Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2019, Qupperneq 8
8 5. apríl 2019FRÉTTIR
D
V heldur nú áfram um-
fjöllun um málefni Fiski-
stofu. Í síðasta helgarblaði
var greint frá því að inn-
an stofnunarinnar ríkti slæmur
starfsandi og lítið traust sem lýsti
sér meðal annars í því að í bifreið-
ar starfsmanna var settur eftirlits-
búnaður og að vinnustaðasál-
fræðingar hefðu verið kallaðir til.
Vandræðin hófust eftir misheppn-
aðan flutning höfuðstöðvanna til
Akureyrar. Þá greindi DV einnig
frá því að stofnunin greiði himin-
háar greiðslur í dagpeninga á ári
hverju. Á síðasta ári voru það um
40 milljónir króna.
Hér verður fjallað um sum
þeirra mála sem heimildarmenn
DV nefndu til sögunnar þegar rætt
var við þá um starfsemi stofnunar-
innar.
Huglægt mat á hæfni
starfsfólks
Flutningur Fiskistofu til Akureyrar
var tilkynntur sumarið 2014 og
gekk í gegn í byrjun árs 2016. Til-
kynnti Eyþór Björnsson fiskistofu-
stjóri þá að engum starfsmönnum
yrði sagt upp eða settir afarkost-
ir. En starfsfólki bauðst að flytja
norður og fá til þess greiðslur til að
aðstoða við flutninginn.
Þetta reyndist ekki rétt því að
staða millistjórnenda sem starfað
höfðu um árabil hjá stofnuninni
breyttist mikið við flutninginn.
Fyrir eina stöðuna var til dæmis
ákveðið að búa til tvær nýjar, með
aðstöðu á Akureyri og Hornafirði.
Var framkvæmt mat á þáverandi
millistjórnendum í ýmsum flokk-
um, meðal annars ensku og tölvu-
kunnáttu, en þeir ekki látnir taka
neitt próf. Ekki voru þeir einu sinni
látnir vita heldur aðrir látnir gera
huglægt mat á hæfni þeirra. Út frá
þessu mati var þeim sagt að þeir
stæðust ekki nýjar kröfur.
Öðrum þeirra var boðið að taka
við nýju en óskilgreindu starfi
ásamt því að taka á sig meira en
100 þúsunda króna launalækkun.
Þurfti hann að fara í hart með lög-
fræðing sér við hlið til að ná fram
starfslokasamningi til eins árs og á
fullum launum.
Var þessi breyting gríðarlega
dýr fyrir stofnunina, sérstaklega í
ljósi þess að hinir nýju tveir starfs-
menn ferðast mikið og fá dagpen-
inga og ferðakostnað greiddan.
Niðurfelling sektar
Mikils titrings hefur einnig gætt
innan Fiskistofu vegna máls er
varðar bátinn Daðey GK sem var
í eigu Marvers ehf. í Grindavík. Í
ágúst 2017 var lagt á sérstakt gjald,
kallað álagning, sem er í raun jafn-
gildi sektar, vegna veiða bátsins
þegar hann var sviptur veiðileyfi í
apríl sama ár. Báturinn hafði verið
sviptur veiðileyfi frá og með 3.
apríl til og með 10. apríl þar sem
afladagbók hans hafði ekki verið
skilað. Báturinn var á þessum tíma
gerður út á línuveiðar frá Grinda-
vík. Þrátt fyrir sviptingu veiðileyfis
fór áhöfn bátsins til veiða og land-
aði um 2,6 tonnum af óslægðum
afla í Grindavík þann 6. apríl. Það
er hefðbundið að bátar og skip séu
svipt veiðileyfi ef ekki eru staðin
skil á afladagbók og gildir svipt-
ingin þar til afladagbók er skilað.
Í bréfi Fiskistofu til Marvers ehf.
var málið rakið og útgerðinni gef-
inn kostur á að koma athugasemd-
um og andmælum á framfæri við
Fiskistofu áður en ákvörðun yrði
tekin um hvort báturinn yrði svipt-
ur veiðileyfi eða álagningu beitt.
Í lok júlí var bréf sent til út-
gerðarinnar þar sem tilkynnt var
að útgerðinni yrði veitt áminn-
ing vegna málsins þar sem um
fyrsta brot væri að ræða og það
væri minniháttar. Fram kemur að
útgerðin hafi síðan svarað bréfi
Fiskistofu í maí og komið því á
framfæri að vandræði með tölvu
í Daðey GK hefði komið við sögu.
Fiskistofa taldi það svar ekki geta
haft áhrif á ákvörðun í málinu.
Auk þess að veita útgerðinni
áminningu tilkynnti Fiskistofa að
skoðað yrði hvort álagningu vegna
ólögmæts sjávarafla yrði beitt í
málinu.
Með bréfi til Marvers ehf. í lok
ágúst var útgerðinni tilkynnt um
álagningu sérstaks gjalds vegna
ólögmæts sjávarafla og nam það
749.780 krónum samkvæmt gögn-
um sem DV hefur undir höndum.
Þetta er hefðbundin afgreiðsla
sem þýðir að aflaverðmætið er í
raun tekið af útgerðinni og hún
situr uppi með kostnaðinn við að
halda bátnum til veiða, þar með
talin laun, olía og kaup á aflaheim-
ildum. Útgerðin tapar því á því að
hafa haldið bátnum til veiða þegar
hann var sviptur veiðileyfi.
Hreidur.is • Auðbrekka 6 •Sími 822 7242
HREIÐUR.IS
STARFSMENN FISKI-
STOFU YFIRHEYRÐIR
n Kurr vegna niðurfelldrar sektar n Fiskur tekinn úr frystiskipum
„Var framkvæmt mat á hæfni
þeirra í ýmsum flokkum, meðal
annars ensku og tölvukunnáttu, en þeir
ekki látnir taka neitt próf.
Fiskiskip Á siglingu út Eyjafjörð.