Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Síða 8
8 8. mars 2019FRÉTTIR
Ráin er alhliða veitingahús
í hjarta Reykjanesbæjar
MATSÖLUSTAÐUR
SKEMMTISTAÐUR
RÁÐSTEFNUR
ÁRSHÁTÍÐIR
VEISLUR
ÍSLENDINGAR SEM HORFIÐ HAFA ERLENDIS
Íslenska þjóðin hefur fylgst harmi slegin með leitinni
að Jóni Þresti Jónssyni sem hvarf í Dyflinni fyrir
tæpum mánuði. Jón Þröstur er fjögurra barna faðir
og er angist fjölskyldu hans allt að því áþreifanleg,
eins og von er. Fátt er jafn óhugnanlegt og þegar
einstaklingar hverfa sporlaust af yfirborði jarðar. Frá
því um miðja síðustu öld hafa hátt á annan tug Ís-
lendinga horfið á erlendri grundu. Í sumum tilfellum
hafa jarðneskar leifar viðkomandi fundist mörgum
árum síðar en önnur tilfelli teljast óupplýst. DV tók
saman nokkur dæmi sem öll eiga það sameiginlegt
að aldrei fannst tangur né tetur af hinum horfnu.
Það var aðfaranótt mánudagsins
26. febrúar árið 1951 að vélskip-
ið Víkingur frá Seyðisfirði lagð-
ist að bryggju í hafnarborginni
Aberdeen á austurströnd
Skotlands. Einn sjómaðurinn
um borð hét Hjörtur Bjarnason.
Þetta var hefðbundin ferð, afl-
inn var seldur á mánudeginum,
olía tekin og síðan gert klárt fyr-
ir brottför. Vitaskuld fóru skip-
verjar í land til þess að lyfta sér
örlítið upp fyrir áframhaldandi
veiðar.
Þrír skipverjar fóru á hótelið
Stanley til að borða um sjöleytið;
Björn Einarsson, fyrsti vélstjóri,
og hásetarnir Þorgeir Jónsson
og Hjörtur Bjarnason. Eftir tæpa
tvo klukkutíma vildu Þorgeir og
Hjörtur út en Björn ákvað að
sitja áfram. Þegar átti að sigla
daginn eftir var Hjört hvergi að
finna. Í kjölfarið var skipulögð
leit um alla borgina. Leitin bar
ekki árangur og var skipstjóran-
um á Víkingi gert að fresta sigl-
ingunni um tvo daga á meðan
hvarfið yrði rannsakað. Þegar
Hjörtur fannst ekki að þeim tíma
liðnum fékk skipstjórinn heimild
til að sigla og hélt þá til Íslands.
Hjörtur var fimmtugur að
aldri, ókvæntur og barnlaus.
Hann var talinn hið mesta prúð-
menni og hafði oft verið gerð-
ur að formanni á bátum. Skip-
verjunum þótti ósennilegt að
Hjörtur hefði fallið í höfnina
og drukknað. Þá var talið úti-
lokað að Hjörtur hefði fyrirfar-
ið sér, þar sem ekkert benti til
þess í fari hans. Leit var hætt í
Aberdeen þann 8. mars 1951.
Ragna Esther Sigurðardóttir var
ung Reykjavíkurmær á stríðsár-
unum þegar hún varð ástfangin
af bandarískum hermanni,
Emerson Lawrence, eða Larry
eins og hann var kallaður. Þau
gengu í hjónaband á Íslandi árið
1946 og fluttust síðan búferl-
um til Portland í Oregon-fylki,
þar sem Ragna tók upp nafnið
Esther Gavin. Þegar til Ameríku
var komið missti Ragna fljót-
lega tengslin við fjölskyldu sína.
Hjónin ættleiddu síðar meir
tvö börn saman en eiginmað-
ur Rögnu reyndist vera úlfur í
sauðargæru og mátti hún þola
hrottalegt ofbeldi af hans hálfu.
Hjónin skildu og fékk Ragna þá
fullt forræði yfir börnunum en
árið 1951 var þeim komið fyrir
hjá fósturforeldrum.
Árið 1952 hvarf Ragna spor-
laust , þá 23 ára gömul, en lengi
vel var talið að Larry hefði ráð-
ið henni bana. Árið 2011 greindi
RÚV frá því að ættingjar Rögnu
væru að reyna að komast að því
hver örlög hennar hefðu orðið. Í
ljós kom að Ragna upplifði meiri
viðbjóð en nokkurn hefði órað
fyrir. Dóttir Larry lýsti föður sín-
um sem skrímsli og kynferðislega
brengluðum og fram kom að eitt
sinn hefði Ragna legið í hálfan
mánuð á spítala eftir ofbeldi af
hálfu eiginmanns síns.
