Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Qupperneq 40
Allt fyrir börnin 8. mars 2019KYNNINGARBLAÐ
JÓGASETRIÐ:
Jóga er betra en grjónagrautur!
Jóga er fyrir alla því þar lærum við fyrst og fremst að stjórna önduninni okkar, sem hjálpar
okkur að hægja á huganum og finna
kyrrðina, en það þurfum við öll að
gera. Það er mikilvægt að við nærum
og sinnum okkar innra lífi eins og
því ytra,“ segir Auður Bjarnadóttir,
eigandi Jógasetursins. Tilurðina segir
hún hafa komið til vegna stóraukins
áhuga á jóga. „Þetta byrjaði með
meðgöngujóga og löngum biðlist
um og svo vatt þetta upp á sig. Nú
er setrið orðið mjög fjölbreytt til að
þjóna öllum aldurshópum,“ segir
Auður.
Magnað meðgöngujóga
„Ég kynntist meðgöngujóga þegar
ég var barnshafandi í Seattle. Mér
fannst tæknin hjálpa mér mjög
mikið þegar kom að því að fæða því
jóga kennir manni svo margt sem er
gagnlegt í fæðingunni. Meðgöngu
jóga er valdeflandi fyrir konur og
kennir þeim að finna sinn innri styrk í
fæðingunni og hafa tækni til þess að
halda ró og einbeitingu. Það kennir
þeim að vera ekki hræddar með
hugann á sveimi, heldur læra þær
að treysta líkamanum og detta inn í
þann dans og ferðalag sem fæðingin
er. Líkaminn verður næmari og veit
þá hvað hann á að gera.“
Mömmujóga
„Meðgöngujógað þróaðist yfir í
mömmujóga þar sem mæður stunda
saman jóga með börnunum. Það er
ótrúlega gott fyrir nýbakaðar mæður
að koma saman og stunda róandi
og styrkjandi jóga fyrir sig og börnin.
Þær ræða líka allt sem viðkemur
barneignum svo sem bleyjuskipti,
svefn, brjóstagjöf og þess háttar og
fá mikla útrás. Svo fara þær sem vilja
líka út að borða saman einu sinni í
viku eftir tímann.“
Krakkajóga: betra en grjóna-
grautur
„Ég var með krakkajóga í Stund
inni okkar fyrir um tuttugu árum
og fann fyrir miklum áhuga á að
halda áfram. Krakkajóga er nátengt
leikjum og gleði og læra börnin ýmsar
jóga stöður sem styrkja jafnvægi,
einbeitingu og samhæfingu.
Börnin elska jógað og eru snögg
að tileinka sér tæknina. Eitt barn
sagði við mig eftir tíma eitt sinn: „Það
er betra að vera í jóga en að borða
grjónagraut.“ Við erum með krakka
jóga fyrir börn á aldrinum 3–4 ára.
Þá koma þau með foreldrunum. Svo
eru tímar fyrir 5–7 ára, 8–11 ára og
svo er unglingajóga fyrir 12–14 ára.“
Auður heldur utan um ýmiss konar
kennaranám í jóga á vegum Jóga
setursins sem hefur reynst vel, því
mikið samfélag hefur myndast í
kringum Jógasetrið í gegnum árin.
„Þetta er fallegt samfélag og það er
gaman að fylgjast með vinskapnum
og kærleiknum sem hefur þróast.
Núna þessa helgi erum við til
dæmis með námskeið fyrir kennara
í krakkajóga. Í gegnum árin höfum
við útskrifað nokkur hundruð jóga
kennara, kennara og leikskólakennara
sem kenna margir hverjir krakkajóga
í hinum ýmsu grunn og leikskólum
víða um land.“
Jóga fyrir alla fjölskylduna
„Við stöndum fyrir hugmyndina JÓGA
FYRIR ALLA og fjölbreytni. Þann 17.
mars ætlum við til dæmis að vera
með Fjölskyldujóga. Börn og foreldrar
fá þá tækifæri til að leika sér saman
og eiga góða samverustund. Þetta er
viðburður sem við höldum reglulega
og er alltaf vel sóttur. Það eru allir
velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Nánari upplýsingar má nálgast á
Facebooksíðu Jógasetursins.“
Jógatímarnir og námskeiðin sem
boðið er upp á í Jógasetrinu eru
fjölmörg:
Grunnnámskeið í Kundalini Jóga
Kundalini Jóga
Hatha Jóga
Jóga Nidra
Mjúkt Jóga
Jóga fyrir 60+
Krakkajóganámskeið frá aldrinum
3–14 ára
Meðgöngujóga
Mömmujóga
Karlajóga
Parajóga
Núvitund gegn streitu
12 spor til vellíðunar
Vinyasa flæði
Jógasetrið er í Skipholti 50c.
„Það er ávallt eitthvað á döfinni hjá
okkur og við látum vita af námskeið
um og viðburðum sem eru á döfinni
bæði á Facebooksíðu okkar Jóga
setrið og heimasíðunni jogasetrid.is.“
Sími: 7781000
Netpóstur: jogasetrid@jogasetrid.is