Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Blaðsíða 44
44 FÓKUS 8. mars 2019 Þ að muna kannski ekki allir eftir vefsíðunni superman. is, en þeir sem það gera ættu að muna eftir því að hafa með eftirvæntingu kveikt á tölvunni eftir enn eitt djammið til þess að athuga hvort þeir hafi orðið þess heiðurs aðnjótandi að hafa verið myndaðir og fengið pláss á síðunni. Á þeim tíma sem Superman var ein vinsælasta síða unga fólks- ins í landinu var Facebook ekki orðið að stóru nafni og þeir sem spókuðu sig á samfélagsmiðlum þess tíma voru aðallega á síðunni MySpace. Superman var stofnuð árið 2006 og á síðunni mátti nálg- ast ljósmyndir frá hinum ýmsu viðburðum landsins. Það var hann Sveinbi, sem síðan þá hefur verið kenndur við Superman, sem stofnaði síðuna og hélt henni gangandi í mörg ár. Ekki er hægt að fara inn á síðuna í dag til þess að skoða gamlar myndir en þó er hægt að skoða eitthvað af þeim á Facebook-síðu Superman. Blaðakona, sem einmitt stund- aði bæinn reglulega á þeim tíma sem Superman var hvað vin- sælust ákvað að heyra í Sveinba. Ræða við hann um hvaðan hug- myndin að síðunni hafi kom- ið, hvernig þetta tímabil hafi ver- ið og hvernig hann upplifði sig sem einn vinsælasta ljósmyndara landsins. Sveinbi, sem er tveggja barna faðir í dag, segir að hugmyndin að Superman hafi komið þegar hann var með vinum sínum í bænum og fólk fór að spyrja hann út í myndir og blogg. Var ekkert mál að fá að mynda hvern sem er og hvar sem er? „Það var lítið mál, í um 90 pró- sent tilfella var ég beðinn um að taka myndir af fólki. Það voru ein- hverjir staðir sem voru ekki hrifn- ir af því að ég væri að mynda, til þess að byrja með, en svo spurðist þetta hratt út og fleiri staðir fóru að vilja fá mig í heimsókn.“ Sló þetta strax í gegn? „Það tók mun minni tíma að slá í gegn en ég hugði. Þetta varð gríðarlega vinsælt og stækkaði hratt. Það var allur aldur sem sótti í myndirnar frá Superman. Alls kyns viðburðir, sýningar og fleira. Á tímabili voru myndir skoðaðar um 20 til 100 þúsund sinnum eftir hverja helgi.“ Hvernig var þetta tímabil? „Þetta var bæði skemmtun og vinna. Varð fljótt mjög mikil vinna, en gekk samt upp og niður. Það sótt- ist nánast hver sem var í bænum eftir því að fá mynd og ég þurfti nánast aldrei að spyrja fólk um leyfi.“ Varð þetta aldrei yfirþyrm- andi? „Oft var þetta bögg. Það var mikið togað í mig og æsingur í það að fá mynd og aðra mynd. Stundum var fólk með yfirgang en alls ekki alltaf.“ Var ákveðinn hópur myndaður oftast? „Nei, yfirleitt ekki en yngra fólkið var meira á myndunum samt.“ Hvar var skemmtilegast að taka myndir? „Klárlega á Pravda á sínum tíma, þegar sá staður lifði. Ásamt samt svo mörgum öðrum stöð- um. Nasa var alltaf skemmtilegur og Broadway á sínum tíma. En svo fór þetta að breytast, nýir staðir komu og hurfu jafnóðum.“ Voru fleiri sem tóku myndir fyrir síðuna? „Nei, það kom kannski fyrir, örsjaldan, og þá aðallega ef ég var ekki í bænum, sem gerðist nánast aldrei.“ Hvað lifði síðan lengi og af hverju hættir þú með hana? „Hún lifði í um tólf ár og það er enn verið að spyrja hvort ég sé ekki að koma til baka. Tólf ár eru bara fínn tími. Það var kominn tími til þess að hætta og lítið upp úr þessu að hafa í restina, var bara komið gott.“ Minnkaði aðsóknin með komu snjallsímanna? „Nei, ekki fyrst, eða nei, í raun ekki. Margir notuðu símana en vildu samt alltaf fara á vefinn.“ Ert þú eitthvað að vinna við þetta í dag? „Lítið, þá aðallega festivöl svona bara fyrir mig.“ Hvað heldur þú að þú eigir margar myndir af Ís- lendingum á djamminu og hvað ætlar þú að gera við safnið? „Ég er bara ekki viss en líklega um 50 þúsund myndir eða meira. Er ekki alveg með það á hreinu. Ég tapaði ansi mörgum myndum á sínum tíma og væri til í að eiga þær enn. Mögulega geri ég eitt- hvað við sumar myndirnar seinna meir.“ Mætti segja að þú hafir í raun skrásett íslenskt djammsamfélag á þessum tíma? „Ég á ansi mikið í skemmt- analífinu frá þessum árum, gerði alveg heilmikið. Hélt nokk- ur Superman-partí, sýningar og hjálpaði við alls konar uppákom- ur. Ég held að ansi fáir hafi gert jafn mikið og ég í þessum dúr. Sumir hafa eignast ansi margar hugmyndir frá mér án þess að ég hafi gefið þær frá mér.“ Hefur íslenska skemmtana lífið breyst mikið undanfarin 20 ár og var skemmtilegra að djamma í „gamla daga“? „Já, það hefur breyst mjög mik- ið. Fyrir tuttugu árum var opið til 3.00 á skemmtistöðunum. Já og nei, ætli það fari ekki eftir fólki og stöðum varðandi skemmtunina.“ Uppáhalds djammtímabil? „2005 til 2009 held ég, er svo sem ekki alveg viss.“ Hvað gerir þú í dag? „Ég hitti börnin mín eins mikið og ég get. Leik mér eins og ég get og mynda og mála þess á milli.“ Hér má sjá hluta af þeim myndum sem Sveinbi hefur tekið á djamminu í gegnum tíðina og gaf hann DV góðfúslegt leyfi til birtingar. „ÉG Á ANSI MIKIÐ Í SKEMMTANALÍFINU FRÁ ÞESSUM ÁRUM“ n Sveinbi Superman myndaði Íslendinga á djamminu í yfir áratug Frost í kortunum? Ekki láta kuldann koma þér í vandræði Komdu við og láttu mæla rafgeyminn þinn! TUDOR Alltaf öruggt start eftir kaldar nætur MIKIÐ ÚRVAL, TRAUST OG FAGLEG ÞJÓNUSTA Bíldshöfða 12 / S. 577 1515 / skorri.is Við mælum rafgeyma og skiptum um Hr að þjónusta Aníta Estíva Harðardóttir anita@dv.is Sveinbi og Fúsi Sig
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.