Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Side 9
8. mars 2019 FRÉTTIR 9
ÍSLENDINGAR SEM HORFIÐ HAFA ERLENDIS
Í mars 1960 greindi Lögberg-
Heimskringla frá því að blað-
inu hefði nýlega borist úrklippa
úr morgunblaðinu Province í
Vancouver, þar sem sagt var frá
undarlegu hvarfi 62 ára íslensks
karlmanns að nafni Halldór
Halldórsson. Halldór var á þess-
um tíma búsettur ásamt systur
sinni, Önnu Halldórsdóttur, í fá-
tækrahverfi í borginni Burnaby,
austan við Vancouver, en hverfið
var þekktur samastaður heimil-
islausra einstaklinga.
Að kvöldi 1. apríl 1959 fór
Halldór til nágranna síns, Dans
Morgan, og var í miklu upp-
námi. Hann greiddi Morgan tíu
dollara sem hann skuldaði hon-
um og sagði síðan:
„Dan, nú hef ég loksins eft-
ir allan þennan tíma komist að
því, hver myrti dóttur mína. Ég
ætla upp í borgina að gera eitt-
hvað í því máli.“
Halldór hvarf því næst út í
myrkrið og hefur ekki sést síðan.
Fram kemur í frétt Province
að ekkert hafi verið tilkynnt um
hvarf Halldórs á sínum tíma og
að engar skýrslur væru til hjá
lögreglu um hann eða dóttur
hans. Nágrannar Halldórs lýstu
honum sem „hæglátum manni“
og voru áhyggjufullir yfir hvarfi
hans. Flestir þeirra töldu þó lík-
legt að lögreglan hafi ekki viljað
snerta á málinu þar sem yfirvöld
„létu sig lítið skipta um afdrif
fólksins í þessi hverfi.“
Blaðamaður Province ræddi
einnig við systur Halldórs,
Önnu, sem þá var á sjötugs-
aldri og kvaðst hún vera viss um
bróðir sinn hefði verið numinn
á brott eða þá myrtur. Sagði hún
að Halldór hefði fyrr um daginn
farið og keypt matvæli, mál-
ingarbursta og málningu. Hann
hefði síðan komið til baka en
Anna var þá ekki heima. Þegar
hún kom heim, voru matvæl-
in og málningarvörurnar þar,
en bróðir hennar var horfinn.
Þá sagðist Anna hafa tilkynnt
hvarf bróður síns til lögreglunn-
ar í Vancouver en málið hefði þó
aldrei verið rannsakað.
Árið 1930 hófu íslenskir togar-
ar fyrst sölu á ísfiski í Cuxhaven
í Þýskalandi, þegar togarinn
Gyllir seldi þar fyrsta farminn
sinn. Um 35 árum síðar, þann
6. febrúar árið 1965, hvarf ung-
ur sjómaður af togaranum Skúla
Magnússyni sem var í söluferð
í Cuxhaven. Um var að ræða
Jón Pétursson tvítugan pilt frá
Hólmavík. Vitað er að Jón fór
ásamt tveimur skipsfélögum sín-
um að skoða bæjarlífið en varð
viðskila við þá og sást ekki eftir
það. Vikulöng leit lögreglu bar
engan árangur.
Í Morgunblaðinu var hvarfinu
lýst á þennan hátt:
„Hann kom ekki til skips
á fimmtudaginn, er togarinn
skyldi sigla heim. Var beðið eft-
ir honum á aðra klukkustund.
En síðan var hvarf mannsins til-
kynnt umboðsmanni skipsins og
ræðismanni Íslands í Cuxhaven.
Gerði hann lögreglunni aðvart
og hefur verið leitað síðan, án
árangurs.“
Aðfaranótt 17. júní 1986 hvarf
Guðný Helga Hrafnsdóttir
Tuliníus í Noregi. Guðný var
einungis 19 ára gömul og hafði
dvalið í Noregi í skamman tíma.
Þrátt fyrir víðtæka leit á sjó og
landi fannst ekkert sem gat stað-
fest lát hennar og er hvarfið enn
í dag óupplýst.
