við Við-
skiptaMoggann í dag. Hugmyndir
eru uppi um að arður af rekstri
Landsvirkjunar renni inn í slíkan
sjóð, sem mæta eigi ófyrirséðum
áföllum sem þjóðarbúið verður fyrir í
framtíðinni. „Ég hef miklar efasemdir
um þjóðarsjóðinn. Ég held að þar séu
menn á villigötum,“ segir Þórólfur.
„Við erum eyja úti í miðju Atlants-
hafi, en við erum með stórt land með
miklar auðlindir og þurfum ekki að
hafa neina minnimáttarkennd. Það
eru fiskimið í kringum landið, landið
sjálft nýtist til matvælaframleiðslu og
hingað koma ferðamenn. Landið er
orkuríkt, bæði varðandi háhita og fall-
vötn. Þetta vegur upp á móti fámenn-
inu, og vegur upp á móti því að við er-
um með mjög dýran aðgang að
mörkuðum vegna legu landsins.“
Þórólfur bætir við að nýta þurfi
auðlindirnar skynsamlega, og þar
með raforkuna því hún þurfi að vega
upp á móti öðrum kostnaði sem Ís-
lendingar hafi af vörum og flutningi
og slíku. „Því finnst mér miklu eðli-
legra að fallorkan sé nýtt til að auka
samkeppnishæfni samfélagsins og
fyrirtækja og auka kaupmátt almenn-
ings, frekar en að ríkið sé með orkuna
á sínum vegum að gera einhvern sjóð
sem ég hef miklar efasemdir um að
menn hafi einhverja stjórn á, og ætli
að láta verða einhvern öryggissjóð.
Ég held að þetta verði bara einhver
framkvæmdasjóður. Við höldum ekki
kaupmætti uppi í samfélaginu nema
samkeppnishæfni samfélagsins sé í
lagi,“ segir Þórólfur.
Þá telur hann að menn eigi ekki að
vera fikta við lagningu sæstrengs til
að selja rafmagn til Evrópu.
Gagnrýnir þjóðarsjóðinn
Kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga telur að nota eigi fallorkuna til að
auka samkeppnishæfni samfélagsins Menn ættu ekki að fikta við sæstreng
Morgunblaðið/RAX
Kaupfélagsstjóri Þórólfur Gíslason
vill nýta auðlindir skynsamlega. MViðskiptaMogginn
„Sú staða sem við kaupmenn horfum
nú fram á í miðbænum – mér líst ekk-
ert á hana,“ segir Gilbert Ó. Guðjóns-
son, úrsmiður við Laugaveg.
Margir kaupmenn við Laugaveg
eru uggandi yfir þeim áformum borg-
aryfirvalda að breyta götunni í göngu-
götu til frambúðar. Gilbert segir að
auð verslunarpláss á Laugavegi séu
nú 16 og fleiri kaupmenn séu á förum.
„Ég myndi kalla þessa þróun hryðju-
verk, það er ekkert hlustað á okkur
hjá borginni.“
Fleiri kaupmenn taka undir sjónar-
mið Gilberts og kvarta undan fram-
göngu borgarinnar. „Ef viðskiptavinir
okkar geta ekki nálgast verslunina
fyrir þrengingum og lokunum þá höf-
um við ekkert með verslun á þessum
stað að gera,“ segir Jón Sigurjónsson
gullsmíðameistari. „Fólk er orðlaust
yfir þróuninni. Þetta er rosalega sorg-
legt allt saman,“ segir Vigdís Guð-
mundsdóttir. »10
Morgunblaðið/Eggert
Laugavegur Margir kaupmenn eru
ósáttir við að gatan verði göngugata.
Flótti af
Laugavegi
Það blés hressilega á höfuðborgarsvæðinu í gær
og mörgum stóð ekki á sama í verstu hviðunum.
Rokið stöðvar þó ekki alvöruútivistarfólk og
þessi garpur fór hratt yfir við sandhólana vestur
á Seltjarnarnesi. Í dag er búist við áframhald-
andi hvassviðri á suðvesturhluta landsins, 8-15
metrum á sekúndu. Lægja á undir kvöld og
vænta má meinlætisveðurs á landinu á skírdag
og föstudaginn langa.
Morgunblaðið/Eggert
Sprett úr spori á sandhólum við sjávarsíðuna
A
ct
av
is
91
10
13
91
10
13
Omeprazol
Actavis
20mg, 14 og 28 stk.
Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á
fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á
umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á
frekari upplýsingum um áhættu og auka-
verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á
www.serlyfjaskra.is
Síðumúla 30 Reykjavík | Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
-
30%
AFSLÁTTUR
AF FERMINGARRÚMUM
Engholm sængurver að
eigin vali fylgir með hverju
seldu fermingarrúmi.
Falleg
fermingarrúm