Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Qupperneq 15
KYNNING
Reynsla og þekking er besta auglýsingin
Fyrirtækið Þak.is var stofnað 2008 og í dag starfa fjórir iðnaðarmenn með gífurlega
reynslu hjá fyrirtækinu. „Við
þjónustum einstaklinga, húsfélög
sem og stærri eða minni fyrirtæki
um land allt,“ segir Ólafur Ragnar
Ólafsson, eigandi Þak.is.
„Þak.is býður upp á alla
þá þjónustu sem viðkemur
húsaviðhaldi innan- sem ut-
andyra. Þá tökum við að okkur
breytingar á heilum íbúðum
innandyra og leggjum t.d. parket,
endurnýjum eldhús eða bað-
herbergi, sjáum um flísalögn,
málun, uppsetningar eða niðurrif
á veggjum og fleira.
Utandyra erum við í endur-
nýjun eða viðgerðum og sjáum
t.d. um þakskipti, endurnýjun
þakrenna, bárujárnsklæðningar
og aðrar veggklæðningar. Einnig
erum við í þakmálun, setjum upp
og gerum við þakkanta, fram-
kvæmum gluggaskipti, setjum
upp blikk flassningar, erum í
pallasmíði og margt, margt fleira.“
Er þakið þitt í lagi?
Það er alltaf mikilvægt fylgjast
með þakinu; hvort það sé kom-
inn tími á að skipta um það eða
lengja endingartíma þaksins með
þakmálun. Þak.is býður upp á
mat á því og öllu öðru, viðskipta-
vinum sínum að kostnaðarlausu.
„Í þakklæðningar notum við
mikið til bárujárn úr alusinki eða
stallað ál, eftir því hvað kúnninn
vill. Þessi efni hafa sýnt og sann-
að hvað þau eru endingargóð og
duga vel í íslenskri veðráttu og
það er þess vegna sem við notum
þau. Við lendum því miður oft í því
að endurvinna verk eftir verk-
taka sem hafa ekki þekkingu og
skila frá sér verkum hálfkláruðum
eða í verra ástandi en áður en
þeir tóku við því. Þetta er sorgleg
staðreynd, en sýnir bara að það
borgar sig að skipta við aðila sem
kunna til verka,“ segir Ólafur.
Nánari upplýsingar má nálgast á
facebooksíðunni þak.is.
Heimasíðan thak.is er lokuð vegna
breytinga.
Hafðu samband í síma
699-6980.
Netpóstur: thak@thak.is
ÞAK.IS: