Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Síða 35
Allt fyrir börnin 8. mars 2019 KYNNINGARBLAÐ
Elskulegt en andfélagslegt tröll í Iðnó
Hinn óviðjafnanlegi Srekk bregður á leik á leikhúsfjölum Iðnó í fyrsta skipti á Íslandi!
Leikfélagið Fúría, leikfélag Kvenna
skólans í Reykjavík, stendur fyrir
uppsetningu þessa margrómaða
söngleiks og hefur æft stíft síðan í
byrjun janúar. DV tók Rakel Svavars
dóttur, formann leikfélagsins, tali og
spurði hana spjörunum úr um þessa
skemmtilegu uppsetningu.
Skemmtileg og fyndin sýning
Srekk þekkja velflestir teikni
myndaunnendur, en um er að ræða
hið elskulega og andfélagslega
græna tröll sem Disney gerði víð
frægt ekki alls fyrir löngu. „Söng
leikurinn Shrek var fyrst settur upp á
Broadway árið 2008 og fékk frábæra
dóma. Þetta er líka svo ótrúlega
skemmtileg sýning, fyndin og lögin
eru frábær,“ segir Rakel.
„Ég held að þetta sé met“
Það hefur greinilega verið mikil eftir
vænting eftir þessari sýningu því það
tók ekki nema tvo daga að seljast upp
á frumsýninguna. „Ég held að þetta
sé met. Það hefur yfirleitt selst upp
á frumsýningarnar okkar, en aldrei
svona ótrúlega hratt,“ segir Rakel.
Tröllið leggur í hættuför
„Við fengum Agnesi Wild til þess að
leikstýra okkur í ár, en hún var líka
með okkur í fyrra þegar við settum
upp Legally Blonde. Við vorum í
vandræðum með að velja leikverk
til þess að setja upp í ár og Agnes
kynnti fyrir okkur Srekk, sem er að
hennar sögn, uppáhaldssöngleikurinn
hennar. Þegar við í stjórn leik félagsins
ákváðum loks að setja upp þetta
krefjandi verk þá sáum við fram á
að það færi mikið púður í leikmynd
og búningahönnun. Því fengum við
sviðs og búningahönnuðinn Evu
Björg Harðardóttur til liðs við okkur og
við erum ótrúlega sátt við útkomuna.
Það er svo ótrúlega mikið af
skemmtilegum karakterum í þessu
verki, sérstaklega allar þessar
ævintýrapersónur sem Farquad
lávarður sendir í útlegð í mýrina til
Srekks. En það er einmitt þá sem
sagan byrjar og Srekk neyðist til þess
að halda í hættuför með óþolandi
asna til þess að bjarga prinessu í
sjálfsmyndarvanda úr klóm dreka.
Agnes þýddi svo verkið og söng
textana ásamt söngstýrunni okkar,
Sigrúnu Harðardóttur. Þó að við
séum flest góðir söngvarar þá er
Sigrún alger snillingur og hefur gert
fyrsta flokks „performera“ úr okkur
öllum.“
Að mörgu að huga
Leikararnir 29 fá allir að láta ljós sitt
skína á sviðinu en það eru alls um 65
nemendur í skólanum sem koma að
sýningunni. „Við erum með förðunar,
leikmynda, hár og búningateymi
sem sér um að allt gangi smurt fyrir
sig á bak við tjöldin. Svo er markaðs
teymi og fleira. Það er margt sem
þarf að gera þegar kemur að svona
stórri sýningu.“
Húmor fyrir alla
Söngleikurinn Srekk er sannkölluð
fjölskyldusýning þar sem húmorinn
ræður ríkjum og gert er stólpagrín
að ýmsum ævintýrum og persónum.
„Það er mjög sniðugt að taka börnin
með sér á sýninguna, því þau hafa
mjög gaman af henni. En svo er líka
fullt af gríni þarna sem fullorða fólkið
skilur töluvert betur en börnin. Þetta
er því sýning sem hentar í raun öllum
aldurshópum,“ segir Rakel.
Nældu þér í miða á kedjan.is/
midasala
Uppsetningin fer fram í Iðnó, Vonar
stræti 3, við Tjörnina, 101 Reykjavík.
Næstu sýningar eru:
mars kl. 20.00
mars kl. 20.00
mars kl. 20.00
mars kl. 20.00
mars kl. 13.00 dagsýning
mars kl. 20.00
mars kl. 20.00
mars kl. 13.00 dagsýning
5. apríl: Lokasýning. kl. 20.00
SREKK: