Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Blaðsíða 10
10 PRESSAN 8. mars 2019 Á Ítalíu leikur leiðtogi Lega sér með tilvitnanir í Mussolini og á Spáni sækir hinn ungi flokkur Vox í sig veðrið og stefnir hraðbyri að sæti á þingi í næstu kosningum en þær verða í lok apríl. Vox, sem er ung- ur og mjög hægrisinnaður flokkur, leikur sama leik og Lega á Ítalíu nema hvað á Spáni er það ein- ræðisherrann Franco sem flokk- urinn spilar inn á í áróðri sínum. Bæði löndin eru ung lýðræðis- ríki til þess að gera. Ítalía varð ekki lýðræðisríki fyrr en eftir fall fasismans á fimmta áratugnum og Spánn ekki fyrr en Franco lést á áttunda áratugnum. Bæði þessi ungu lýðveldi eru samofin Evrópusambandinu og það hefur gegnt mikilvægu hlutverki í þróun lýðræðis í báðum löndum. Áhugi Lega og Vox á einræðisherrunum fyrrverandi og boðskap þeirra vekur nú áhyggjur innan ESB og óttast sumir afleiðingarnar. Þá hefur Partido Popular, íhaldsflokkur sem varð flokkur falangista eftir andlát Franco, færst lengra inn á þjóðernissinn- aða bylgju. Ef flokkurinn og Vox fá góða kosningu í apríl verður hægt að tala um hægri sveiflu eins og á Ítalíu þar sem Lega og Fimmstjörnuhreyfingin eru við völd. Allt eru þetta flokkar sem eru vægast sagt fullir efasemda um ágæti aðildar að Evrópusam- bandinu. Á göngum Evrópusam- bandsins er nú farið að hvísla um hvað gerist ef efasemdir um ágæti ESB breiðast líka út á Spáni. Landið er fjórða stærsta hag- kerfi sambandsins og fékk marga hjálparpakka frá því til að komast í gegnum fjármálakreppuna. Grundvallarbreyting Fram að þessu hefur verið haft á orði að Spánn myndi aldrei setja fram gagnrýni á ESB. Landið gekk í sambandið 1986 og hefur aðildin verið talin einn af hornsteinum lýðræðisþróunar í landinu og hafa átt stóran þátt í að festa lýðræðið í sessi. Það hefur komið stjórn- málaskýrendum á óvart hversu hratt Vox hefur vaxið ásmegin. Hingað til hefur lítið sem ekkert farið fyrir þjóðernissinnuðum íhaldsflokkum á Spáni, flokkum sem eru fullir efasemda um ágæti ESB, en slíkir flokkar hafa verið áberandi í mörgum öðrum Evrópuríkjum á undanförnum árum. En nú virðist sem svipuð þróun sé að eiga sér stað á Spáni og fái flokk eða flokka sem líkjast til dæmis Svíþjóðardemókrötun- um eða AfD í Þýskalandi en báðir eru fullir efasemda um ágæti ESB og andsnúnir innflytjendum. En Vox sker sig þó aðeins frá þessum flokkum að því leyti að flokkurinn sækir stóran hluta af fylgi sínu til efnaðs fólks og vel menntaðs. Í stefnu Vox segir meðal annars að Spánn eigi að styrkja stöðu sína í Evrópu og ná fyrri styrk í heiminum. Flokkurinn vill nýjan ESB-sáttmála sem gefi þjóð- ríkjunum meiri völd, að landa- mæri þeirra verði virt sem og fullveldi þjóðríkjanna. Allt þetta hefur haft þau áhrif að Ciudadanos, sem gef- ur sig út fyrir að vera frjálslynd- ur flokkur sem styður ESB, hef- ur nú fært sig lengra til hægri og segist ekki styðja að sósíalísk ríkisstjórn taki við völdum að kosningum loknum. Flokk- urinn heitir því að hafna ríkis- stjórn undir forystu PSOE. Þá hafa sífellt fleiri látið óánægju sína í ljós með ákvörðun núverandi ríkis- stjórnar, sem er undir for- ystu sósíalista, um að flytja jarðneskar leifar Franco frá Dal hinna föllnu nærri Madrid á minna áberandi stað. Sumir stjórnmálaskýrend- ur telja sig sjá hættumerki á lofti á Spáni og telja að tveggja flokka kerfi landsins standi nú frammi fyrir mikilli áskorun. Ein af ástæðunum fyrir aukn- um stuðningi við Vox er sjálf- stæðisbaráttan í Katalóníu. Hún hefur orðið til þess að margir Spánverjar hafa fylkt sér bak við spænska fánann og vilja styrkja þjóðríkið. Sjálfstæð Norður-Ítalía Þegar kosið var til þings á Ítalíu fyr- ir ári blakti fáni sjálfstæðrar Katalóníu við hún á höfuð stöðvum Lega í Varese á Norður-Ítalíu. Lega var stofnaður á grunni þeirrar hugmyndar að hin ríka Norður-Ítalía eigi að segja skilið við restina af Ítalíu og þar með stjórnvöld í Róm. En af einhverjum ástæðum gufaði þessi stefna upp í kosningabaráttunni. Matteo Salvini, leiðtogi flokksins, er nú varaforsætisráðherra Ítalíu. Hann bauð sig fram í suðurhluta landsins og gerði út á efasemdir um ágæti ESB og andúð á innflytj- endum í kosningabaráttu sinni. Lega fékk um 17 prósent atkvæða en hefur aukið fylgi sitt síðan mið- að við skoðanakannanir og er nú stærsti flokkur Ítalíu. Salvini hefur leikið sér með orð Mussolini og vitnar stund- um í hann. Hann fer einnig sömu leið og margir aðrir popúlista- flokkar og spilar inn á andstöðu fólks við Evrópusambandið og innflytjendur og hið hefðbundna pólitíska kerfi. n Spila inn á Mussolini og Franco n Hægriflokkarnir sækja í sig veðrið í ungum lýðræðisríkjum í Suður-Evrópu Franco og Mussolini Fasistaleiðtogar í Suður Evrópu. Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is Santiago Abascal Leiðtogi Vox á Spáni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.