Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Page 15
KYNNING Reynsla og þekking er besta auglýsingin Fyrirtækið Þak.is var stofnað 2008 og í dag starfa fjórir iðnaðarmenn með gífurlega reynslu hjá fyrirtækinu. „Við þjónustum einstaklinga, húsfélög sem og stærri eða minni fyrirtæki um land allt,“ segir Ólafur Ragnar Ólafsson, eigandi Þak.is. „Þak.is býður upp á alla þá þjónustu sem viðkemur húsaviðhaldi innan- sem ut- andyra. Þá tökum við að okkur breytingar á heilum íbúðum innandyra og leggjum t.d. parket, endurnýjum eldhús eða bað- herbergi, sjáum um flísalögn, málun, uppsetningar eða niðurrif á veggjum og fleira. Utandyra erum við í endur- nýjun eða viðgerðum og sjáum t.d. um þakskipti, endurnýjun þakrenna, bárujárnsklæðningar og aðrar veggklæðningar. Einnig erum við í þakmálun, setjum upp og gerum við þakkanta, fram- kvæmum gluggaskipti, setjum upp blikk flassningar, erum í pallasmíði og margt, margt fleira.“ Er þakið þitt í lagi? Það er alltaf mikilvægt fylgjast með þakinu; hvort það sé kom- inn tími á að skipta um það eða lengja endingartíma þaksins með þakmálun. Þak.is býður upp á mat á því og öllu öðru, viðskipta- vinum sínum að kostnaðarlausu. „Í þakklæðningar notum við mikið til bárujárn úr alusinki eða stallað ál, eftir því hvað kúnninn vill. Þessi efni hafa sýnt og sann- að hvað þau eru endingargóð og duga vel í íslenskri veðráttu og það er þess vegna sem við notum þau. Við lendum því miður oft í því að endurvinna verk eftir verk- taka sem hafa ekki þekkingu og skila frá sér verkum hálfkláruðum eða í verra ástandi en áður en þeir tóku við því. Þetta er sorgleg staðreynd, en sýnir bara að það borgar sig að skipta við aðila sem kunna til verka,“ segir Ólafur. Nánari upplýsingar má nálgast á facebooksíðunni þak.is. Heimasíðan thak.is er lokuð vegna breytinga. Hafðu samband í síma 699-6980. Netpóstur: thak@thak.is ÞAK.IS:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.