Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Blaðsíða 40
Allt fyrir börnin 8. mars 2019KYNNINGARBLAÐ JÓGASETRIÐ: Jóga er betra en grjónagrautur! Jóga er fyrir alla því þar lærum við fyrst og fremst að stjórna önduninni okkar, sem hjálpar okkur að hægja á huganum og finna kyrrðina, en það þurfum við öll að gera. Það er mikilvægt að við nærum og sinnum okkar innra lífi eins og því ytra,“ segir Auður Bjarnadóttir, eigandi Jógasetursins. Tilurðina segir hún hafa komið til vegna stóraukins áhuga á jóga. „Þetta byrjaði með meðgöngujóga og löngum biðlist­ um og svo vatt þetta upp á sig. Nú er setrið orðið mjög fjölbreytt til að þjóna öllum aldurshópum,“ segir Auður. Magnað meðgöngujóga „Ég kynntist meðgöngujóga þegar ég var barnshafandi í Seattle. Mér fannst tæknin hjálpa mér mjög mikið þegar kom að því að fæða því jóga kennir manni svo margt sem er gagnlegt í fæðingunni. Meðgöngu­ jóga er valdeflandi fyrir konur og kennir þeim að finna sinn innri styrk í fæðingunni og hafa tækni til þess að halda ró og einbeitingu. Það kennir þeim að vera ekki hræddar með hugann á sveimi, heldur læra þær að treysta líkamanum og detta inn í þann dans og ferðalag sem fæðingin er. Líkaminn verður næmari og veit þá hvað hann á að gera.“ Mömmujóga „Meðgöngujógað þróaðist yfir í mömmujóga þar sem mæður stunda saman jóga með börnunum. Það er ótrúlega gott fyrir nýbakaðar mæður að koma saman og stunda róandi og styrkjandi jóga fyrir sig og börnin. Þær ræða líka allt sem viðkemur barneignum svo sem bleyjuskipti, svefn, brjóstagjöf og þess háttar og fá mikla útrás. Svo fara þær sem vilja líka út að borða saman einu sinni í viku eftir tímann.“ Krakkajóga: betra en grjóna- grautur „Ég var með krakkajóga í Stund­ inni okkar fyrir um tuttugu árum og fann fyrir miklum áhuga á að halda áfram. Krakkajóga er nátengt leikjum og gleði og læra börnin ýmsar jóga stöður sem styrkja jafnvægi, einbeitingu og samhæfingu. Börnin elska jógað og eru snögg að tileinka sér tæknina. Eitt barn sagði við mig eftir tíma eitt sinn: „Það er betra að vera í jóga en að borða grjónagraut.“ Við erum með krakka­ jóga fyrir börn á aldrinum 3–4 ára. Þá koma þau með foreldrunum. Svo eru tímar fyrir 5–7 ára, 8–11 ára og svo er unglingajóga fyrir 12–14 ára.“ Auður heldur utan um ýmiss konar kennaranám í jóga á vegum Jóga­ setursins sem hefur reynst vel, því mikið samfélag hefur myndast í kringum Jógasetrið í gegnum árin. „Þetta er fallegt samfélag og það er gaman að fylgjast með vinskapnum og kærleiknum sem hefur þróast. Núna þessa helgi erum við til dæmis með námskeið fyrir kennara í krakkajóga. Í gegnum árin höfum við útskrifað nokkur hundruð jóga­ kennara, kennara og leikskólakennara sem kenna margir hverjir krakkajóga í hinum ýmsu grunn­ og leikskólum víða um land.“ Jóga fyrir alla fjölskylduna „Við stöndum fyrir hugmyndina JÓGA FYRIR ALLA og fjölbreytni. Þann 17. mars ætlum við til dæmis að vera með Fjölskyldujóga. Börn og foreldrar fá þá tækifæri til að leika sér saman og eiga góða samverustund. Þetta er viðburður sem við höldum reglulega og er alltaf vel sóttur. Það eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Nánari upplýsingar má nálgast á Facebook­síðu Jógasetursins.“ Jógatímarnir og námskeiðin sem boðið er upp á í Jógasetrinu eru fjölmörg: Grunnnámskeið í Kundalini Jóga Kundalini Jóga Hatha Jóga Jóga Nidra Mjúkt Jóga Jóga fyrir 60+ Krakkajóganámskeið frá aldrinum 3–14 ára Meðgöngujóga Mömmujóga Karlajóga Parajóga Núvitund gegn streitu 12 spor til vellíðunar Vinyasa flæði Jógasetrið er í Skipholti 50c. „Það er ávallt eitthvað á döfinni hjá okkur og við látum vita af námskeið­ um og viðburðum sem eru á döfinni bæði á Facebook­síðu okkar Jóga­ setrið og heimasíðunni jogasetrid.is.“ Sími: 778­1000 Netpóstur: jogasetrid@jogasetrid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.