Í júní 1988 rituðu systkini
Guðnýjar minningargrein í
Morgunblaðið þar sem þau
sögðust hafa gefið upp alla
von um að finna systur sína lífs
eða liðna „eftir tveggja ára ör-
væntingarfulla leit“:
„Guðný hafði um skeið þjáðst
af sálrænum erfiðleikum, en
virtist vera á góðri leið með
að sigrast á vanda sínum og
við erum sannfærð að ef Guð-
ný hefði þraukað aðeins lengur
hefði hún getað ráðið niðurlög-
um hans.“
Fram kom að Guðný var
fjórða barn foreldra sinna og
fyrsta dóttir þeirra. Hún hafði
hæfileika á mörgum sviðum,
þótti afbragðs píanóleikari, fyrir-
myndarnemandi og með mikla
skáldskaparhæfileika. Ung-
lingsárin reyndust henni erf-
ið en hún blómstraði að sögn
systkina sinna þegar hún var
við nám í Menntaskólanum við
Hamrahlíð, tók þátt í margs kon-
ar menningar- og félagsstarfi og
eignaðist fjölmarga vini með-
al nemenda og kennara „sem
margir áttu eftir að reynast
henni vel í erfiðleikum hennar
síðasta æviárið.“
„Halldór Heimir Ísleifsson, lækn-
issonur frá Hvolsvelli, var í hag-
fræðinámi í Bandaríkjunum um
miðbik níunda áratugar síðustu
aldar. Árið 1987 kom hann heim
og vann hér í einn vetur. Árið eft-
ir hélt hann aftur út og ákvað að
halda áfram námi í North Texas
University. Hann var þá 25 ára
gamall. Hann tjáði fjölskyldu
sinni að hann ætti gamlan og
góðan bíl vestan hafs og hygð-
ist aka um Bandaríkin áður en
hann byrjaði í skólanum.“
Þannig hefst grein eftir Björn
Jón Bragason sem birt var í DV
um eitt sérstæðasta manns-
hvarf Íslendings í útlöndum.
Fjölskylda Halldór hafði af því
áhyggjur að hann væri einn á
ferð í ókunnugu landi, en Hall-
dór kvaðst þekkja vel til vestan-
hafs og sagði enga ástæðu til að
örvænta. Skömmu eftir að Hall-
dór kom út hafði hann samband
við fjölskyldu sína.
Þann 14. mars 1988 hringdi
Halldór frá Kaliforníu til skólafé-
laga síns í Texas og bað hann um
að senda sér peninga fyrir flug-
farseðli svo hann gæti flogið til
baka til Texas. Bíl Halldórs hafði
þá verið stolið og öll skilríki hans
voru horfin. Skólafélagi hans
símsendi peningana en þegar
Halldór birtist ekki fóru menn að
hafa hafa af honum áhyggjur.
Bíll Halldórs fannst í smábæ,
þrjá kílómetra frá landamærum
Mexíkó, og taldi lögreglan í San
Diego að hann hefði jafnvel farið
suður yfir landamærin. Upplýs-
ingum um Halldór var dreift víðs
vegar um Bandaríkin og Kanada,
en ekkert fannst sem varpað gat
ljósi á hvarf hans. Á endanum
drógu ættingjar þá ályktun að
Halldór væri látinn. Kristín Ís-
leifsdóttir, systir Halldórs, sagði:
„Við upplifðum þá sorg sem
flestir upplifa sem misst hafa
náinn ættingja.“ Annar ættingi
sagði: „Við vonuðum en það má
segja að vonin hafi ein verið eftir
og bænin. Óvissan var hræðileg.“
Dag einn í október árið 2000
hringdi síminn á heimili fjöl-
skyldu Halldórs. Mágur hans
svaraði í símann og hinum
megin á línunni var Halldór.
Hann hafði þá verið týndur í 12
ár og var orðinn 38 ára gamall.
Afráðið var að kalla fjölskylduna
saman, sem hringdi aftur til hans
þremur klukkustundum síðar.
Urðu miklir fagnaðarfundir með-
al foreldra hans og fjögurra syst-
kina.
Halldór flutti svo um haustið
til Íslands og hóf störf sem
byggingaverkamaður. Þótti hann
ósérhlífinn, duglegur og hvers
manns hugljúfi. Í gegnum tíðina
hafa íslenskir blaðamenn ítrekað
reynt að fá Halldór til að tjá sig
um hvarfið en hann hefur ávallt
gefið þau svör að um sé að ræða
einkamál hans og fjölskyldu
hans.
JÓN GUNNAR PÉTURSSON
GUÐNÝ H. HRAFNSDÓTTIR TULINÍUS
HALLDÓR HALLDÓRSSON
HALLDÓR H. ÍSLEIFSSON