Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Blaðsíða 31
Allt fyrir börnin 8. mars 2019 KYNNINGARBLAÐ Hæfileikaríkir kórstjórar BARNAKÓR VÍDALÍNSKIRKJU: Barnakórinn í Vídalínskirkju í Garðabæ á sér nokkurra ára sögu. Einn af fyrstu kórstjór- unum var Heiðar Örn Kristjánsson leikskólakennari sem líka er þekktur sem blái pollapönkarinn, en hann var æskulýðsfulltrúi kirkjunnar í tvö ár. Fyrir þremur árum tóku hjónin Jó- hanna Guðrún Jónsdóttir söngkona og Davíð Sigurgeirsson gítarleikari við stjórnartaumunum. „Í dag eru 30 stelpur á aldrinum 7–12 ára í kórnum og mikið fjör. Þau hjónin stjórna einnig ungmennakór fyrir 16 ára og eldri við kirkjuna sem og gospelkór Jóns Vídalíns,“ segir Jóna Hrönn Bolladótt- ir, sóknarprestur í Vídalínskirkju. Krefst ögunar og samhæfingar að syngja í kór „Það felst mikil ögun og samhæfing í því að syngja í kór. Það er líka ótrúlegt hvað þau hjónin eru flink að halda utan um hópinn,“ segir Jóna sem kemur stundum inn í æfingastarfið og segir krökkunum sögur. Barna- kórinn æfir alla þriðjudaga kl. 16 og kórinn kemur fram í fjölskylduguð- þjónustu fyrsta sunnudag í mánuði allan veturinn. Vídalínskirkja fjárfesti í 30 hljóðnemum sem börnin og unga fólkið í tónlistarstarfinu læra einnig að nota. Það má líka geta þess að barnakórinn hefur sungið á aðvent- unni í IKEA og líka í Stundinni okkar fyrir jólin. „Þannig læra kórfélagar ekki bara að syngja, heldur fá þeir æfingu í að koma fram og syngja, oft fyrir framan 150–200 manns sem er sá fjöldi sem iðulega sækir fjölskylduguðsþjónustur.“ Pítsupartí einu sinni í mánuði Jóhanna Guðrún og Davíð hrista hópinn reglulega saman með leikjum og svo er alltaf pítsupartí einu sinni í mánuði. Á hverju sumri eru þau hjónin ásamt Jónu Hrönn og starfs- fólki Vídalínskirkju með vikulangt tónlistarnámskeið um leið og skólinn klárast. „Það er gríðarlega skemmti- legt, kórfélagar mæta kl. 9.00 á morgnana og eru til kl. 13.00. Það er sungið og dansað, farið í leiki, borðaður góður matur og hlustað á biblíusögu í upphafi dags. Síðastliðið sumar tókst að gera fimm myndbönd á námskeiðinu sem Davíð hefur verið að vinna jafnt og þétt í vetur og búið að frumsýna þrjú. Þetta var alveg gríðarlega skemmtilegt og gaman að geta miðlað svona mikilli gleði úr kirkjustarfinu. Svo verður námskeið í sumar frá 11.–14. júní sem við erum mjög spennt fyrir.“ Myndböndin úr námskeiðinu má sjá í kynningunni á dv.is. „Kórfélagar syngja allajafna alls konar lög, dægurlög, sálma, gospel og söngleikjalög enda eru kór- stjórarnir vakandi fyrir því að kynna fyrir börnunum margs konar tónlist og hafa mikinn fjölbreytileika.“ Kórfélagarnir blómstra „Það er alveg gríðarlega mikilvægt fyrir kirkjuna að hafa svona flott fólk við stjórnvölinn eins og Jóhönnu Guðrúnu og Davíð og magnað að sjá starfið vaxa og kórfélagana að blómstra. Þau hjálpa krökkunum að opna sig og sjálfsmyndin þeirra styrkist enda eru kórstjórarnir frá- bærar fyrirmyndir,“ segir Jóna Hrönn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.