Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Blaðsíða 7
5. apríl 2019 FRÉTTIR 7
VIÐ BREYTUM
VIÐ FLYTJUM
*Afsláttur gildir ekki af öðrum tilboðsvörum.
20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM
Laugavegi 178
Allar nánari upplýsingar í síma 568 9955
VIÐ BREYTUM, VIÐ FLYTJUM
VIÐ LOKUM VERSLUNINNI
Á LAUGAVEGI 178, 17. APRÍL KL.18:00.
MATAR- OG KAFFISTELL, GLÖS, IITTALA,
RÚMFÖT, SPEGLAR OG FLEIRA.
20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM
SEND
UM
ÚT Á
LAND
*
*
OPNUNARTÍMI
MÁN – FÖS KL.11:00 – 18:00
LAUGARDAGA KL.11:00 – 16:00
Sinfóníutónleikar,
tjútt og tiltekt
Á föstudögum spyrjum við nokkra einstaklinga hvað
þeir ætli að gera um helgina. DV fékk þau Lovísu
Tómasdóttur fatahönnuð, Ómar Úlf Eyþórsson út-
varpsmann og Evu Björk Eyþórsdóttur söngkonu til
að segja frá helgarplönum sínum.
Lovísa – Helgi andstæðna:
„Helgi andstæðna er framundan
hjá mér. Byrja í hádegismat á Brass
á föstudaginn, hef heyrt að þar
séu bestu hamborgarar landsins
bornir á borð og þarf eðlilega að fá
það staðfest. Um kvöldið taka við
lokatónleikar þungarokkshljóm
sveitarinnar Endless Dark sem
haldnir verða á Húrra. Á laugar
daginn verður skipt um gír, en þá
er förinni heitið í afmæli eiganda
verslunarinnar Kjólar og Konfekt
og ber viðburðurinn heitið
„Einhyrningar eru víst til.“ Býst við
mikilli gleði og glimmeri þar.“
Ómar Úlfur – Topphelgi
framundan:
„Það er sega mega afmælis
helgi framundan. Grétar Þór,
sonur minn, verður 8 ára á föstu
daginn og fjölskyldan fer í keilu
um kvöldið og svo í pítsuveislu.
Á laugardaginn fer ég svo með
krakkana í sund og út að leika
á meðan ástkær eiginkona mín
bakar og undirbýr afmælisveislu
sem verður haldin á sunnudaginn.
Á sunnudaginn fyllist svo húsið
af fjölskyldu og vinum í afmælis
gleði. Topphelgi framundan.“
Eva Björk – Góða veðrið nýtt:
„Á föstudagskvöldið ætla ég
að skella mér með mannin
um mínum á Star Warsbíótón
leika með Sinfóníuhljómsveit Ís
lands og svo er árshátíð í vinnunni
hans á laugardagskvöldið. Annars
ætlum við líka að nýta „góða“
veðrið og fara í hjólatúr með litla
stubbinn okkar og við skellum
okkur eflaust í sund líka. Reyndar
ætlaði ég líka að tækla geymsluna
– sem er mikill hausverkur, en það
kemur bara í ljós hvort ég nenni
því. Þetta verður sem sagt bara
notaleg fjölskylduhelgi með dassi
af tjútti og tiltekt.“
Hver vinnur fyrstu
luftgítarkeppni Íslands?
M
iðvikudaginn 10. apríl
fer nýstárleg keppni
fram á skemmtistaðnum
Gauknum í Reykjavík. Þar
mun fyrsta luftgítarkeppni Íslands
fara fram, vinningshafar hennar
munu hreppa armbönd á rokk
hátíðina Eistnaflug sem haldin
verður í Neskaupstað í júlí.
Vinningshafi þar, Íslands
meistarinn í luftgítar, mun síð
an keppa í heimsmeistara
keppninni í Finnlandi. „Það er
til mikils að vinna,“ segir Erla
Rut Haraldsdóttir, einn skipu
leggjenda keppninar og Eistna
flugs. „Dómarar keppninnar eru
Magný Rós Sigurðardóttir, fram
kvæmdastjóri Eistnaflugs, Ómar
Úlfur Eyþórsson útvarpsmaður og
Óskar Logi Ágústsson, söngvari
og gítarleikari Vintage Caravan.
Við hvetjum alla áhugasama til að
taka þátt og rokkunnendur til að
mæta, þetta verður mega gaman
og skemmtileg keppni.“
Skráning fer fram á luftgitar@
eistnaflug.is. Húsið verður síðan
opnað kl. 20.30 og það kostar litlar
1.000 kr. inn.
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is