Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Blaðsíða 38
Allt fyrir börnin 8. mars 2019KYNNINGARBLAÐ Listviðburðir fyrir öll börn á Íslandi LIST FYRIR ALLA: List fyrir alla er metnaðarfullt verkefni á vegum mennta- og menningarmála ráðuneytisins. Markmiðið er að velja og miðla list- viðburðum af margbreytilegu tagi til barna og ungmenna um land allt. „Við viljum jafna aðgengi barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag. Við leggjum ríka áherslu á að velja sérstaklega vel þegar kemur að viðburðum og lista- mönnum,“ segir Elfa Lilja Gísladóttir, tónlistarkennari og forsvarsmaður verkefnisins. Fjölbreytt list fyrir fjölbreytta krakka „Áhersla er lögð á að list viðburðirnir séu eins fjölbreyttir og kostur er og að þeir eigi sér stað á skólatíma. Annars vegar sendum við tilbúin verk í grunnskólana eða menningar- stofnanir í bæjarfélaginu. Þá mæta börnin og upplifa listviðburð s.s. leikrit, hlusta á tónlist eða sjá dans- sýningu. Hins vegar erum við með listviðburði þar sem listamenn ferðast á milli grunnskólanna og virkja börnin í listsköpun hluta úr skóladegi eða í heilan dag. Einnig erum við með verkefni eins og Listalestina í sam- starfi við Listkennsludeild Listahá- skóla Íslands þar sem samþætting listgreina ræður ríkjum. Unnið er með listamönnum í tvo heila kennsludaga og í lokin er sett upp sýning á verkum krakkanna. Þá fáum við listamann sem sýningarstjóra. Krakkarnir mæta með aðstandendum og upplifa eigin verk oft í listasöfnum bæjarfélagsins.“ „Við höfum náð að koma við í öllum grunnskólum á landsbyggðinni annað árið í röð með sérlega fjölbreytta listviðburði. Stundum náum við bara nokkrum árgöngum í hverjum grunnskóla fyrir sig. Þá pössum við að árið eftir verði eitthvað í boði fyrir hina árgangana, svo öll börnin í skólanum fái að kynnast fjölbreytt- um listviðburðum á okkar vegum á tíu ára grunnskólagöngu sinni. Við leggjum áherslu á að koma við í öllum grunnskólunum utan Reykjavíkur þar sem börnin í höfuðborginni hafa óneitanlega fleiri tækifæri til þess að kynnast fjölbreyttri list.“ FUBAR „Ég vissi ekki að dansverk gæti verið svona skemmtileg“ Sigríður Soffía Níelsdóttir, dans- höfundur og dansari, fór af stað í vetur með dansverkið FUBAR og uppskar tæra hrifningu áhorfenda víðast hvar um landið. „FUBAR er óvenjulegt dans- leikhúsverk þar sem ég segi fyrst sögur í um hálftíma. Þetta eru valdar tragíkómískar sögur úr lífi mínu sem 30 ára kona sem hefur dans að lifibrauði. Svo byrjar dansinn sem stendur yfir í um 40 mínútur. Allar sögurnar tengjast einni aðalsögu sem vindur úr í lok verksins. Ég fékk Jónas Sen til liðs við mig til þess að semja og spila tónlistina, auk þess sem hann dansar í sýningunni. Við fórum á Vestfirði, Austfirði, norður í land og svo til Vestmannaeyja. Mig hefur lengi langað til að sýna á landsbyggðinni því ég hafði aldrei fengið tækifæri til þess, þó svo ég hafi margoft sýnt úti á landi í útlöndum. Það er mikilvægt að auka aðgang að listviðburðum á landsbyggðinni og ég sá mikilvægi þess þegar ég sýndi FUBAR í vetur. Margir krakkar komu til mín eftirá og sögðu að þeir hefðu aldrei getað ímyndað sér að dansverk gæti verið svona skemmtilegt. Þau höfðu mörg mjög fyrirframmótaðar hugmyndir um hvað dansverk væri og FUBAR var eitthvað allt annað. Til að fólk geti lært að meta menningu þá þarf það að hafa aðgang að henni og það er einmitt það sem List fyrir alla gerir. Upphaf- lega var verkið ekki samið fyrir börn en það var samt ótrúlega áhuga- vert að sýna það krökkum á grunn- skólaaldri. Þau tengdu til dæmis við allt aðrar sögur en fullorðnir áhorfendur,“ segir Sigríður. Skemmtileg og fjölbreytt verkefni úti um allt land „Í vetur er List fyrir alla í samstarfi við 21 listverkefni sem dreifist jafnt yfir skólaárið. Nánar má finna umfjöllum um hvern viðburð á heimasíðunni listfyriralla.is. Í janúar og febrúar voru verkefnin Mannfræði fyrir krakka á Norðurlandi og FUBAR var með danssmiðju og sýndi í Vestmanna- eyjum. Á vormánuðum ferðast sex ólík verkefni víðs vegar um landið og gleðja nemendur á ólíkum aldri. Við erum sérstaklega stolt að segja frá því að leiksýningin Fyrirlestur um eitthvað fallegt verður sýnd fyrir alla krakka í 8., 9. og 10. bekk í mars. Þetta eru 1.178 börn úr 19 grunn- skólum á Norðurlandi sem sjá þessa frábæru sýningu. Einnig förum við um Reykjanes- ið, Hafnarfjörð og Garðabæ með Djáknann á Myrká í mars. Tónskáldið Hugi Guðmundsson samdi splunku- nýja tónlist við þjóðsöguna sem er flutt af framúrskarandi listafólki ásamt sögumanni sem leikles hina víðfrægu draugasögu. Listalestin sem fjallað var um hér framar fer af stað á Akranes í maí. Einnig verður Sögur af nautum sýnt á Suðurlandi í mars og apríl. Sýningin er fyrir yngstu krakkana á vegum leik- hópsins Miðnætti. Í Salnum Kópavogi og Hörpu í apríl verða tónleikarnir The Fluteman Show fyrir 4.–7. bekk. Tónleikarnir eru með gamansömu ívafi, samdir og fluttir af Ungverjanum Gabor Vosteen sem býr og starfar í Berlín og getur spilað á 5 blokkflautur samtímis. Að lokum má nefna Gull og grjót á skólalóðinni, stórskemmtilegt hönnunarverkefni í maí á Austurlandi þar sem krakkar í 1.–10. bekk kynnast hönnun og arkitektúr á eigin skinni,“ segir Elfa. „Í augnablikinu auglýsum við eftir listviðburðum fyrir næsta skóla- ár 2019–2020 frá listamönnum hvaðanæva af landinu. Listvið- burðirnir geta verið afar margvíslegir enda eru listir alls konar. Við auglýsum eftir viðburðum á sviði leiklistar og dans, tónlistar, mynd- listar, kvikmyndagerðar, bókmennta, hönnunar og fleira.“ Nánari upplýsingar á listfyriralla.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.