Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Qupperneq 44
44 FÓKUS 8. mars 2019
Þ
að muna kannski ekki allir
eftir vefsíðunni superman.
is, en þeir sem það gera
ættu að muna eftir því að
hafa með eftirvæntingu kveikt á
tölvunni eftir enn eitt djammið
til þess að athuga hvort þeir hafi
orðið þess heiðurs aðnjótandi að
hafa verið myndaðir og fengið
pláss á síðunni.
Á þeim tíma sem Superman
var ein vinsælasta síða unga fólks-
ins í landinu var Facebook ekki
orðið að stóru nafni og þeir sem
spókuðu sig á samfélagsmiðlum
þess tíma voru aðallega á síðunni
MySpace. Superman var stofnuð
árið 2006 og á síðunni mátti nálg-
ast ljósmyndir frá hinum ýmsu
viðburðum landsins. Það var
hann Sveinbi, sem síðan þá hefur
verið kenndur við Superman,
sem stofnaði síðuna og hélt henni
gangandi í mörg ár. Ekki er hægt
að fara inn á síðuna í dag til þess
að skoða gamlar myndir en þó er
hægt að skoða eitthvað af þeim á
Facebook-síðu Superman.
Blaðakona, sem einmitt stund-
aði bæinn reglulega á þeim tíma
sem Superman var hvað vin-
sælust ákvað að heyra í Sveinba.
Ræða við hann um hvaðan hug-
myndin að síðunni hafi kom-
ið, hvernig þetta tímabil hafi ver-
ið og hvernig hann upplifði sig
sem einn vinsælasta ljósmyndara
landsins.
Sveinbi, sem er tveggja barna
faðir í dag, segir að hugmyndin að
Superman hafi komið þegar hann
var með vinum sínum í bænum
og fólk fór að spyrja hann út í
myndir og blogg.
Var ekkert mál að fá að mynda
hvern sem er og hvar sem er?
„Það var lítið mál, í um 90 pró-
sent tilfella var ég beðinn um að
taka myndir af fólki. Það voru ein-
hverjir staðir sem voru ekki hrifn-
ir af því að ég væri að mynda, til
þess að byrja með, en svo spurðist
þetta hratt út og fleiri staðir fóru
að vilja fá mig í heimsókn.“
Sló þetta strax í gegn?
„Það tók mun minni tíma að
slá í gegn en ég hugði. Þetta varð
gríðarlega vinsælt og stækkaði
hratt. Það var allur aldur sem sótti
í myndirnar frá Superman. Alls
kyns viðburðir, sýningar og fleira.
Á tímabili voru myndir skoðaðar
um 20 til 100 þúsund sinnum eftir
hverja helgi.“
Hvernig var þetta tímabil?
„Þetta var bæði skemmtun
og vinna. Varð fljótt mjög
mikil vinna, en gekk samt
upp og niður. Það sótt-
ist nánast hver sem var
í bænum eftir því að fá
mynd og ég þurfti nánast
aldrei að spyrja fólk um
leyfi.“
Varð þetta aldrei yfirþyrm-
andi?
„Oft var þetta bögg. Það
var mikið togað í mig
og æsingur í það að fá
mynd og aðra mynd.
Stundum var fólk með
yfirgang en alls ekki
alltaf.“
Var ákveðinn
hópur myndaður
oftast?
„Nei, yfirleitt
ekki en yngra
fólkið var meira
á myndunum
samt.“
Hvar var skemmtilegast að
taka myndir?
„Klárlega á Pravda á sínum
tíma, þegar sá staður lifði. Ásamt
samt svo mörgum öðrum stöð-
um. Nasa var alltaf skemmtilegur
og Broadway á sínum tíma. En svo
fór þetta að breytast, nýir staðir
komu og hurfu jafnóðum.“
Voru fleiri sem tóku myndir
fyrir síðuna?
„Nei, það kom kannski fyrir,
örsjaldan, og þá aðallega ef ég
var ekki í bænum,
sem gerðist nánast aldrei.“
Hvað lifði síðan lengi og af
hverju hættir þú með hana?
„Hún lifði í um tólf ár og það
er enn verið að spyrja hvort ég sé
ekki að koma til baka. Tólf ár eru
bara fínn tími. Það var kominn
tími til þess að hætta og lítið upp
úr þessu að hafa í restina, var bara
komið gott.“
Minnkaði aðsóknin með komu
snjallsímanna?
„Nei, ekki fyrst, eða nei, í raun
ekki. Margir notuðu símana en
vildu samt alltaf fara á vefinn.“
Ert þú eitthvað að vinna við
þetta í dag?
„Lítið, þá aðallega festivöl
svona bara fyrir mig.“
Hvað heldur þú
að þú eigir margar
myndir af Ís-
lendingum á djamminu og hvað
ætlar þú að gera við safnið?
„Ég er bara ekki viss en líklega
um 50 þúsund myndir eða meira.
Er ekki alveg með það á hreinu.
Ég tapaði ansi mörgum myndum
á sínum tíma og væri til í að eiga
þær enn. Mögulega geri ég eitt-
hvað við sumar myndirnar seinna
meir.“
Mætti segja að þú hafir í raun
skrásett íslenskt djammsamfélag
á þessum tíma?
„Ég á ansi mikið í skemmt-
analífinu frá þessum árum,
gerði alveg heilmikið. Hélt nokk-
ur Superman-partí, sýningar og
hjálpaði við alls konar uppákom-
ur. Ég held að ansi fáir hafi gert
jafn mikið og ég í þessum dúr.
Sumir hafa eignast ansi margar
hugmyndir frá mér án þess að ég
hafi gefið þær frá mér.“
Hefur íslenska skemmtana lífið
breyst mikið undanfarin 20 ár og
var skemmtilegra að djamma í
„gamla daga“?
„Já, það hefur breyst mjög mik-
ið. Fyrir tuttugu árum var opið til
3.00 á skemmtistöðunum. Já og
nei, ætli það fari ekki eftir fólki og
stöðum varðandi skemmtunina.“
Uppáhalds djammtímabil?
„2005 til 2009 held ég, er svo
sem ekki alveg viss.“
Hvað gerir þú í dag?
„Ég hitti börnin mín eins mikið
og ég get. Leik mér eins og ég get
og mynda og mála þess á milli.“
Hér má sjá hluta af þeim
myndum sem Sveinbi hefur tekið
á djamminu í gegnum tíðina og
gaf hann DV góðfúslegt leyfi til
birtingar.
„ÉG Á ANSI MIKIÐ Í SKEMMTANALÍFINU FRÁ ÞESSUM ÁRUM“
n Sveinbi Superman myndaði Íslendinga á djamminu í yfir áratug
Frost í kortunum?
Ekki láta kuldann koma þér í vandræði
Komdu við og láttu mæla rafgeyminn þinn!
TUDOR
Alltaf öruggt start
eftir kaldar nætur
MIKIÐ ÚRVAL, TRAUST
OG FAGLEG ÞJÓNUSTA
Bíldshöfða 12 / S. 577 1515 / skorri.is
Við mælum
rafgeyma og
skiptum um
Hr
að
þjónusta
Aníta Estíva Harðardóttir
anita@dv.is
Sveinbi og Fúsi Sig