Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Side 31
Allt fyrir börnin 8. mars 2019 KYNNINGARBLAÐ
Hæfileikaríkir kórstjórar
BARNAKÓR VÍDALÍNSKIRKJU:
Barnakórinn í Vídalínskirkju í Garðabæ á sér nokkurra ára sögu. Einn af fyrstu kórstjór-
unum var Heiðar Örn Kristjánsson
leikskólakennari sem líka er þekktur
sem blái pollapönkarinn, en hann var
æskulýðsfulltrúi kirkjunnar í tvö ár.
Fyrir þremur árum tóku hjónin Jó-
hanna Guðrún Jónsdóttir söngkona
og Davíð Sigurgeirsson gítarleikari
við stjórnartaumunum. „Í dag eru 30
stelpur á aldrinum 7–12 ára í kórnum
og mikið fjör. Þau hjónin stjórna einnig
ungmennakór fyrir 16 ára og eldri
við kirkjuna sem og gospelkór Jóns
Vídalíns,“ segir Jóna Hrönn Bolladótt-
ir, sóknarprestur í Vídalínskirkju.
Krefst ögunar og samhæfingar að
syngja í kór
„Það felst mikil ögun og samhæfing í
því að syngja í kór. Það er líka ótrúlegt
hvað þau hjónin eru flink að halda
utan um hópinn,“ segir Jóna sem
kemur stundum inn í æfingastarfið
og segir krökkunum sögur. Barna-
kórinn æfir alla þriðjudaga kl. 16 og
kórinn kemur fram í fjölskylduguð-
þjónustu fyrsta sunnudag í mánuði
allan veturinn. Vídalínskirkja fjárfesti í
30 hljóðnemum sem börnin og unga
fólkið í tónlistarstarfinu læra einnig
að nota. Það má líka geta þess að
barnakórinn hefur sungið á aðvent-
unni í IKEA og líka í Stundinni okkar
fyrir jólin. „Þannig læra kórfélagar
ekki bara að syngja, heldur fá þeir
æfingu í að koma fram og syngja,
oft fyrir framan 150–200 manns
sem er sá fjöldi sem iðulega sækir
fjölskylduguðsþjónustur.“
Pítsupartí einu sinni í mánuði
Jóhanna Guðrún og Davíð hrista
hópinn reglulega saman með leikjum
og svo er alltaf pítsupartí einu sinni
í mánuði. Á hverju sumri eru þau
hjónin ásamt Jónu Hrönn og starfs-
fólki Vídalínskirkju með vikulangt
tónlistarnámskeið um leið og skólinn
klárast. „Það er gríðarlega skemmti-
legt, kórfélagar mæta kl. 9.00 á
morgnana og eru til kl. 13.00. Það
er sungið og dansað, farið í leiki,
borðaður góður matur og hlustað á
biblíusögu í upphafi dags. Síðastliðið
sumar tókst að gera fimm myndbönd
á námskeiðinu sem Davíð hefur verið
að vinna jafnt og þétt í vetur og búið
að frumsýna þrjú. Þetta var alveg
gríðarlega skemmtilegt og gaman
að geta miðlað svona mikilli gleði úr
kirkjustarfinu. Svo verður námskeið
í sumar frá 11.–14. júní sem við erum
mjög spennt fyrir.“ Myndböndin úr
námskeiðinu má sjá í kynningunni á
dv.is.
„Kórfélagar syngja allajafna alls
konar lög, dægurlög, sálma, gospel
og söngleikjalög enda eru kór-
stjórarnir vakandi fyrir því að kynna
fyrir börnunum margs konar tónlist
og hafa mikinn fjölbreytileika.“
Kórfélagarnir blómstra
„Það er alveg gríðarlega mikilvægt
fyrir kirkjuna að hafa svona flott fólk
við stjórnvölinn eins og Jóhönnu
Guðrúnu og Davíð og magnað að
sjá starfið vaxa og kórfélagana að
blómstra. Þau hjálpa krökkunum
að opna sig og sjálfsmyndin þeirra
styrkist enda eru kórstjórarnir frá-
bærar fyrirmyndir,“ segir Jóna Hrönn.