Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Blaðsíða 10
10 PRESSAN 8. mars 2019
Á
Ítalíu leikur leiðtogi
Lega sér með tilvitnanir í
Mussolini og á Spáni sækir
hinn ungi flokkur Vox í sig
veðrið og stefnir hraðbyri að sæti
á þingi í næstu kosningum en þær
verða í lok apríl. Vox, sem er ung-
ur og mjög hægrisinnaður flokkur,
leikur sama leik og Lega á Ítalíu
nema hvað á Spáni er það ein-
ræðisherrann Franco sem flokk-
urinn spilar inn á í áróðri sínum.
Bæði löndin eru ung lýðræðis-
ríki til þess að gera. Ítalía varð
ekki lýðræðisríki fyrr en eftir fall
fasismans á fimmta áratugnum
og Spánn ekki fyrr en Franco
lést á áttunda áratugnum. Bæði
þessi ungu lýðveldi eru samofin
Evrópusambandinu og það hefur
gegnt mikilvægu hlutverki í þróun
lýðræðis í báðum löndum. Áhugi
Lega og Vox á einræðisherrunum
fyrrverandi og boðskap þeirra
vekur nú áhyggjur innan ESB og
óttast sumir afleiðingarnar.
Þá hefur Partido Popular,
íhaldsflokkur sem varð flokkur
falangista eftir andlát Franco,
færst lengra inn á þjóðernissinn-
aða bylgju. Ef flokkurinn og Vox
fá góða kosningu í apríl verður
hægt að tala um hægri sveiflu
eins og á Ítalíu þar sem Lega og
Fimmstjörnuhreyfingin eru við
völd. Allt eru þetta flokkar sem
eru vægast sagt fullir efasemda
um ágæti aðildar að Evrópusam-
bandinu. Á göngum Evrópusam-
bandsins er nú farið að hvísla
um hvað gerist ef efasemdir um
ágæti ESB breiðast líka út á Spáni.
Landið er fjórða stærsta hag-
kerfi sambandsins og fékk marga
hjálparpakka frá því til að komast
í gegnum fjármálakreppuna.
Grundvallarbreyting
Fram að þessu hefur verið haft á
orði að Spánn myndi aldrei setja
fram gagnrýni á ESB. Landið gekk
í sambandið 1986 og hefur aðildin
verið talin einn af hornsteinum
lýðræðisþróunar í landinu og hafa
átt stóran þátt í að festa lýðræðið
í sessi. Það hefur komið stjórn-
málaskýrendum á óvart hversu
hratt Vox hefur vaxið ásmegin.
Hingað til hefur lítið sem ekkert
farið fyrir þjóðernissinnuðum
íhaldsflokkum á Spáni, flokkum
sem eru fullir efasemda um
ágæti ESB, en slíkir flokkar hafa
verið áberandi í mörgum öðrum
Evrópuríkjum á undanförnum
árum. En nú virðist sem svipuð
þróun sé að eiga sér stað á Spáni
og fái flokk eða flokka sem líkjast
til dæmis Svíþjóðardemókrötun-
um eða AfD í Þýskalandi en báðir
eru fullir efasemda um ágæti ESB
og andsnúnir innflytjendum. En
Vox sker sig þó aðeins frá þessum
flokkum að því leyti að flokkurinn
sækir stóran hluta af fylgi sínu til
efnaðs fólks og vel menntaðs.
Í stefnu Vox segir meðal annars
að Spánn eigi að styrkja stöðu
sína í Evrópu og ná fyrri styrk í
heiminum. Flokkurinn vill nýjan
ESB-sáttmála sem gefi þjóð-
ríkjunum meiri völd, að landa-
mæri þeirra verði virt sem og
fullveldi þjóðríkjanna.
Allt þetta hefur haft þau
áhrif að Ciudadanos, sem gef-
ur sig út fyrir að vera frjálslynd-
ur flokkur sem styður ESB, hef-
ur nú fært sig lengra til hægri
og segist ekki styðja að sósíalísk
ríkisstjórn taki við völdum að
kosningum loknum. Flokk-
urinn heitir því að hafna ríkis-
stjórn undir forystu PSOE.
Þá hafa sífellt fleiri látið
óánægju sína í ljós með
ákvörðun núverandi ríkis-
stjórnar, sem er undir for-
ystu sósíalista, um að flytja
jarðneskar leifar Franco frá Dal
hinna föllnu nærri Madrid á
minna áberandi stað.
Sumir stjórnmálaskýrend-
ur telja sig sjá hættumerki á
lofti á Spáni og telja að tveggja
flokka kerfi landsins standi nú
frammi fyrir mikilli áskorun.
Ein af ástæðunum fyrir aukn-
um stuðningi við Vox er sjálf-
stæðisbaráttan í Katalóníu.
Hún hefur orðið til þess að
margir Spánverjar hafa fylkt
sér bak við spænska fánann og
vilja styrkja þjóðríkið.
Sjálfstæð
Norður-Ítalía
Þegar kosið var til
þings á Ítalíu fyr-
ir ári blakti fáni
sjálfstæðrar Katalóníu við hún
á höfuð stöðvum Lega í Varese á
Norður-Ítalíu. Lega var stofnaður
á grunni þeirrar hugmyndar að
hin ríka Norður-Ítalía eigi að
segja skilið við restina af Ítalíu og
þar með stjórnvöld í Róm. En af
einhverjum ástæðum gufaði þessi
stefna upp í kosningabaráttunni.
Matteo Salvini, leiðtogi flokksins,
er nú varaforsætisráðherra Ítalíu.
Hann bauð sig fram í suðurhluta
landsins og gerði út á efasemdir
um ágæti ESB og andúð á innflytj-
endum í kosningabaráttu sinni.
Lega fékk um 17 prósent atkvæða
en hefur aukið fylgi sitt síðan mið-
að við skoðanakannanir og er nú
stærsti flokkur Ítalíu.
Salvini hefur leikið sér með
orð Mussolini og vitnar stund-
um í hann. Hann fer einnig sömu
leið og margir aðrir popúlista-
flokkar og spilar inn á andstöðu
fólks við Evrópusambandið og
innflytjendur og hið hefðbundna
pólitíska kerfi. n
Spila inn á
Mussolini og Franco
n Hægriflokkarnir sækja í sig veðrið í ungum lýðræðisríkjum í Suður-Evrópu
Franco og
Mussolini
Fasistaleiðtogar
í Suður Evrópu.
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
Santiago Abascal Leiðtogi Vox á Spáni.