Morgunblaðið - 17.04.2019, Side 8

Morgunblaðið - 17.04.2019, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2019 sp ör eh f. Sumar 23 Þessi glæsilega ferð byrjar í frönsku Ölpunum í fjallabænum fræga Chamonix.Við förum til bíllausa bæjarins Zermatt og bæjarins Stresa við vatnið Lago Maggiore en staðsetning vatnsins hefur allt frá 18. öld laðað að ferðamenn. Þaðan verður m.a. farið í siglingu til eyjaperlunnar Isola Bella og þar skoðuð dásamleg höll í miðjum, stórglæsilegum lystigarði. 19. - 28. ágúst Fararstjórn: Inga Ragnarsdóttir Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík Verð: 274.900 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! Chamonix, Zermatt&Stresa Deila má um hvar hjartað liggurí heimsborgum en hvað París varðar er staðsetning þess næsta ljós.    Hvarvetna varmönnum brugðið við frétt- ir um að Notre Dame stæði í ljós- um logum.    Það var ástæðatil þess að ætla að þar myndi allt brenna sem brunnið gat.    Og tjónið varð mikið og illbætan-legt sumt, en þakka má fyrir að ekki varð allsherjartjón.    Frönsk yfirvöld hafa þegar til-kynnt að margt hafi bjargast sem ómetanlegt telst á alla kvarða og óttast var að yrði eyðilegging- unni að bráð og heitið endurreisn kirkjunnar góðu.    Almenningur, sem og fyrirtækiog félög hans hafa lofað að styrkja framtakið af öllu afli.    Íslensk stjórnvöld hafa fagnaðþeim áformum. Lilja Alfreðs- dóttir, menntamálaráðherra, talar í nafni þjóðarinnar þegar hún lýsir samkennd með Frökkum vegna þessa atburðar sem snertir flesta djúpt.    Það gerir Björn Bjarnason fv.menntamálaráðherra einnig þegar hann færir hinn einstæða at- burð þessarar dymbilviku yfir á hefðbundna helga viðburði sem þá er jafnan minnst – krossfestinguna og upprisuna og bendir á að „þrátt fyrir sorg sé einnig ástæða til að gleðjast og fagna.“ Eldur laus í helgidóminum STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Boðað er til sáttafundar í kjaradeilu samflots iðnaðarmannafélaganna og Samtaka atvinnulífsins í dag. Tals- maður iðnaðar- manna á ekki von á að dragi til tíð- inda á þeim fundi en hann segir að herslumuninn vanti á að ná samningum. Sér- stakur hópur iðn- aðarmannafélag- anna hefur verið að störfum og samið aðgerða- áætlun ef félögin sjá sig knúin til að boða til verkfallsaðgerða eftir páska. Að sögn Kristjáns Þórðar Snæbjarn- arsonar, formanns Rafiðnaðarsam- bandsins, hefur það plan ekki verið gert opinbert. Hann segir óþreyju farið að gæta í baklandinu í félögun- um. „Það verður pottþétt ekki geng- ið frá neinum samningum fyrir páska. Það er alveg augljóst en við eigum fund með SA í fyrramálið og það er síðasti fundurinn fyrir páska. Ég er ekki bjartsýnn á að það gerist neitt markvert á þeim fundi. Eftir páska munum við reyna hvað við get- um til að keyra á viðræður en ef það fer ekkert að gerast upp úr því þá fara menn bara í næsta gír.“ Hann segir að þegar viðræður stóðu sem hæst milli iðnaðarmanna- félaganna og SA hafi þær gengið mjög vel. ,,En það vantar herslu- muninn á að ná þessu saman. Við viljum auka kaupmátt launa iðnaðar- manna og sjáum ekki alveg hvernig við náum því með því uppleggi sem SA hefur boðið öðrum.