Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Blaðsíða 35
Allt fyrir börnin 8. mars 2019 KYNNINGARBLAÐ Elskulegt en andfélagslegt tröll í Iðnó Hinn óviðjafnanlegi Srekk bregður á leik á leikhúsfjölum Iðnó í fyrsta skipti á Íslandi! Leikfélagið Fúría, leikfélag Kvenna­ skólans í Reykjavík, stendur fyrir uppsetningu þessa margrómaða söngleiks og hefur æft stíft síðan í byrjun janúar. DV tók Rakel Svavars­ dóttur, formann leikfélagsins, tali og spurði hana spjörunum úr um þessa skemmtilegu uppsetningu. Skemmtileg og fyndin sýning Srekk þekkja velflestir teikni­ myndaunnendur, en um er að ræða hið elskulega og andfélagslega græna tröll sem Disney gerði víð­ frægt ekki alls fyrir löngu. „Söng­ leikurinn Shrek var fyrst settur upp á Broadway árið 2008 og fékk frábæra dóma. Þetta er líka svo ótrúlega skemmtileg sýning, fyndin og lögin eru frábær,“ segir Rakel. „Ég held að þetta sé met“ Það hefur greinilega verið mikil eftir­ vænting eftir þessari sýningu því það tók ekki nema tvo daga að seljast upp á frumsýninguna. „Ég held að þetta sé met. Það hefur yfirleitt selst upp á frumsýningarnar okkar, en aldrei svona ótrúlega hratt,“ segir Rakel. Tröllið leggur í hættuför „Við fengum Agnesi Wild til þess að leikstýra okkur í ár, en hún var líka með okkur í fyrra þegar við settum upp Legally Blonde. Við vorum í vandræðum með að velja leikverk til þess að setja upp í ár og Agnes kynnti fyrir okkur Srekk, sem er að hennar sögn, uppáhaldssöngleikurinn hennar. Þegar við í stjórn leik félagsins ákváðum loks að setja upp þetta krefjandi verk þá sáum við fram á að það færi mikið púður í leikmynd og búningahönnun. Því fengum við sviðs­ og búningahönnuðinn Evu Björg Harðardóttur til liðs við okkur og við erum ótrúlega sátt við útkomuna. Það er svo ótrúlega mikið af skemmtilegum karakterum í þessu verki, sérstaklega allar þessar ævintýrapersónur sem Farquad lávarður sendir í útlegð í mýrina til Srekks. En það er einmitt þá sem sagan byrjar og Srekk neyðist til þess að halda í hættuför með óþolandi asna til þess að bjarga prinessu í sjálfsmyndarvanda úr klóm dreka. Agnes þýddi svo verkið og söng­ textana ásamt söngstýrunni okkar, Sigrúnu Harðardóttur. Þó að við séum flest góðir söngvarar þá er Sigrún alger snillingur og hefur gert fyrsta flokks „performera“ úr okkur öllum.“ Að mörgu að huga Leikararnir 29 fá allir að láta ljós sitt skína á sviðinu en það eru alls um 65 nemendur í skólanum sem koma að sýningunni. „Við erum með förðunar­, leikmynda­, hár­ og búningateymi sem sér um að allt gangi smurt fyrir sig á bak við tjöldin. Svo er markaðs­ teymi og fleira. Það er margt sem þarf að gera þegar kemur að svona stórri sýningu.“ Húmor fyrir alla Söngleikurinn Srekk er sannkölluð fjölskyldusýning þar sem húmorinn ræður ríkjum og gert er stólpagrín að ýmsum ævintýrum og persónum. „Það er mjög sniðugt að taka börnin með sér á sýninguna, því þau hafa mjög gaman af henni. En svo er líka fullt af gríni þarna sem fullorða fólkið skilur töluvert betur en börnin. Þetta er því sýning sem hentar í raun öllum aldurshópum,“ segir Rakel. Nældu þér í miða á kedjan.is/ midasala Uppsetningin fer fram í Iðnó, Vonar­ stræti 3, við Tjörnina, 101 Reykjavík. Næstu sýningar eru: mars kl. 20.00 mars kl. 20.00 mars kl. 20.00 mars kl. 20.00 mars kl. 13.00 dagsýning mars kl. 20.00 mars kl. 20.00 mars kl. 13.00 dagsýning 5. apríl: Lokasýning. kl. 20.00 SREKK:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.