Morgunblaðið - 17.04.2019, Síða 26
Notre-Dame dómkirkjan í París
Hæð
turnanna:
69 metrar
Breidd framhliðar:
43,5 metrar
Hæð
spíru:
96 metrar
Hæð framhliðar
án turna
45 metrar
Heildarflatarmál:
5.500 ferm
Kirkjuklukkurnar
Fjöldi súlna og
stöpla: 75
Orgelið mikla Kirkjusafnið
Um 8.000 pípur,
5 nótnaborð með 56 nótur,
32 nótna fótstig,
109 raddir
Að
meðaltali
Rúmlega
2.000
helgiathafnir
á ári
5
messur
á dag
Fjórar klukkur sem settar
voru upp 1856 voru teknar
úr notkun og í stað þeirra
voru settar átta nýjar
kirkjuklukkur árið 2013
Í kirkjunni er einnig
stór klukka, þrettán tonn,
frá sextándu öld. Loðvík 14.
konungur lét steypa hana
upp aftur árið 1681
Norður-
turn Suður-
turn
Dómkirkjan
Sagan
Heildar-
lengd:
128 m
Viður í þak:
1.300 eikur eða
21 ha. skóglendisÞar eru geymdir ýmsir
munir (svo sem skraut-
munir og bækur) sem
notaðir eru við helgiathafnir
12-14
milljónir
gesta
á ári 30.000
á dag
7
messur á
sunnu-
dögum
1
2
Dómsinngangurinn
Meyjarinngangurinn
Inngangur heilagrar
Önnu
1
2
3
3
Heimild: notredamedeparis.fr
1163 Hornsteinn lagður að kirkjunni. Á
meðal viðstaddra var Alexander 3. páfi
1163-1250 Bygging kórsins, kirkjuskipsins,
þverskipsins, skrautinngangs, framhliðar
og tveggja turna
1250-1345 Annar áfangi byggingarinnar,
sem var færð í gotneskan stíl, þverskipið
stækkað, kapellur í kórnum
1572 Hinrik af Navarra, sem seinna varð
Hinrik 4., og Marguerite de Valois gefin saman
1804 Napóleon krýndi sig
keisara að Píusi 7. páfa
viðstöddum
1831 Victor Hugo birti
Notre-Dame de Paris
(Hringjarinn í Notre-Dame)
1843-1864 Viðamiklar
viðgerðir
1730 Orgelið mikla sett í kirkjuna
1792 Dómkirkjan var nefnd „musteri
skynseminnar“ í frönsku byltingunni.
Styttur voru skemmdar og kirkjuspíran
rifin niður
Kór
Kirkjuskip
Þverskip
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Fyrirtæki, auðkýfingar og borgar-
yfirvöld í París höfðu í gær lofað að
leggja til hundruð milljóna evra til að
endurreisa dómkirkjuna Notre-
Dame í París eftir að þak hennar og
turnspíra eyðilögðust í eldi sem
kviknaði í fyrradag. Sérfræðingar
telja að endurreisn byggingarinnar
taki mörg ár eða jafnvel áratugi.
Emmanuel Macron, forseti
Frakklands, hafði heitið því að kirkj-
an yrði endurreist í samstarfi við
færustu sérfræðinga á sviði viðgerða
á sögufrægum byggingum. Að sögn
fréttaveitunnar AFP hafði alls nær
700 milljónum evra, jafnvirði 95
milljarða króna, verið lofað í verk-
efnið. Fyrirtækið Kering SA, sem á
meðal annars tískumerkin Gucci,
Balenciaga og Yves Saint Laurent,
reið á vaðið og lofaði 100 milljónum
evra í fyrrakvöld. Franska lúxús-
vöruveldið LVMH og fjölskylda
stofnanda þess, Bernards Arnaults,
lofaði síðan 200 milljónum evra í
gær. Á meðal annarra fyrirtækja,
sem hétu fjárframlögum, er franska
olíufyrirtækið Total sem lofaði 100
milljónum evra.
Anne Hidalgo, borgarstjóri París-
ar, sagði að borgin myndi leggja til
50 milljónir evra og standa fyrir ráð-
stefnu á næstu vikum um skipulagn-
ingu fjársöfnunarinnar.
Gert er ráð fyrir að sérhæfð fyrir-
tæki annist viðgerðirnar. Franska
timburfyrirtækið Charlois sagðist
ætla að reyna að safna um 1.300
eikartrjám sem gert er ráð fyrir að
þurfi í þakið. Sylvain Charlois, for-
maður stjórnar fyrirtækisins, sagði
þó að ekki yrði auðvelt að finna
eikartré sem væru nógu stór fyrir
verkefnið.
Bjóða Frökkum aðstoð
Menningarmálastofnun Samein-
uðu þjóðanna, UNESCO, hét því að
aðstoða Frakka við endurreisn kirkj-
unnar, sem hefur verið á heims-
minjaskrá stofnunarinnar frá árinu
1991. Stjórnvöld í Þýskalandi og á
Ítalíu hafa einnig boðið Frökkum að-
stoð. Vladimír Pútín, forseti Rúss-
lands, bauðst til að senda „bestu sér-
fræðinga Rússlands, með mikla
reynslu af endurreisn bygginga sem
eru minnisvarðar um þjóðararfleifð“.
Talið er að endurreisn kirkjunnar
kosti hundruð milljóna evra og taki
mörg ár ef ekki áratugi, að sögn
franskra sérfræðinga. Eric Fischer,
yfirmaður stofnunar sem annaðist
þriggja ára viðgerðir á þúsund ára
gamalli dómkirkju Strassborgar,
hefur spáð því að endurreisn Notre-
Dame taki áratugi. „Tjónið er veru-
legt,“ hefur AFP eftir honum. „En
við erum heppin vegna þess að hér í
Frakklandi eru framúrskarandi
fyrirtæki á sviði endurreisnar á
byggingum, hvort sem það eru lítil
fyrirtæki handverksmanna eða stór-
fyrirtæki.“ Aðrir sérfræðingar hafa
sagt að endurreisn byggingarinnar
taki að minnsta kosti tíu til tuttugu
ár, að sögn fréttaveitunnar.
„Meira en kraftaverk“
Ekki er vitað um orsök eldsins en
talið er að hann hafi kviknað í
tengslum við viðgerðir sem hafnar
höfðu verið á turnspíru dómkirkj-
unnar. Um fimmtíu manns taka þátt
í rannsókninni á eldsupptökunum og
byrjað var að yfirheyra vitni og
starfsmenn fimm fyrirtækja sem
önnuðust viðgerðirnar.
„Ekkert bendir til þess að þetta
hafi verið gert af ásettu ráði,“ sagði
franski saksóknarinn Rémy Heitz.
Aðalarkitekt verkefnsins sagði að
enginn viðgerðarmannanna hefði
verið á staðnum þegar eldurinn sást
fyrst skömmu fyrir klukkan 19.00 að
staðartíma, kl. 17 að íslenskum.
Um 400 slökkviliðsmenn tóku þátt
í slökkvistarfinu sem stóð í fimmtán
klukkustundir. Um tíma var óttast
að tveir turnar kirkjunnar myndu
hrynja en slökkiliðinu tókst að
bjarga þeim og meginbyggingunni.
Laurent Nuñez, aðstoðarinnan-
ríkisráðherra Frakklands, sagði að
slökkviliðið hefði aðeins haft um 15-
30 mínútur til að bjarga kirkjunni.
„Þetta er meira en kraftavark, þetta
er hetjudáð,“ sagði fulltrúi erkibisk-
upsins í París um slökkvistarfið.
Ekki er vitað hversu mikið af list-
munum og málverkum eyðilagðist í
brunanum. Aðalorgel kirkjunnar
skemmdist en þekktustu steindu
gluggar hennar eru óskemmdir, að
sögn AFP.
Slökkviliðsmennirnir björguðu
meðal annars þyrnikórónu, sem sagt
er að hafi verið sett á höfuð Krists
áður en hann var krossfestur, og
kyrtli, sem Loðvík 14. konungur er
sagður hafa verið í þegar hann flutti
þyrnikórónuna til Parísar.
Gæti tekið mörg ár eða áratugi
Fyrirtæki og auðkýfingar hafa lofað jafnvirði nær 100 milljarða króna til endurreisnar Notre-Dame í
París eftir að þak kirkjunnar brann og turnspíra hrundi Slökkviliðið kom í veg fyrir enn meira tjón
26 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2019
Sólóhúsgögn ehf. Gylfaflöt 16-18 112 Reykjavík Sími 553 5200 solohusgogn.is
Retro borð
Hringlaga eldhúsborð með ryðfríum stálkanti
og harðplastlagðri plötu.
Stærð og litur að eigin vali.
Einnig fáanlegt í ferkantaðri útfærslu.
Verð frá kr. 102.700
E60 orginal stóll, verð kr. 32.100
E-60 Bekkur
Fáanlegur í mismunandi lengdum.
Verð frá kr. 71.200
Íslensk
framleiðsla