“ Viðsemjendurnir hafi líka verið komnir mjög langt í viðræðum um breytingar á vinnutímamálum en þau mál séu þó ekki heldur komin í höfn. ,,Við eigum eftir að fínpússa ýmislegt þar og þetta snertir flest allt sem við höfum verið að vinna að, þar vantar herslumuninn.“ Félög iðnaðarmanna eiga líka eftir að gera kjarasamninga við ríkið, sveitarfélögin og orkufyrirtækin en sú samningalota hefst væntanlega ekki fyrr en sér fyrir endann á við- ræðunum við SA. Kristján segir að viðræðurnar við orkufyrirtækin séu í startholunum. Að sögn hans hefur ekki verið ákveðið hvort félögin halda samflotinu í viðræðunum við iðjuverin og hið opinbera en ekki kæmi á óvart að menn yrðu líka mjög samstíga í þeim viðræðum. Vantar herslu- muninn upp á  Aðgerðaplan iðnaðarmanna tilbúið Kristján Þórður Snæbjarnarson Þessa dagana er verið að setja sam- an nýja brú yfir Eldvatn hjá Ásum í Skaftártungu. Steypuvinnu lauk í október sl. og í vetur var brúin sjálf smíðuð í Póllandi. Stálvirkið var flutt í einingum til Íslands og komu síð- ustu bitarnir á verkstað 28. mars. Samsetningu þeirra lýkur í byrjun maí, gangi allt að óskum. Skv. upplýsingum frá Vegagerð- inni, sem stendur að þessari fram- kvæmd, er brúin úr frístandandi bogum og með neti hengistanga sem bera langbita uppi. Brúargólfið er steypt plata ofan á steyptum ein- ingum. Undirstöður eru steyptar og skorðaðar í klöpp með bergboltum. Við uppsetningu má svo segja að brúnni sé ýtt yfir ána, það er á bráðabirgðaundirstöðum sem síðar verða fjarlægðar. Í sumar verður unnið að frágangi við brúna en sam- tímis verður farið í vegagerð. Form- leg opnun er í lok komandi sumars. Aðalverktaki í þessari framkvæmd er Munck Íslandi ehf. Eldvatnsbrúin við Ása, sem nú stendur, skemmdist í Skaftárhlaupi 2015. Rof varð á eystri bakka sem leiddi til þess að brúin skekktist og burðarþol minnkaði. Var brúin því lokuð um hríð, en seinna var umferð léttari bíla leyfð. Ekki varð þó hjá því komist að reisa nýja brú, sem er 78 metra löng og kippkorn neðar en sú sem nú stendur. sbs@mbl.is Eldvatnsbrú verður tilbúin í sumarlok  Stálvirki skrúfað saman  Steypuvinnu lokið  Vegir og frágangur í sumar Ljósm/Vegagerðin Brú Góður gangur í framkvæmdum. Ef iðnaðarmannafélögin gripu til sambærilegra verkfalls- aðgerða og þau boðuðu í júní árið 2015, gætu áhrif þeirra orð- ið víðtæk um allt samfélagið. Félög iðnaðarmanna voru í sam- floti í kjaraviðræðum við SA 2015 og boðuðu verkfall með 75,1% atkvæða, sem átti að hefjast 10. júní. Því var svo frestað til 22. júní og náðust samningar á síðustu stundu áð- ur en það átti að skella á. Verk- föll iðnaðarmanna 2015 hefðu m.a. leitt til mikillar röskunar á flugi þar sem rafvirkjar og raf- eindavirkjar áttu að leggja niður störf en þeir sjá m.a. um viðhald á ljósabúnaði á flugvöllum og flugleiðsögubúnaði. Við blasti að starfsemi veitingahúsa, mötuneyta, kjötvinnslna og bakaría hefði lamast þegar mat- reiðslumenn, bakarar, kjötiðn- aðarmenn o.fl. í Matvís færu í verkfall og prentun dagblaða og tímarita hefði stöðvast í verk- falli félagsmanna í Grafíu. Starfsemi vélsmiðja og járn- smiðja hefði raskast í verkfalli félagsmanna í VM og verkfall byggingarmanna hefði haft mikil áhrif á byggingariðnaðinn. Viðbúið var að röskun yrði í bíl- greinum og á hársnyrtistofum og viðhaldi skipa yrði ekki sinnt. Víðtæk áhrif MÖGULEG VERKFÖLL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.