Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Side 38
Allt fyrir börnin 8. mars 2019KYNNINGARBLAÐ
Listviðburðir fyrir öll börn á Íslandi
LIST FYRIR ALLA:
List fyrir alla er metnaðarfullt verkefni á vegum mennta- og menningarmála ráðuneytisins.
Markmiðið er að velja og miðla list-
viðburðum af margbreytilegu tagi
til barna og ungmenna um land
allt. „Við viljum jafna aðgengi barna
á grunnskólaaldri að fjölbreyttum
og vönduðum listviðburðum óháð
búsetu og efnahag. Við leggjum ríka
áherslu á að velja sérstaklega vel
þegar kemur að viðburðum og lista-
mönnum,“ segir Elfa Lilja Gísladóttir,
tónlistarkennari og forsvarsmaður
verkefnisins.
Fjölbreytt list fyrir fjölbreytta
krakka
„Áhersla er lögð á að list viðburðirnir
séu eins fjölbreyttir og kostur er og
að þeir eigi sér stað á skólatíma.
Annars vegar sendum við tilbúin
verk í grunnskólana eða menningar-
stofnanir í bæjarfélaginu. Þá mæta
börnin og upplifa listviðburð s.s.
leikrit, hlusta á tónlist eða sjá dans-
sýningu. Hins vegar erum við með
listviðburði þar sem listamenn ferðast
á milli grunnskólanna og virkja börnin
í listsköpun hluta úr skóladegi eða
í heilan dag. Einnig erum við með
verkefni eins og Listalestina í sam-
starfi við Listkennsludeild Listahá-
skóla Íslands þar sem samþætting
listgreina ræður ríkjum. Unnið er með
listamönnum í tvo heila kennsludaga
og í lokin er sett upp sýning á verkum
krakkanna. Þá fáum við listamann
sem sýningarstjóra. Krakkarnir mæta
með aðstandendum og upplifa eigin
verk oft í listasöfnum bæjarfélagsins.“
„Við höfum náð að koma við í öllum
grunnskólum á landsbyggðinni annað
árið í röð með sérlega fjölbreytta
listviðburði. Stundum náum við
bara nokkrum árgöngum í hverjum
grunnskóla fyrir sig. Þá pössum við
að árið eftir verði eitthvað í boði
fyrir hina árgangana, svo öll börnin
í skólanum fái að kynnast fjölbreytt-
um listviðburðum á okkar vegum á
tíu ára grunnskólagöngu sinni. Við
leggjum áherslu á að koma við í öllum
grunnskólunum utan Reykjavíkur
þar sem börnin í höfuðborginni hafa
óneitanlega fleiri tækifæri til þess að
kynnast fjölbreyttri list.“
FUBAR „Ég vissi ekki að dansverk
gæti verið svona skemmtileg“
Sigríður Soffía Níelsdóttir, dans-
höfundur og dansari, fór af stað í
vetur með dansverkið FUBAR og
uppskar tæra hrifningu áhorfenda
víðast hvar um landið.
„FUBAR er óvenjulegt dans-
leikhúsverk þar sem ég segi fyrst
sögur í um hálftíma. Þetta eru valdar
tragíkómískar sögur úr lífi mínu sem
30 ára kona sem hefur dans að
lifibrauði. Svo byrjar dansinn sem
stendur yfir í um 40 mínútur. Allar
sögurnar tengjast einni aðalsögu sem
vindur úr í lok verksins. Ég fékk Jónas
Sen til liðs við mig til þess að semja
og spila tónlistina, auk þess sem
hann dansar í sýningunni. Við fórum
á Vestfirði, Austfirði, norður í land og
svo til Vestmannaeyja.
Mig hefur lengi langað til að sýna
á landsbyggðinni því ég hafði aldrei
fengið tækifæri til þess, þó svo ég hafi
margoft sýnt úti á landi í útlöndum.
Það er mikilvægt að auka aðgang að
listviðburðum á landsbyggðinni og
ég sá mikilvægi þess þegar ég sýndi
FUBAR í vetur. Margir krakkar komu
til mín eftirá og sögðu að þeir hefðu
aldrei getað ímyndað sér að dansverk
gæti verið svona skemmtilegt. Þau
höfðu mörg mjög fyrirframmótaðar
hugmyndir um hvað dansverk væri og
FUBAR var eitthvað allt annað.
Til að fólk geti lært að meta
menningu þá þarf það að hafa
aðgang að henni og það er einmitt
það sem List fyrir alla gerir. Upphaf-
lega var verkið ekki samið fyrir börn
en það var samt ótrúlega áhuga-
vert að sýna það krökkum á grunn-
skólaaldri. Þau tengdu til dæmis
við allt aðrar sögur en fullorðnir
áhorfendur,“ segir Sigríður.
Skemmtileg og fjölbreytt verkefni
úti um allt land
„Í vetur er List fyrir alla í samstarfi við
21 listverkefni sem dreifist jafnt yfir
skólaárið. Nánar má finna umfjöllum
um hvern viðburð á heimasíðunni
listfyriralla.is. Í janúar og febrúar voru
verkefnin Mannfræði fyrir krakka
á Norðurlandi og FUBAR var með
danssmiðju og sýndi í Vestmanna-
eyjum. Á vormánuðum ferðast sex
ólík verkefni víðs vegar um landið
og gleðja nemendur á ólíkum aldri.
Við erum sérstaklega stolt að segja
frá því að leiksýningin Fyrirlestur um
eitthvað fallegt verður sýnd fyrir alla
krakka í 8., 9. og 10. bekk í mars.
Þetta eru 1.178 börn úr 19 grunn-
skólum á Norðurlandi sem sjá þessa
frábæru sýningu.
Einnig förum við um Reykjanes-
ið, Hafnarfjörð og Garðabæ með
Djáknann á Myrká í mars. Tónskáldið
Hugi Guðmundsson samdi splunku-
nýja tónlist við þjóðsöguna sem er
flutt af framúrskarandi listafólki
ásamt sögumanni sem leikles hina
víðfrægu draugasögu.
Listalestin sem fjallað var um hér
framar fer af stað á Akranes í maí.
Einnig verður Sögur af nautum sýnt
á Suðurlandi í mars og apríl. Sýningin
er fyrir yngstu krakkana á vegum leik-
hópsins Miðnætti.
Í Salnum Kópavogi og Hörpu í
apríl verða tónleikarnir The Fluteman
Show fyrir 4.–7. bekk. Tónleikarnir eru
með gamansömu ívafi, samdir og
fluttir af Ungverjanum Gabor Vosteen
sem býr og starfar í Berlín og getur
spilað á 5 blokkflautur samtímis.
Að lokum má nefna Gull og grjót
á skólalóðinni, stórskemmtilegt
hönnunarverkefni í maí á Austurlandi
þar sem krakkar í 1.–10. bekk kynnast
hönnun og arkitektúr á eigin skinni,“
segir Elfa.
„Í augnablikinu auglýsum við eftir
listviðburðum fyrir næsta skóla-
ár 2019–2020 frá listamönnum
hvaðanæva af landinu. Listvið-
burðirnir geta verið afar margvíslegir
enda eru listir alls konar. Við
auglýsum eftir viðburðum á sviði
leiklistar og dans, tónlistar, mynd-
listar, kvikmyndagerðar, bókmennta,
hönnunar og fleira.“
Nánari upplýsingar á listfyriralla.is