Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2019, Page 21
Sértæk þjónusta
7. júní 2019
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is
Sumarið er langbest úti á svölum!
Nú er sumarið komið og ekki seinna vænna en að standsetja svalirn-
ar til þess að geta notið allra
þessara dýrðlegu sólargeisla til
hins ítrasta. Góðar svalir auka
virði fasteignar og þannig er
komin nýting á svalirnar allt
árið. Það besta við góðar svalir
er að íbúar geta notið útiveru
allt árið um kring. Lumon-
-svalalokunarkerfin frá Ál og
Gler eru gríðarlega þægileg
í notkun fyrir einstaklinga og
gera svalirnar að einstökum
griðastað, bæði á sumrin og á
veturna.
Ál og Gler varð upphaflega
til sem viðauki við fyrirtækið
Stál og Suða sem hefur verið
starfandi í 20 ár. „Vinsældir Ál
og Gler hafa verið gríðarlegar
frá opnun og því höfum við haft
í nógu að snúast frá upphafi.
Við erum að bjóða upp á
sóltjöld, handrið fyrir svalir og
fyrsta flokks svalalokunarkerfi
frá Lumon,“ segir Einar Ingason,
stjórnarformaður Ál og Gler.
Vinsæl og stílhrein svalalok-
unarkerfi
Yfir milljón Lumon svalalokanir
hafa verið seldar í gegnum tíð-
ina og Lumon-kerfið hefur verið
leiðandi í gæðamálum í yfir 30
ár. „Hjá Lumon er gríðarlega
mikið lagt upp úr nýsköpun og
hönnun og við hjá Ál og Gler
höfum kerfisbundið verið að
fækka útlitsviðaukum á borð
við pósta og annað. Þannig fær
glerið að njóta sín og falla inn í
útlit hússins.“
Henta fyrir alls konar
veðurfar
Lumon-kerfin koma frá Finn-
landi, en Finnar hafa lengi verið
leiðandi í gerð svalalokana.
Finnskt veðurfar er ekki ólíkt því
sem gengur og gerist á Íslandi,
nema vindar og frost eru þar
heldur meiri en hér. Því er
Lumon tilvalið fyrir íslenskt veð-
urfar. „Vindálagið sem við bjóð-
um upp á er með því hæsta í
heiminum. Lumon er CCMC og
CE-vottað og fékk verðlaunin
European Technical Approval
(ETA-06/0019). Lumon-kerfið
var fyrsta kerfið í Evrópu til að
hljóta slíka vottun og er núna
eina kerfið til að hljóta CCMC-
-vottun. Lumon-kerfið hentar
því í köldu veðri en hefur einnig
sannað sig á stöðum einsog
Dubai þar sem sandstormar
herja á blokkir,“ segir Einar.
Starfsmenn Ál og Gler hafa
mikla reynslu í uppsetningu og
mælingum og leggja sig fram
við að þjónusta viðskiptavini
sína í öllu ferlinu, alveg frá hug-
myndavinnu og yfir í þjónustu
eftir að kerfið er komið upp.
„Við bjóðum þá upp á fríar
mælingar og gerum tilboð til
viðskiptavina útfrá stærð svala.
Hafðu samband við okkur og
fáðu tilboð í þínar svalir.“
Úti á svölum allt árið um kring
Ál og Gler býður einnig upp á
alls kyns vörur til þess að gera
svalirnar notalegri og þegar
svalalokun er komin upp er
nýting allt árið á svölunum. „Við
mælum með því að fólk taki
sér tíma og hanni rýmið eins
og hentar þeim. Við bjóðum
t.d. upp á sérgerð stillanleg
sóltjöld sem gerir kleyft að stilla
birtu eftir hentisemi. Tjöldin
er þá m.a. hægt stilla þannig
að þau að loki á sólarljós á
sumrin þegar sólin er lágt á
lofti. Skoðaðu sóltjöldin á visor.
is. Einnig erum við með hitara
fyrir svalirnar á veturna. Það á
að vera hægt að nýta svalirnar
allt árið um kring og því er hitari
fyrir veturinn það sem gerir
herslumuninn.“
„Við leggjum mikið upp úr
þjónustu og viljum vinna náið
með okkar viðskiptavinum. Þess
vegna hefur Ál og Gler verið
tekið fagnandi á íslenskum
markaði og við vonumst til að
þjónusta Íslendinga í mörg ár til
viðbótar,“ segir Einar að lokum.
Flatahraun 29, Hafnarfjörður
Nánari upplýsingar má nálgast
á aloggler.is
Facebook: Ál og Gler
Sími: 535-5453
netpóstur: aloggler@alog-
gler.is n
LUMON SVALALOKUNARKERFI FRÁ ÁL OG GLER: