Morgunblaðið - 17.04.2019, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2019
Z-brautir &
gluggatjöld
Opið mán.-fös. 10-18, lau. 11-15 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is |
Mælum, sérsmíðum og setjum upp
Úrval - gæði - þjónusta
Falleg gluggatjöld
fyrir falleg heimili
Dekkjaþjónusta
Úrval fólksbíla- og jeppadekkja
SAMEINUÐ GÆÐI
Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 7.45-17.00, föstudaga kl. 7.45-16.00
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
fara ekki hraðar í uppbygginguna en
sem nemur þessum tveimur stöðum.
Viðtökurnar hafa verið rosalega góðar.
Gestirnir eru mjög ánægðir með vör-
una. Það er stórmál að vera með gott
kjöt. Það er lykilatriði að vera með fínt
hráefni, réttu vöðvana, rétta fitumagn-
ið og rétta aldurinn á dýrinu þegar því
er slátrað. Það eru ótal hlutir í kring-
um í þetta. Þetta snýst ekki aðeins um
að skafa af beinunum og hakka. Við er-
um millistig milli skyndibita og brass-
erie. Skyndibitakeðjurnar eru með til-
búna borgara sem eru látnir standa en
hjá okkur eru borgarar eldaðir eftir
hendinni.“
Góð yfirsýn mikilvæg
Tómas segir aðspurður að sem
stendur sé ekki horft til fleiri borga í
Noregi en Óslóar. Hafa þurfi góða
yfirsýn við slíkan rekstur. Því verði
ekki leitað út fyrir Óslóarsvæðið fyrr
en staðirnir eru orðnir rótgrónari.
Hann segir eigendur Hamborgara-
búllu Tómasar íhuga að opna veit-
ingastaði í nýjum borgum á næstu
misserum. Þá sé til skoðunar að fjölga
stöðum í nokkrum borgum.
Búllurnar eru orðnar sjö á Íslandi.
Fjórar eru í Reykjavík og svo eru búll-
ur í Kópavogi, Selfossi og Hafnarfirði.
Þá er veisluþjónusta í boði. Fyrsti
staðurinn utan landsins var opnaður
2012 í London og hefur stöðunum síð-
an fjölgað hratt. Þriðji staðurinn í
Berlín var opnaður fyrir 4 mánuðum.
Þá eru tveir staðir í þremur borgum;
Kaupmannahöfn, London og Ósló.
Loks hafa Oxford og Róm sinn stað
hvor. Alls eru þetta 18 búllur í sex
löndum.
Tækifæri í Þýskalandi
Tómas segir búllunni í Malmö í Sví-
þjóð hafa verið lokað. Reksturinn hafi
ekki gengið. Þá hafi búllan í Árósum
farið sömu leið. Hins vegar séu tæki-
færi til vaxtar í Þýskalandi.
„Við erum farnir að líta í kringum
okkur í Frankfurt, München og Köln.
Svo er pláss fyrir einn til tvo staði til
viðbótar í Berlín. Borgin er svo stór og
víðáttumikil. Þar búa 3,5 milljónir
manna á landsvæði á stærð við
Reykjanesskaga. Við gætum bætt við
stað í Berlín án þess að það tæki frá
hinum stöðunum,“ segir Tómas sem
upplýsir að fyrirspurnir hafi borist frá
Spáni og Portúgal varðandi mögulegt
samstarf. Búllum í suðrinu gæti því
fjölgað næstu árin.
„Þetta er alltaf spurning um að
finna rétta samstarfsaðilann. Ef við
finnum hann erum við opnir fyrir sam-
starfi. Það er enginn vandi að innrétta
stað og opna með látum. Það þarf hins
vegar að vera líf eftir hveitibrauðsdag-
ana. Það eru allir að leita að góðum
rekstraraðilum í veitingabransanum.
Ef maður hefur góðan skipstjóra þarf
ekki að hafa áhyggjur af hinu. Ef það
eru hins vegar góðir stýrimenn en
ekki góður skipstjóri fer allt í vitleysu.
Þetta er spurning um skipstjórann.
Hann heldur utan um sína áhöfn.“
Til þjónustu reiðubúin Það var stutt í brosið hjá þeim Cecilie, Matej og Cherry. Sandra er við grillið.
Í Grünerløkka Staðurinn á Thorvalds Meyers götu.
Á laugardegi Staðurinn í Grünerløkka er vinsæll meðal námsmanna. Margir panta sér ölglas.
Thorvalds Meyers gata Sendlar á vegum Foodora bíða í bleikum einkennisklæðnaði meðan borgararnir eru eldaðir.
List Teikning eftir Ólöfu Kristínu.
Frá Íslandi Hrafninn fer víða.
Morgunblaðið/Baldur
Vel útlátið Hægt er að fá sætar kartöflur.