Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2019, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2019, Síða 26
Sértæk þjónusta 7. júní 2019KYNNINGARBLAÐ Veitingastaðurinn Caruso hefur fyrir löngu sannað sig sem einn ástsælasti veitingastaður Reykvíkinga. Notalegt andrúmsloft, ljúffengir drykkir, góð stemning og síðast en ekki síst, alltaf góður matur. Caruso hefur verið rekinn af hjón- unum José Garcia og Þrúði Sjöfn Sigurðardóttur í tuttugu ár og hafa þau ætíð lagt mikið upp úr góðu og fersku hráefni og ljúffengum mat með Miðjarðarhafsívafi. Sögufrægur veitingastaður í sögufrægum húsum „Caruso við Austurstræti er stað- settur í sögufrægu húsi í Austurstræti 22. Húsið var upphaflega reist úr innfluttum norskum við yfir stiftam- tmann í kringum 1800 og hýsti síðar landsyfirrétt. Einnig var húsið mið- punktur atburðarrásarinnar sumarið 1809 þegar ævintýramaðurinn Jör- undur Hundadagakonungur tók hér völdin. Skemmtistaðurinn Pravda var þar svo til húsa þegar húsið brann árið 2007. Húsið var endurbyggt í upprunalegri mynd og farið var eftir stokkaleifum sem varðveittust, efnið var höggvið til á sama hátt, samsetn- ingar voru gerðar eins og húsamosi tíndur á heiðum og settur til þéttingar milli stokkanna, skarsúðin var sett upp að nýju handhefluð og er sýni- leg að innan. Eldstæðið var að sama skapi endurgert, en tilfinningin í þessu nýja gamla húsi er ólík öðru sem við höfum kynnst. Einnig er Caruso við höfnina stað- sett í sögufrægu húsi við Ægisgarð 2, en um er að ræða gamalt saltfisk- vinnsluhús að nafni Sólfell. Það var upphaflega reist á Kirkjusandi árið 1921 af Th. Thorsteinssyni fisk- verkanda. Það var þá stærsta og á sinn hátt tæknivæddasta salthúsið í Reykjavík,“ segir Þrúður. Komdu út að borða Báðir veitingastaðir Caruso eru með heillandi útisvæði. „Hjá Caruso við höfnina er höfnin svo að segja í bakgarðinum. Þegar veður leyfir er dásamlegt að sitja úti og horfa yfir höfnina og njóta matar og drykkjar. Stemningin er skemmtilega alþjóðleg þegar ferðamenn og Íslendingar hitt- ast saman úti að borða. Einnig er notalegur bakgarður hjá Caruso í Austurstræti þar sem margir byrja með fordrykk þegar veður er gott. Öll föstudags- og laugardagskvöld eru svo tileinkuð honum Símoni Ívarsyni, klassískum gítarleikara sem myndar alveg hreint einstaka stemningu hjá okk- ur á Caruso í Austurstræti.“ Himneskt sjávarréttarisottó Caruso býður upp á stóran og fjöl- breyttan matseðil þar sem allir ættu að finna sinn uppáhaldsrétt. „Lambakórón- an er alltaf vinsæl og einnig fiskurinn og svo hefur sjávarréttarisottóið okkar heldur betur slegið í gegn, enda er það algerlega himneskt. Svo erum við að taka inn nýja hádegisseðla á næstunni og erum spennt fyrir að sýna hann viðskiptavinum okkar,“ segir Þrúður. Caruso, Austurstræti 22, 101 Reykjavík Sími: 562-7335 Tölvupóstur: caruso@caruso.is Caruso Harbor, Ægisgarði 2, 101 Reykjavík Sími: 512-8181 Tölvupóstur: carusoharbor@ caruso.is Nánari upplýsingar má nálgast á Facebook-síðu staðarins. n Himneskt sjávarréttarisottó og nýr hádegisseðill CARUSO:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.