Morgunblaðið - 17.04.2019, Síða 38
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2019
Þóra Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Á bakvið Brauðkaup standa sex
strákar sem eiga sterkar rætur í
Kópavogi. Þar af búa fimm þeirra á
Kársnesinu og sá sjötti er sagður á
leiðinni þangað. „Við komum allir
úr ólíkum áttum, bæði borg og
sveit og á meðal okkar eru lögmað-
ur, flugmaður, húsasmiðir, tækni-
fræðingar, bruggari, kokkur, sál-
fræðingur, rekstrarmenn og
frumkvöðlar,“ segja þeir félagarnir
kankvísir. „En það sem sameinar
okkur er Kársnesið, drifkraftur,
vinátta og almenn gleði.“
Að sögn þeirra félaga er Brauð-
kaup fyrst og fremst staður fyrir
hverfið. „Þetta er staður þar sem
þú getur keypt hágæða brauð og
úrvals bakkelsi til að taka með
heim eða í vinnuna, en líka sest nið-
ur í smá stund – fengið þér gott
kaffi, ískalda kókómjólk, snúð eða
samloku og spjallað við nágrann-
ann. Þetta á að vera staður fyrir
iðnaðarmanninn, kennarann, fram-
kvæmdastjórann, nemendur, sund-
fólkið, eldri borgara, krakkana,
fólk í fæðingarorlofi og allt þar á
milli.“
Staðsetningin mikilvæg
„Þetta hús er náttúrulega hliðið
að Kársnesi. Þegar þú keyrir inn
Borgarholtsbrautina frá Hamra-
borginni blasir þetta hús við og
býður alla velkomna. Hvort sem þú
ert að fara í Kópavogssundlaug, í
heimsókn á Þinghólsbraut, rölta
meðfram sjónum eða bara á leið-
inni heim til þín – þá heilsar húsið
þér. Hluti af þessum hóp var búinn
að horfa á þetta hús í áraraðir og
dreyma um að eignast það. Þegar
húsið kom á sölu vorið 2018 var
ekki annað í boði en að kýla á þetta.
Og svo þegar tækifæri gafst núna í
lok desember þá voru bara brettar
upp ermarnar, gömlum innrétt-
ingum mokað út og Brauðkaup var
riggað upp á sjö vikum.“
Móttökurnar hafa verið framar
björtustu vonum og þeir félagar
himinsælir með þær. „Við gætum
ekki verið ánægðari með okkar
fólk. Móttökurnar hafa verið fram-
úrskarandi og efla okkur í að gera
enn betur á næstu misserum en
það eru spennandi tímar fram-
undan í Kársnesinu.
Góð þjónusta og gæðavara
Matseðillinn er einnig nokkuð
fjölbreyttur og verðum stillt í hóf.
„Súrdeigsbrauðin eru stærsti part-
urinn af okkar úrvali. Classic, gróf,
heilkorna og svo dásamlega trönu-
berjabrauðið eru sannkallaðir gim-
steinar. Það er fátt betra en nýbak-
að úrvals súrdeigsbrauð með
smjöri og osti eða góðu chilli tún-
fisksalati. Í bakkelsinu eru það
snúðarnir sem eru alltaf vinsælir,
þessir klassísku eða eitthvað aðeins
öðruvísi eins og pistasíusnúðar eða
cinnabun, en hindberjacroissantið
hefur líka komið sterkt inn. Svo
bindum við miklar vonir við grill-
samlokurnar okkar - Kylie Jenner,
De Niro og Don Heffe eiga eftir að
gera allt vitlaust,“ segir þeir fél-
agar og ljóst að ekki skortir hug-
myndaauðgina á þeim bænum.
Næstu skref eru enn óráðin en
aðaláherslan sé að vera með góða
þjónustu og gæðavöru. „Við erum
svo sem að feta okkur fyrstu skref
við að þjónusta hverfisbúa og vilj-
um gera það eins vel og við getum.
Okkur langar samt að bæta við á
næstunni og bjóða meira matar-
kyns tengt hádegismat, en við
höldum að þar sé eftirspurn. Nú
þegar erum við með grillaðar súr-
deigssamlokur á sanngjörnu verði
og svo ætlum við að bæta við súpu
á virkum dögum. Svo eru plön um
að nýta afgangs brauð í bjórgerð,
en einn okkar hefur unnið í dágóð-
an tíma sem bruggari. En hver veit
síðan hvað framtíðin ber í skauti
sér. Möguleikarnir á Kársnesinu er
miklir og við eigum okkur draum
um stærri hverfisstað og meiri
gleði. Við sjáum hvað setur.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kársnesið kallar
Það er eitthvað við þessa sögu sem er svo ótrúlega heilt og fallegt. Sex vinir,
allir úr Kópavoginum ákveða að opna bakarí í hverfinu, sannkallaða hverfis-
búllu í viðleitni sinni til að halda lífi á gamla staðnum og búa til samkomu-
stað fyrir hverfið. Staðurinn heitir Brauðkaup og að sögn vinanna á bak við
hann eru þeir rétt að byrja.
Vinahópurinn Ásgeir Þór Jónsson, Jónas
Pétur Ólason, Jóhannes Hlynur Hauksson,
Helgi Páll Einarsson, Haukur Einarsson og
Þórólfur Heiðar Þorsteinsson.
Brauðkaup Skemmtilegt nafn á skemmti-
legri hugmynd sem bætir svo miklu við
hverfið og samfélagið sem þar er.
Smart Útlit staðarins og hönnun
þykir einstaklega vel heppnuð.
Brauðbúlla Gott
úrval er af sæl-
kerabrauðum í
Brauðkaup.
Litagleði
Bleiki litur-
inn tekur
matinn upp
á næsta stig.
W W W. S I G N . I S
Fornubúðir 12, 220 Hafnarfjörður │ S: 555 0800 │sign@sign.is