Í janúar 2012 var rannsókn
málsins tekin upp á ný hjá lög-
reglunni í Portland. Sama ár fékk
fjölmiðlakonan Lillý Valgerður
Oddsdóttir áhuga á málinu og
lagðist í mikla rannsóknarvinnu.
Í kjölfarið kom í ljós að Ragna
hafði mörgum árum áður breytt
nafni sínu í Ragna E. Íshólm, af
ótta við fyrrverandi eiginmann
sinn. Hún hafði gifst á ný og
eignast tvö börn með seinni eig-
inmanni sínum. Áttu þau langt
og farsælt hjónaband en Ragna
hélt sorglegri fortíð sinni ávallt
leyndri fyrir börnum sínum. Hún
lést af völdum lungnakrabba árið
2002.
Friðrik Kristjánsson hvarf spor-
laust í Paragvæ vorið 2013, þá
þrítugur að aldri. DV hefur fjallað
töluvert um málið síðustu misseri
en ýmsar sögur hafa verið uppi
um hvarf Friðriks, sem talið er
tengjast fíkniefnaheiminum hér
á landi.
DV greindi frá hvarfi Friðriks
í maí 2013 þar sem fram kom að
lögregluyfirvöld hér á landi hefðu
rannsakað málið í samvinnu við
fjölskyldu og vini Friðriks. Þá leit-
uðu íslensk lögregluyfirvöld lið-
sinnis lögregluyfirvalda í Bras-
ilíu og Paragvæ við leitina og fór
Karl Steinar Valsson, yfirmaður
fíkniefnadeildar Lögreglunnar
á höfuð borgarsvæðinu, ásamt
öðrum manni til
Paragvæ í lok árs
2013 til að að-
stoða við leit að
Friðriki.
Í maí 2017 ræddi
DV við vini og félaga Friðriks
sem umgengust hann seinustu
mánuðina fyrir hvarfið. Sögðu
þeir að síðustu mánuðir Friðriks
á Íslandi hefðu einkennst af gíf-
urlegri fíkniefnaneyslu og ofbeldi.
Einn af félögum hans sagðist
telja fullvíst að Friðrik hefði ver-
ið þvingaður til að fara til Suður-
-Ameríku til að vinna upp í fíkni-
efnaskuld.
Síðast er vitað um ferðir Frið-
riks þann 27. mars 2013 en þá hr-
ingdi hann í vin sinn og sagðist
vera á rútustöð í Brasilíu. Hann
sagði vini sínum að hann væri á
leiðinni yfir landamærin til Para-
gvæ en ekkert gaf þá til kynna
að hann væri í vandræðum.
Nokkrum dögum síðar hringdi
hann þrisvar með stuttu tímabili
í fyrrverandi kærustu sína sem
náði ekki að svara.
Á 33 ára afmælisdegi Friðriks
birti Vilborg Einarsdóttir, stjúp-
móðir hans, færslu á Facebook-
-síðu sinni þar sem hún sagði
fjölskylduna halda enn í vonina
um að hann fyndist. Fjölskylda
og vinir Friðriks hafa lýst honum
sem „hugljúfum, framúrskarandi
námsmanni og öflugum íþrótta-
manni.“ Hann er sagður hafa ver-
ið metnaðarfullur og með allt á
hreinu þar til hann leiddist út í
neyslu fíkniefna.
Hala Mohamed Zaki Ibrahim
hvarf sporlaust í júníbyrjun
2016. Hala fæddist í Egyptalandi
en hafði verið búsett á Íslandi
í fjölda ára, var komin með ís-
lenskan ríkisborgararétt og starf-
aði sem leiðbeinandi á leikskóla.
Lýst hefur verið eftir Hala á
vef Interpol en ekkert hefur til
hennar spurst. Á vef Interpol
kemur fram að Hala hafi horfið
á Íslandi en þegar Fréttablaðið
ræddi við Lögregluna á höfuð-
borgarsvæðinu í mars 2017 feng-
ust þau svör að málið væri úr
höndum embættisins þar sem
talið væri að Hala væri stödd í
Egyptalandi. Þá kom jafnframt
fram að ekki væri uppi grunur
um saknæma háttsemi í tengsl-
um við hvarf hennar, og að lýst
hefði verið eftir henni að beiðni
fjölskyldumeðlima.
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is
ZAKI IBRAHIM HALA MOHAMED
HJÖRTUR BJARNASON
RAGNA E. SIGURÐARDÓTTIR
FRIÐRIK KRISTJÁNSSON